Bókasafnið - 01.01.2003, Page 18
María Jakobsdóttir
Vefvæðing fyrirtækja
- afmörkun verkefnisins
Eitt er víst að Internetið mun halda áfram að
þróast um ókomna tíð. Hver sú þróun verður
er ekki gott að segja. í nýlegri kvikmynd Spiel-
bergs, Minority Report sem gerist árið 2054 er
enginn tölvuskjár og ekkert lyklaborð. Hetjan sem
leikin er af Tom Cruise stendur á miðju gólfi með
myndir allt í kringum sig. Með handapati sem einna
helst er hægt að líkja við hreyfingar hljómsveitar-
stjóra, flettir hann fram og aftur í rafrænum upp-
lýsingum og velur það sem hann hefur áhuga á.
Skemmtileg framtíðarsýn sem gaman er að velta fyrir
sér.
Þessi grein fjallar þó ekki um Tom Cruise eða
vísindaskáldsögur heldur fjallar hún um ferli sem
stjórnendur fýrirtækja eða stofnana geta farið eftir
þegar endurmeta á núverandi vefsíðu eða stofna
nýja.
Vefsíður eru alltaf að verða notendavænni og
gagnvirkari. Algeng mistök hjá stjórnendum fýrir-
tækja og stofnana er að skilgreina ekki markmið með
vefsíðu sinni og umgangast fyrirtækjavefinn eins og
útgefið efni, bækling eða kynningarrit sem ekki þarf
að uppfæra nema tvisvar á ári. Vefir eru oft hannaðir
og þróaðir af starfsmönnum fyrirtækisins en þeir
eiga stundum erfitt með að setja sig í spor viðskipta-
vinarins/notandans og orðalag einkennist af innan-
hússmáli sem fáir skilja. Vefir geta þannig verið mjög
skipulagðir og vel hannaðir fyrir ákveðinn hóp not-
enda en aðrir hópar verða útundan.
Vefsíðugerð snýst ekki bara um að velja liti og
stafagerðir heldur fyrst og fremst um það hvernig
þjónusta á viðskiptavininn í gegnum vefinn og auð-
velda honum aðgengi að upplýsingum.
Aðalefni þessarar greinar er að lýsa í stutt máli
fýrsta áfanga í grunnferli (e. Core Process) við vef-
síðuhönnun. Þetta ferli hentar bæði stórum og smá-
um verkefnum við endurhönnun/nýsmíði á vefsíð-
um. í fyrsta áfanga er fjallað um þarfagreingu og
áætlanagerð. Þessi aðferð er sett fram af Kelly Goto
og Emily Cotler (2002) í bókinni Web Redesign - Worfe-
fiow that Worfes.
Spurningalistar, opin viðtöl og notendaprófanir
eru meðal aðferða sem notaðar eru við þarfagrein-
ingu. Nytsemismat eða notendapróf er stór þáttur í
rannsóknum á vefum og mjög gagnleg aðferð til að
kanna hvernig bæta má kerfi, bæði hvað varðar virkni
og viðmót. Aðferðin er upprunnin úr tilraunasálfræði
þar sem hún hefur þróast og verið notuð lengi, m.a.
til að kanna og greina samskipti manns og tölvu.
Kannanir og skýrslur sem minnst er á hér er hægt
að nálgast á vefsíðu bókarinnar (www.web-redesign
.com).
Vefur eða kerfi?
Hvað er vefsíða og hvað er átt við þegar við segjumst
vera að hanna eða þróa vefsíðu? Hvernig stöndum
við að undirbúningsvinnunni og hvað erum við að
greina?
Við getum litið á vef og allt sem viðkemur honum
sem kerfi (e. system). í hugbúnaðarfræði er kerfi m.a.
skilgreint á þennan hátt:
„Kerfi er samansafn óháðra hluta eða þátta
sem eru tengdir, mynda heild og þjóna ein-
hverjum sameiginlegum tilgangi"
Alter, Steven (1996): Information Systems, a Mana-
gement Perspectiue, 2nd edition. Menlo Park, bls.
37.
Kerfi er sem sagt ekki bara tölvukerfi heldur líka
fýrirkomulag eða skipulag. í kerfisgreiningu erum við
að skoða heildarmyndina, hveijar em þarfimar, hvemig
getum við mætt þeim og er hægt að uppfylla þarf-
irnar með rafrænum hætti. Kerfi hafa ákveðna eigin-
leika, þau hafa:
• Tilgang
• Skipulag
• Umhverfi
• Ákveðin mörk
• Inntak og úttak
Margs konar aðferðafræði hefur verið notuð við
stjórnun og þróun á hugbúnaði eða vefsíðum og má
þar nefna verkefnastjórnunarferlið Prince2 (www.
prince2.com) og DSDM ítrunarferlið (Dynamic Syst-
ems Development Method - www.dsdm.com) við
hugbúnaðarþróun.
16
BÓKASAFNIÐ 27. ARG. 2003