Bókatíðindi - 01.12.2004, Qupperneq 144
Fræði og bækur almenns efnis
Gústof S. Berg iJLÁo*.
f
> Tvímmlalautt bák ártint! W.C
NÁÐHÚSIÐ 2004
Gústaf S. Berg
Náðhúsið 2004 bætir úr
brýnni þörf og teflir fram
stoppfullri bók af fánýtum
fróðleik, fimmaurabrönd-
urum, heilabrotum og
dægradvöl af ýmsu tagi. Ef
þig vantar að vita hver séu
skrýtnustu götuheitin á
Islandi, hvað hundur Hitl-
ers hafi heitið eða hvern-
ig best sé að þekkja hreina
mey eða svein þarftu ekki
að leita lengra. Hér eru
kynstur svara við spurn-
ingum sem þér hefur
aldrei dottið í hug að
spyrja.
154 bls.
Vaka-Helgafell
ISBN 9979-2-1753-7
Leiðb.verð: 990 kr. Kilja
NORDEN OCH
EUROPA 1700 - 1830
Synvinklar pá
ömsesidigt kulturellt
inflytande
Ritstj.: Svavar
Sigmundsson
Rit þetta hefur að geyma
greinar sem byggjast á fyr-
irlestrum sem haldnir
voru á norrænni ráðstefnu
Félags um átjándu aldar
fræði 14.-15. júní 2002.
Hér eru birtar 11 greinar,
sjö á ensku, tvær á dönsku
(með útdráttum á ensku)
og tvær á sænsku (með
útdráttum á frönsku).
Greinarnar fjalla um hin
ólíkustu svið átjándu ald-
ar fræða þar sem Upp-
lýsingin er vissulega áber-
andi þáttur.
Atjándu aldar fræði eru
vaxandi fræðigrein á
Norðurlöndum eins og
víða í heiminum og hér
má lesa um nokkra þætti
þeirra frá norrænum sjón-
arhóli. Bókin á ekki
aðeins erindi við þann
breiða hóp hér sem sýnt
hefur starfi Félags um étj-
ándu aldar fræði áhuga á
undanförnum árum held-
ur alla þé sem léta sig
sögu átjándu aldar varða.
199 bls.
Háskólaútgáfan
ISBN 9979-54-580-1
Leiðb.verð: 3.900 kr.
Kilja
NORDIC HISTORICAL
NATIONAL ACCOUNTS
Ritstj.: Guðmundur
Jónsson
Ritið hefur að geyma 13
greinar frá ráðstefnu um
sögulega þjóðhagsreikn-
inga, sem haldin var
2003 ,og gefur góðan þver-
skurð af þeim fjölbreyti-
legum rannsóknum sem
stundaðar eru á sögulegri
þróun þjóðarframleiðslu
og annarra hagstærða á
Norðurlöndum. Fjallað er
bæði almennt um framlag
þjóðhagsreikninga til hag-
vaxtar og afmörkuð efni
Nordic Historical
National Accounts
Procefdings of Worksliop VI
Rrykjavik 19-20 Septemher 2003
s.s. áætlanir á hagstærð-
um, rætur hagvaxtar og
aðferðafræðileg álitamál.
Ritið er gefið út af Sagn-
fræðistofnun.
272 bls.
Háskólaútgáfan
ISBN 9979-54-576-3
Leiðb.verð: 4.450 kr.
Kilja
NORRÆN SAKAMÁL
2004
Norræn sakamál koma nú
út í fjórða sinn á Islandi
en þau voru fyrst gefin út
á Norðurlöndunum árið
1971. Þar hefur ritröðin
notið stöðugra vinsælda
og hér á landi er líka vax-
andi hópur fólks sem
kann að meta bækurnar,
enda bjóða þær upp á
spennu og fróðleik í fjöl-
breyttum frásögnum af
raunverulegum glæpa-
málum.
I Norrænum sakamál-
um 2004 eru, eins og í
fyrri bókum, birtar frá-
sagnir lögreglumanna af
ýmsum sakamálum sem
þeir hafa átt þátt í að
leysa. A Norðurlöndum
starfa nú alþjóðlegir
glæpaflokkar, sem búa yfir
æ flóknari aðferðum og
tækni og láta sig engu
varða afleiðingar gerða
sinna. Lögreglan hefur
hins vegar orðið sífellt
þjálfaðri í að eiga við slíka
glæpafiokka og leysa saka-
mál af öðrum toga. Hún
nýtur þar nýrrar tækni, en
ekki síður kjarkmikilla og
samhentra lögreglumanna
af báðum kynjum.
Frásagnir lögreglu-
mannanna í þessari bók
sýna að sannleikurinn get-
ur stundum verið ótrú-
legri en sú veröld sem
dregin er upp í spennu-
sögum. Þær veita sýn inn
í heim raunverulegra
atburða, sem flestir
myndu óska að væri ekki
til, en er samt hluti af
samfélagi okkar. Norræn
sakamál 2004 bregður upp
nýrri mynd af ýmsum
íslenskum sakamálum,
sem eru mönnum í fersku
minni, auk frásagna af
málum sem brunnið hafa
á nágrönnum okkar. Allar
eiga þær sameiginlegt að
opna augu manna fyrir
því hvernig réttvísin vinn-
ur í raun - og hefur oft
betur að lokum.
Iþróttasamband lög-
reglumanna á Norður-
löndum
Dreifing: íslenska
lögregluforlagið
ISSN 1680805325
Leiðb.verð: 3.950 kr.
142