Bókatíðindi - 01.12.2004, Qupperneq 127
Fræði og bækur almenns efnis
Hverjir eiga heimsmet í
sláturkasti?
Sérstök gullútgáfa þar
sem greint er frá öllum
nýjustu metunum og ótrú-
lega myndir birtar af
mögnuðum uppátækjum í
öllum heimshornum. I
bókinni eru einkaviðtöl
við heimsmethafana og
sérkaflar þar sem farið er
ofan í saumana á ótrúleg-
ustu afrekum allra tíma.
288 bls.
Vaka-Helgafell
ISBN 9979-2-1779-0
Leiðb.verð: 4.990 kr.
HIÐ FAGRA ER SATT
Kristján Árnason
Umsj.: Þorsteinn
Þorsteinsson
Hið fagra er satt er afmæl-
isirt Kristjáns Arnasonar
rithöfundar, þýðanda og
bókmenntafræðings. A
sjötugsafmæli hans þótti
Bókmenntafræðistofnun
Háskóla Islands, sem
hann veitti forstöðu um
skeið, hlýða að gefa út á
bók helstu ritgerðir hans
um bókmenntir, þýðingar-
list og heimspeki sem
hann hefur ritað í tímarit
á undanförnum áratugum,
auk kynningarorða hans
með fáeinum bókum. Efn-
isflokkar eru fimm: heim-
speki, skáldskaparlist,
íslenskan skáldskap,
erlendan skáldskap og
þýðingar.
443 bls.
Háskólaútgáfan
ISBN 9979-9608-7-6
Leiðb.verð: 4.900 kr.
HINN SANNI
ÍSLENDINGUR
Þjóðerni, kyngervi og
vald á Islandi
1900-1930
Sigríður Matthíasdóttir
I bókinni er fjallað um ein
mikilvægustu mótunarár
íslensks nútímasamfélags.
A þessu tímabili átti sér
stað hugmyndafræðileg
barátta þar sem tókust á
ólík sjónarmið um gerð
íslensks þjóðríkis og stöðu
og hlutverk einstakling-
anna innan þess. Fjallað
er annars vegar um mótun
þjóðernishugmynda
Islendinga á fyrri hluta
20. aldar og hins vegar um
hlutverk og stöðu kvenna
innan þjóðríkisins.
Bókin er nauðsynleg
lesning öllum sem vilja
skilja eigin hugmyndir
um þjóðerni og kyngervi,
uppruna þeirra og áhrif í
íslensku samfélagi.
408 bls.
Háskólaútgáfan
ISBN 9979-54-588-7
Leiðb.verð: 3.300 kr.
HLUTAVELIA
TIMANS
MENNiNGAKARfUR Á Þ|ÓDMINJMAFNI
HLUTAVELTA TÍMANS.
MENNINGARARFUR Á
ÞJÓÐMINJASAFNI
Umsj.: Árni Björnsson
og Hrefna Róbertsdóttir
Hlutavelta tímans er
glæsilegt yfirlitsrit um
íslenska menningarsögu.
Bókin er gefin út í tilefni
af enduropnun Þjóðminja-
safns Islands og er til-
gangur hennar að gera
grein fyrir því helsta sem
safnið geymir og setja það
í menningarsögulegt sam-
hengi. Bókin veitir þannig
einstaka innsýn í menn-
ingararfinn sem varðveitt-
ur er á Þjóðminjasafninu,
allt frá húsum, nytjahlut-
um, kirkjugripum og forn-
leifum til myndefnis og
þjóðháttalýsinga. I hana
skrifa 35 höfundar um
jafnmörg svið.
Bókin er ríkulega
myndskreytt og á erindi
við allan almenning, þar
sem helstu þættir
íslenskrar menningarsögu
eru gerðir aðgengilegir í
einni bók.
424 bls.
Þjóðminjasafn Islands
ISBN 9979-9507-7-3
Leiðb.verð: 8.990 kr.
Kilja
HLÝÐI MENN FRÆÐI
MÍNU
Gamlar upptökur af
sögum, rímum og
kveðskap
Umsj.: Rósa
Þorsteinsdóttir
Um áratuga skeið var
Hallfreður Orn Eiríksson
einn ötulasti safnari
íslenskra þjóðfræða. Sam-
starfsmenn hans á Árna-
stofnun hafa gefið út á
hljómdiski dálítið sýnis-
horn af því efni sem hann
hefur bjargað frá
gleymsku. Þar er að finna
sagnir og ævintýri, rímur,
þulur og sálma. Efnið af
diskinum fylgir í prentuð-
um bæklingi.
Háskólaútgáfan
Leiðb.verð: 2.990 kr.
Hljóðbók
HUGUR 15. ÁRG. 2003
Tímarit um heimspeki
Ritstj.: Davíð
Kristinsson
Þema heftisins er „líf-
vald“, hugtak sem runnið
er undan riljum franska
heimspekingsins Michels
125