Bókasafnið


Bókasafnið - 01.01.2003, Síða 19

Bókasafnið - 01.01.2003, Síða 19
Grundvallaratriði í DSDM er sú sýn að ekkert er byggt fullkomið í fyrsta skipti. Þess vegna eru mörg afhendingarstig og miklir möguleikar á að endurgera ákveðna hluta kerfisins. í grunnferlinu sem fjallað verður um í þessari grein, má finna mörg atriði úr báðum þessum aðferðum og mörgum fleiri en ferlið er fyrst og fremst leiðbeinandi við endurhönnun eða nýsmíði á vefsíðum. Ferlið Hefðbundið hugbúnaðarferli tekur ekki á þarfagrein- ingu en það skiptist oftast í 6 fasa eða áfanga: • Kröfugreining • Kerfisgreining • Kerfishönnun • Framleiðsla • Prófanir/uppsetning • Viðhald Ferlið þarf ekki að vera línulegt, áfangar geta skarast og í sumum tilfellum er um margendurteknar ítranir að ræða. Sama á við í grunnferli vefsíðuhönnunar með ólíkum áherslum þó. Grunnferlið sem sett er fram í bók Goto og Cotler endurspeglar að miklu leyti hefðbundna fasaskipt- ingu í þróunarferli hugbúnaðar. Fimm áfangar eru í grunnferli vefsíðuhönnunar. Hver áfangi er undan- fari næsta en það fer eftir eðli verkefnisins hve mikl- um tíma er varið í hvert skref og alltaf er einhver skörun á milli verkþátta eins og áður hefur verið sagt. Ferlið skiptist í: • Afmörkun verkefnisins • Efni og flokkun • Hönnun • Þróun og prófanir • Afhending og viðhald Ef um stóra gagnagrunnstengda vefi er að ræða er oft betra að afmarka einn hluta verkefnisins og fara með hann í gegnum allt ferlið. Aðrir hlutar fá síðan sömu meðhöndlun þegar búið er að villuprófa og finna helstu vankanta. Ekki er ætlunin að bera saman þessi tvö ferli en ekkert ætti að vera því til fyrirstöðu að þau vinni saman. Þegar um mikla viðmótshönnun er að ræða hentar ekki alltaf að byggja á ferlum sem taka mið af flókinni undirbyggingu með litlu viðmóti því hafa verið sett fram sérstök ferli sem henta betur vefsíðuhönnun. 1. áfangi - Afmörkun verkefnisins Þarfagreining og áætlanagerð í grunnferlinu byggist á þremur undirflokkum: • Uppgötvanir • Útskýringar • Áætlanir 2. áfangi - Efni og flokkun Þegar þarfagreiningu og áætlanagerð er lokið er hafist handa við að skipuleggja innihald vefsins. Þeir sem vinna við efnisöflun og flokkun þurfa oft að setja á sig mismunandi gleraugu. Hvernig sér notandinn/við- skiptavinurinn fyrirtækið? Hvaða efni, framleiðslu eða þjónustu vill hann flokka saman? Notendur geta flokkað efni á allt annan hátt en starfsmenn fyrirtæk- isins, sem oft horfa á deildaskipulag eða skipuritið sem lagt er til grundvallar starfseminni. Vefurinn er „stikaður" eða útbúinn sem teikning af síðum og undirsíðum sem eingöngu taka á inni- haldi og aðalvirkni. Mikilvægt er að vera ekki að hugsa mikið um útlit á þessu stigi málsins. Hugleið- ingum um liti, stafagerð og grafíska hönnun skal stillt í hóf. Ef notandinn þarf að fylla út eyðublöð eða fram- kvæma ákveðið ferli er gott að setja upp notkunar- dæmi (e. scenarios). Þetta eru sögur af hinum dæmi- gerða notanda sem vafrar inn á vefinn. Notkunar- dæmi eru sett fram í markhópagreiningu. 3. áfangi - Hönnun í þessum áfanga eru settar fram frumgerðir (e. proto- types) byggðar á vinnu í áfanga 1 og 2. Þær geta verið unnar í HTML eða þar til gerðum hugbúnaði. Frum- gerðir eru prófaðar með notendum. Finna þarf jafn- vægið milli þarfa, hönnunar og tæknilegra ann- marka. Fyrstu drög að heildarútliti eru sett fram. Stíl- síður (e. templates) eru hannaðar og fyrstu hug- myndir af hnöppum, leturgerðum o.fl. eru skil- greindar. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir því að síðurnar eru sífellt í endurskoðun og geta breyst mik- ið meðan vefurinn er í þróun. Stöðug endurhönnun er lykill að góðri vefsíðu. 4. áfangi - Þróun og prófanir Næsta skref er að ljúka við alla tækni- og samhæfing- arvinnu. Á þessi stigi er komin heildarmynd á vefinn og hann tengdur við gagnagrunna. Reglulegar kerfis-, gæða- og notendaprófanir eru einnig mikilvægar á þessu stigi. 5. áfangi - Afhending og viðhald Á þessu stigi er miðað við að vefurinn sé tilbúinn til afhendingar og aðrir en hönnuðir og forritarar taki við og viðhaldi vefnum. Handbækur og skjöl eru upp- færð og afhent viðtakanda. Viðhaldsáætlun er sett fram og mælingar gerðar í samræmi við skilgreining- ar og mælanleg markmið. Afmörkun verkefnisins Þegar búið er að taka ákvörðun um að gera eitthvað í málinu varðandi gamla og úrelta vefsíðu vakna upp margar spurningar. Hvar á að byrja? Hverjir eiga að vinna verkið og hvað á að gera? Hvar er fyrirtækið BÓKASAFNIÐ 27. ÁRG. 2003 17
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.