Bókatíðindi - 01.12.1995, Side 63

Bókatíðindi - 01.12.1995, Side 63
Handbœkur FRONSK - ÍSLKINSK ORÐABÓK og notkun hans í almennu nútímamáli. Gerð er grein fyrir mismunandi málsniði og lögð áhersla á ná- kvæmar þýðingar orða og orðasambanda. Þetta er nauðsynlegt verk fyrir alla þá sem lesa, skrifa og tala frönsku, hvort sem þeir eru byrjendur eða hafa gott vald á málinu. 1193 blaðsíður. Örn og Örlygur hf. ISBISI 9979-55-052-X Verð: 9.970 kr. FYRSTA HJÁLP Skyndihjálpar- handbókin Þýðing: Már Kristjánsson læknir og Ingólfur B. Kristjánsson kennari. Loksins er nú fáanleg á íslandi skýr og yfirgrips- mikil handbók um skyndi- hjálp. Með stuttum texta og á myndrænan hátt veitir hún góða innsýn í hvernig á að bregðast við þegar slys, eitranir eða bráð veikindi ber að höndum. Slys og óhöpp eru eitt af allra stærstu vandamálum þjóðarinnar. Þúsundir slas- ast, hundruð hljóta varan- legan miska og tugir manna láta lífið á hverju ári. Að bregðast rétt við getur skipt sköpum en til þess þarf að hafa góða þekkingu sem bókin Fyrsta hjálp getur veitt. Bókin er gefin út í samráði við Rauða Kross íslands og Slysadeild Borgarspítalans. 256 blaðsíður. Skjaldborg hf. ISBN 9979-57-276-0 ib. /-285-X ób. Verð: 3.480 kr.ib. 2.490 kr.ób. GRILLRÉTTIR Hörður Héðinsson og Björg Sigurðardóttir I þessari nýju íslensku mat- reiðslubók er fjöldi upp- skrifta að girnilegum rétt- um fyrir útigrill, mínútugrill eða ofninn. Má þar nefna skötusel á spjóti, kjúklinga- bita með pastasalati og svínalundir með fyllingu og aprikósusósu, auk upp- skrifta að meðlæti, góðum sósum og kryddlögum. Hér ættu því allir að finna eitt- hvað við sitt hæfi. Glæsi- legar Ijósmyndir fylgja hverjum rétti. Einfaldar og þægilegar leiðbeiningar fylgja hverri uppskrift. Rit- stjórar bókarinnar eru þau Björg Sigurðardóttir og Hörður Héðinsson en þau sjá um uppskriftir og mat- reiðslu hjá Nýjum eftir- lætisréttum, matreiðslu- klúbbi Vöku-Helgafells. 80 blaðsíður. Vaka-Helgafell hf. ISBN 9979-2-0280-7 Verð: 1.990 kr. HANDBÓK UM RITUN OGFRÁGANG Ingibjörg Axelsdóttir og Þórunn Blöndal Ný og endurbætt útgáfa þessarar aðgengilegu og þörfu bókar, sem hefur notið mikilla vinsælda og víða verið notuð við kennslu. Ófáir íslendingar fást við skriftir af einhverju tagi, í námi, starfi eða tómstundum. í þessari bók er að finna hagnýtar leið- beiningar um vinnubrögð við ritun og frágang hvers konar texta. Miðað er við að bókin gagnist öllum sem setjast við skriftir, annaðhvort sér til skemmt- unar eða af skyldu. 123 blaðsíður. Iðunn ISBN 9979-1-0272-1 Verð: 2.480 kr. wmmmmmmmmmmmmmmm Eymundsson HEIMSSÖGUATLAS Ritstjóri: Pierre Vidal- Naquet Þýðing: Óskar Ingimarsson og Dagur Þorleifsson íslenskur ritstjóri: Helgi Skúli Kjartansson Heimssöguatlas er stór- fróðlegt, vandað og ítarlegt yfirlitsrit í kortum, mynd- um og máli um mann- kynssöguna frá árdögum fram til síðustu ára og atburða og nýtist jafnt til náms, fróðleiksleitar og uppflettingar. Fjöldi lit- mynda er á hverri einustu opnu auk vandaðra og greinargóðra sögukorta. Þetta er bókin sem var að nokkru leyti fyrirmynd að íslenskum söguatlasi og er efnið sett fram á sama hátt. Sögukortin eru megin- kjarni bókarinnar en þeim fylgir jafnframt knappur en þó efnismikill og mjög vandaður texti og fjöl- breytilegt myndefni, auk þess sem helstu atburðir hvers tímaskeiðs eru raktir neðanmáls í tímaröð. Saga mannkyns er í bókinni sögð á myndrænan og skýran hátt svo að allir, ungir sem aldnir, geta tileinkað sér hana og haft gagn og gaman af. Fjöldi virtra fræðimanna og kortagerðarmanna vann að samningu bókarinnar og er í þýðingunni sótt bæði í enska og franska útgáfu hennar. ___________________ 356 blaðsíður. Iðunn ISBN 9979-1-0290-x Verð: 9.800 kr. 100 GÓÐIR RÉTTIR FRÁ MIDJARÐARHAFS- LÖNDUM Diane Seed Þýðing: Helga Guðmundsdóttir 128 blaðsíður. Mál og menning ISBN 9979-3-0791-9 /-0882-6 (kilja) Verð: 1.980 kr. 890 kr.(kilja) INDÆLA REYKJAVÍK Guðjón Friðriksson í þessari stórfróðlegu bók er gengið um sögurík hverfi höfuðborgarinnar, þar sem nánast hvert hús á sína sögu og sérkenni. Lýst er sex gönguleiðum og ber margt fyrir augu: Skip- stjóravillur og íbúðarskúra, torg og sund, falin bakhýsi, gróður og garða. Indæla BÓKABÚÐ LÁRUSAR BLÖNDAL Skólavöröustíg 2 101 Reykjavík 551-5650 63

x

Bókatíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.