Bókasafnið - 01.01.2003, Qupperneq 7
un hússins. Hönnunarhópinn skipuðu Sigurður Ein-
arsson, Jón Ólafur Ólafsson, Gunnar Ottósson, Arnór
Skúlason, Sigurður H. Ólafsson og Jón B. Einarsson.
Heildarrými Menntasmiðjunnar er á u.þ.b. 1.300
m2 og meira en tvöfaldaðist frá því sem áður var.
Safnið hefur til umráða nánast alla neðstu hæð húss-
ins, alls um 815 m2, en inn af því er 64 m2 kennslu-
stofa. Það hefur auk þess umsjón með 133 m2 lessal á
efstu hæð. Safnrýmið er mjög opið og hefur t.d. engar
venjulegar inngöngudyr heldur er komið inn í það úr
lyftu eða niður stiga. Allir starfsmenn nema forstöðu-
maður vinna í opnu rými en auk þess er kaffistofa,
allstórt fundarherbergi og herbergi fýrir póstmót-
töku, bókafrágang, pökkun o.fl. Les- og hópvinnuað-
staða er á milli hillustæða en einnig eru stærri vinnu-
svæði við útveggi, eitt hópvinnuherbergi og þrír litlir
klefar ætlaðir þeim sem stunda rannsóknatengt nám.
Öll gögn eru skráð í bókasafnskerfið Gegni og safnið
er meðal þeirra fyrstu sem taka munu nýja bóka-
safnskerfið í notkun.
Smiðjan er á rúmlega 300 m2 og fyllir helming
miðhæðar hússins gegnt fyrirlestrasölum. Næst aðal-
inngangi eru skrifstofur stjórnenda en til hliðar
afmarkað vinnurými kerfisþjónustu. Afgreiðslu- og
tæknifólk vinnur í opnu rými í vinnusal notenda en
vefstjóri og þeir sem starfa að kennsluþróun hafa
einkaskrifstofur þar sem hægt er að taka á móti gest-
um. Á efri hæð er auk þess rúmlega 40 m2 rými sem
nýtist smiðjunni.
Húsgögn voru boðin út í tvennu lagi, annars vegar
stólar og borð í allt húsið en hins vegar hillur og sér-
stakur bókasafnsbúnaður. Stóla og borð flytur Penn-
inn inn en allur hillubúnaður í safninu er íslensk
smíð; bókaskápar úr birki frá ÁGuðmundssyni með
stálhillum sem Ofnasmiðjan smíðaði. Alls eru rúm-
lega 160 sæti í húsnæði Menntasmiðju. í safni er
vinnuaðstaða fyrir 56, í smiðju eru 33 sæti, þar af 17
við tölvur, og í lessal eru 58 sæti. Þá eru einnig 15
hvíldarsæti á víð og dreif um svæðið. Tæknibúnaður í
fyrirlestrasölum er af fullkomnustu gerð og hefur
smiðjan umsjón með honum. Á síðasta ári hefur orð-
ið mikil endurnýjun á öllum tækjakosti í skólanum.
Flutningur og formleg opnun
Upp úr miðjum september 2002 flutti starfsfólk
smiðju í nýja húsnæðið. Safnið var síðan flutt á ein-
um degi, föstudaginn 22. nóvember, með hjálp sjálf-
boðaliða úr hópi starfsmanna og stúdenta í skólan-
um. Fjöldi bókavagna var fenginn að láni í Borgar-
bókasafni og Bókasafni Kópavogs og skapaðist geysi-
mikil stemmning þegar þeir liðuðust eins og úlfalda-
lest eftir göngunum, fullir af bókum. Allt misserið
hafa iðnaðarmenn verið meira og minna að störfum
um allt hús. Það samneyti hefur sett sérstakan en
skemmtilegan svip á mótunarskeið starfseminnar
við nýjar aðstæður.
Húsið var tekið formlega í notkun 6. desember að
viðstöddum fjölda gesta við hátíðlega athöfn í stærsta
fyrirlestrasalnum. Starfsfólk, stúdentar í Kennarahá-
skólanum og gestir, sem hafa komið í húsið, hrífast af
þessari fallegu umgjörð um nám og kennslu enda
hefur orðið gjörbreyting á vinnuaðstöðu í skólanum.
Þótt margir gangi daglega um húsið má ekki gleyma
því að meira en helmingur þeirra sem stunda nám
við Kennaraháskólann eru í fjarnámi. Þeir leita til
Menntasmiðjunnar um Netið eða símann nema í
staðbundnum kennslulotum.
Framtíðarsýn
Eins og áður hefur komið fram er það viðfangsefni
Menntasmiðju að þróa og samhæfa þjónustu sem
örvar nemendur til náms og eykur faglega hæfni
kennara. Við flutning í nýtt húsnæði með vönduðum,
nútímalegum búnaði og upplýsingakerfum skapast
allt önnur skilyrði til þess en áður. Starfsfólkið býr
yfir fjölbreyttri getu og færni en þær einingar sem
hafa verið sameinaðar eru misaldra, búa að mismun-
andi hefðum og sinna á margan hátt ólíkum verkefn-
um sem þó er brýn nauðsyn að tengja í samhæfða
heild. Fyrir bragðið býður framtíðin starfsfólkinu upp
á spennandi sköpunarskeið á næstu árum, ferli sem
er hliðstætt því lærdómsferli sem við viljum styðja
hjá öllum sem til okkar leita.
Heimildir
Ein samuirfe feennslumiðstöð. Sfeýrsia star/shóps um húsrýmisþörf uegna
bókasafns, gagnasmiðju, kennslumiðstöðuar og fjarkennslu í KHÍ (&
UHÍ). 1995. Sigurjón Mýrdal o.fl. Kennaraháskóli íslands, Reykja-
vík.
Kristín Indriðadóttir. Bókasafn Kennaraháskóla fslands. Sál aldanna.
Safn greina um bókasöfn og sfeyld efni. Ritstj. Guðrún Pálsdóttir og
Sigrún Klara Hannesdóttir. 1997. Félagsvísindastofnun Háskóla
Íslands/Háskólaútgáfan, bls. 139—154.
Reglur Jyrir Kennarahásfeóla íslands nr. 843/2001.
Tilvitnanir
1 Ein samuirfe feennslumiðstöð 1995.
2 Að frátöldum nemendum sem vinna hlutastörf í safni. í
smiðju eru 9 stöðugildi og 6,95 í safni auk framkvæmda-
stjóra.
3 Þar er starfsmaður í hálfu starfi.
4 Sjá Kristín Indriðadóttir 1997.
Summary
The Learning Centre of Iceland University
of Education
The author describes the development of the Learning
Centre of Iceland University of Education (Kennaraháskóli
íslands) and its distinctive facilities in a new specially
designed building, officially opened in December 2002. The
historical roots of the Centre are described, as well as its’
foreign models, present activities, organizational structure
and future prospects.
BÓKASAFNIÐ 27. ÁRG. 2003
5