Bókatíðindi - 01.12.1995, Qupperneq 56
Ævisögur og endurminningar
FIMM LÆKNAR
SEGJA FRÁ
Önundur Björnsson
Þrautreyndir læknar fara á
kostum og segja frá
sjálfum sér, fjölþættum
skoðunum sínum og giftu-
ríkum læknisferli.
Arni Björnsson fyrrver-
andi yfirlæknir lýtalækn-
ingadeildar Landspítalans
er ótvíræður brautryðjandi
í sinni sérgrein hér á landi.
Hann er hestamaður góður
og geðríkur félagsmála-
maður.
Björn Önundarson fyrr-
verandi héraðslæknir og
heimilislæknir í Reykjavík
til margra ára braust úr
sárustu fátækt til mennta.
Hann segir frá störfum
sínum sem héraðs- og
heimilislæknir.
Hrafnkell Helgason yfir-
læknir á Vífilsstöðum er
litríkur maður sem víða
hefur farið og margt að-
hafst. Hann er öræfafari frá
fyrstu tíð, skytta og fugla-
skoðari.
Pétur Pétursson frá Höllu-
stöðum, heimilislæknir á
Akureyri er litríkur maður
sem lúrir ekki á skoðunum
sínum.
Þorgeir Gestsson fyrrver-
andi héraðslæknir og
heimilislæknir í Reykjavík
er einn félaganna úr MA-
kvartettinum góðkunna
sem gladdi tónelsk eyru
með fögrum söng sínum
um áratuga skeið.
250 blaðsíður.
Setberg
ISBN 9979-52-137-6
Verð: 3.250 kr.
.Jón Kr. fíunnursHtm
4
GEGNUM LÍFSINS
ÖLDUR
Viðtöl við sex
valinkunna sjósóknara
Jón Kr. Gunnarsson
Farsæl sjómennska byggist
á reynslu, þekkingu og
áræði.
í þessari bók erfræðst um
líf sjómanna í ýmsum
greinum sjómennskunnar.
Viðmælendur eru valin-
kunnir sjómenn á ýmsum
aldri og með margvíslega
reynslu.
Þeir sem segja frá eru:
Guðmundur Jónsson skip-
stjóri, Hafnarfirði, Gunnar
Ingvason frá Hliðsnesi,
hrognkelsaveiðimaður,
Júlíus Sigurðsson skip-
stjóri, Hafnarfirði, Jósteinn
Finnbogason smábáta-
sjómaður, Húsavík, Hákon
Magnússon skipstjóri,
Reykjavík og Magnús
Jónsson smábátasjómað-
ur, Sauðárkróki.
256 blaðsíður.
Skjaldborg hf.
ISBN 9979-57-288-4
Verð: 3.480 kr.
BÓKABÚÐ
OLIVERS STEINS
Strandgötu 31
220 Hafnarfirði
555-0045
HALLDÓRÁ
HVANNEYRI
Bjarni Guðmundsson
Bókin er starfssaga Hall-
dórs Vilhjálmssonar skóla-
stjóra á Hvanneyri
1907-1936. Halldór var
einn helsti brautryðjandi
og frömuður íslenskra
bænda á þessari öld. Þá er
sagt frá því hvernig ný
þekking og verktækni varð
til þess að nútíma land-
búnaður hófst til vegs. í
bókinni fléttast því saman
persónusaga eftirminni-
legs athafnamanns og
saga íslensks landbúnaðar
á miklu breytingaskeiði.
288 blaðsíður.
Bændaskólinn á
Hvanneyri
ISBN 9979-881-00-3
Verð: 3.980 kr.
HIN HLJÓÐU TÁR
Sigurbjörg Árnadóttir
Ásta Sigurbrandsdóttir hef-
ur gengið í gegnum ótrú-
legar raunir á langri og
viðburðaríkri ævi. Hún ólst
upp við kröpp kjör í Flatey
og Reykjavík, lærði hjúkrun
í Danmörku á árum síðari
heimsstyrjaldar og varð
síðan hjúkrunarkona
skammt fyrir utan Berlín í
lok stríðsins. Þar lenti hún í
loftárásum, þurfti að sækja
særða út á vígvöllinn og
bera á sjúkrahús - meðan
skothríðin dundi allt í kring.
Ásta fluttist til Finnlands
eftir stríð þar sem hún
mætti enn mótlæti en gafst
ekki upp heldur bar harm
sinn í hljóði.
Þótt Ásta Sigurbrands-
dóttir hafi orðið fyrir erfiðri
lífsreynslu horfir hún um
öxl án beiskju og sér einnig
spaugilegar hliðar tilver-
unnar, - ekki síst á sjálfri
sér. Sigurbjörg Árnadóttir
skrifar sögu Ástu. Hún
skráir frásögnina af innsæi
og látleysi svo að úr verður
ævisaga sem er engri lík -
margbrotin og ógleyman-
leg.
197 blaðsíður.
Vaka-Helgafell hf.
ISBN 9979-2-0315-3
Verð: 3.290 kr.
Islendingar
í útlöndum
HVER VEGUR AD
HEIMAN
íslendingar í útlöndum
Guðmundur Árni
Stefánsson
í þessari bók ræðir
Guðmundur Árni Stefáns-
son alþingismaður við sex
íslendinga sem allir eiga
það sameiginlegt að hafa
flust af landi brott og
dvalið erlendis við störf og
leik um langt árabil.
Viðmælendur eru: Ástþór
Magnússon athafnamaður,
Englandi, Gunnlaugur
Stefán Baldursson arkitekt,
Þýskalandi, Gunnar Frið-
þjófsson útvarpsstjóri,
Noregi, Linda Finnboga-
dóttir hjúkrunarfræðingur,
Bandaríkjunum, Rannveig
Bragadóttir óperusöngvari,
Austurríki, hjónin Þórður
Sæmundsson flugvirki og
Drífa Sigurbjarnardóttir
hótelstjóri, Luxemborg.
256 blaðsíður.
Skjaldborg hf.
ISBN 9979-57-281-7
Verð: 3.480 kr.
KÓNGUR UM STUND
Örnólfur Árnason
Opinská frásögn af storma-
samri ævi Gunnars Bjarna-
sonar, frumkvöðuls í
ræktun íslenska reiðhesta-
kynsins og útbreiðslu þess
um heiminn. Gunnar segir
frá því hvernig tókst að
forða hestinum og hesta-
mennskunni frá því að
Stillholt 18
300 Akranes
431-2840
56