Bókatíðindi - 01.12.2004, Blaðsíða 6
íslenskar barna-og unglingabækur
um á ógnum og ævintýr-
um þessa framandi lands
og öðlast betri skilning á
því allra dularfyllsta sem
sögur fara af; nefnilega líf-
inu sjálfu.
112 bls.
Bjartur
ISBN 9979774940
Leiðb.verð: 2.680 kr.
ÍRIS ÓSK EGILSON
BLÓMIÐ OG
BÝFLUGAN
íris Ósk Egilson
Skemmtileg og fallega
myndskreytt saga um
samskipti blóms og
býflugu, hvernig þau
leysa ágreiningsmál sín og
ákveða að vera bara vinir.
Höfundurinn er aðeins 16
ára og myndskreytingar
eru eftir íslensku listakon-
una Svövu K. Egilson sem
er móðir höfundar.
22 bls.
Myndbókaútgáfan
ISBN 9979-9679-0-0
Leiðb.verð: 1.790 kr.
BRENNAN
Ingólfur Örn
Björgvinsson
Embla Ýr Bárudóttir
A Bergþórshvoli hefur
verið boðið til brúðkaups
sem ætlað er að tryggja
frið og stöðugleika í hér-
aðinu. En í miðri gleðinni
fara illar tungur á kreik og
hrinda af stað atburðarás
rógburðar, ófriðar og
mannvíga.
Brennan er sjálfstætt
framhald Blóðregns, sem
hlaut Barnabókaverðlaun
fræðsluráðs Reykjavíkur
fyrr á árinu. Hér er farið
framar í söguna og aðdrag-
anda Njálsbrennu lýst
með hraða og spennu
myndasögunnar.
76 bls.
Mál og menning
ISBN 9979-3-2540-2
Leiðb.verð: 2.690 kr.
Bubbi Morthons
RobortJackson
DJÚPRÍKIÐ
Bubbi Morthens
Robert Jackson
Myndskr.: Halldór
Baldursson
Unglaxarnir Uggi og Una
eru að fara í ferðina miklu
í fyrsta sinn. Þau hlakka
til en kvíða líka fyrir. Þau
hafa heyrt um allar hætt-
urnar sem bíða þeirra á
leiðinni og vita að margir
úr hópnum munu ekki
komast á leiðarenda.
Djúpríkið er saga af
miklum ævintýrum. Sagt
er frá af þekkingu en ekki
síður aðdáun á laxinum
og dugnaði hans. Bubbi
Morthens og Robert
fackson skapa ógleyman-
legar persónur úr íbúum
Djúpríkisins sem birtast
lesendum ljóslifandi í sér-
lega fallegum myndum
Halldórs Baldurssonar.
96 bls.
Mál og menning
ISBN 9979-3-2536-4
Leiðb.verð: 2.990 kr.
DREKAGALDUR
Elías Snæland Jónsson
Drekagaldur er sjálfstætt
framhald af Valkyrjunni
og segir frá ævintýraleg-
um ferðalögum Hildar um
Goðheima og kynnum
hennar af goðum, jötnum,
dvergum, svartálfum og
fleiri furðuverum, að
ógleymdum hinum víga-
legu valkyrjum. Dreka-
galdur er fjörug og spenn-
andi saga sem veitir
krökkum skemmtilega
innsýn í heim norrænnar
goðafræði.
168 bls.
Vaka-Helgafell
ISBN 9979-2-1708-1
Leiðb.verð: 2.490 kr.
DROTTNING
DREKANNA
Ólafur Gunnar
Guðlaugsson
A flugi sínu um skóginn
rekast Benedikt, Dídí og
Daði dreki á grátandi
stúlku. Þau hafa ekki hug-
mynd um hver hún er -
og það sem verra er, hún
veit það ekki sjálf. Þau
leita ráða hjá Magnúsi
mikla, vitrasta álfi skógar-
ins, sem leiðir þau á rétta
braut - og sú er ævintýra-
legri en nokkurt þeirra
hefði órað fyrir.
Bækurnar um Benedikt
búálf eftir Ólaf Gunnar
Guðlaugsson hafa fyrir
löngu öðlast miklar vin-
sældir hjá íslenskum
börnum. Hér ratar Bene-
dikt í ný og spennandi
ævintýri með gömlum og
nýjum vinum sínum í Alf-
heimum.
Bókabúð Lárusar Blöndal
Listhúsinu, Engjateigi 17-19 • 105 Reykjavík
S. 552 5540 • Fax 552 5560 • bokabud@simnet.is
4