Bókasafnið


Bókasafnið - 01.01.2003, Síða 21

Bókasafnið - 01.01.2003, Síða 21
-> Markhópagreining í starfsmannakönnuninni getum við fengið upplýs- ingar um notendur. Við verðum að fá tilfinningu fyrir hvernig þeir eru, hvers vegna þeir koma á síðuna og hvaða verkefni þeir eru að framkvæma. Dæmigerð mynd (e. profile) af notanda eða notendahóp vefsins getur innihaldið, stöðu, aldur, kyn, vefnotkun, teng- ingu við Netið, hvers vegna heimsækir notandinn vefinn og hvaða verkefni er hann að leysa. Best er að gera nytsemismælingar með notendum ef því verður við komið og setja upp notkunardæmi (e. scenarios). Dæmi: „Guttormur er 23 ára stúdent og ætlar í bóka- safns- og upplýsingafræði við HÍ. Hann er í sambúð, á eitt barn og er að leita sér að húsnæði. Hann hefur mikla reynslu af Netinu og sækir um húsnæði hjá stúdentagörðum í gegnum vefsíðu HÍ....” Svona uppsetning á ímynuðum aðstæðum not- anda auðveldar greiningu á grunnvirkni vefsins. -> Viðskiptaumhverfi Greining á viðskiptaumhverfi fyrirtækisins er mjög mikilvæg. Hvernig eru vefsíður samkeppnisaðilanna? Sum fyrirtæki búa svo vel að hafa hóp af fólki innan- borðs sem sífellt er að gera markaðsrannsóknir á við- skiptaumhverfi fyrirtækisins. Margs konar aðferðum er hægt að beita við markaðsrannsóknir en ekki verður farið nánar út í þær hér. Einföld aðferð sem virkar mjög vel er að velja 4-10 vefsíður fyrirtækja í svipuðu viðskiptaumhverfi og keyra sömu greining- una í gegnum allar vefsíðurnar. Síðan er tekið saman hvað virkar vel og hvað ekki. Út úr þessu öllu fást mjög verðmætar upplýsingar sem nýttar eru við vefsíðugerðina. Gott að hafa gátlista með öllum þeim upplýsing- um sem ættu að vera komnar upp á yfirborðið á þessu stigi. Dæmi um slíkan lista er að finna á vefsíð- unni www.web-redesign.com -> Aðrar aðferðir Margar aðrar aðferðir hafa reynst vel við upplýsinga- öflun, s.s hugarflugsfundir, úttektir eftir mismunandi forsendum, þrepaskilgreining á rafrænum viðskipt- um og kortlagning á stjórnun þekkingar: • Hugarflugsfundir með stjórnendum og starfs- mönnum Hugarflug er hópaðferð sem notuð er til að ná fram hugmyndum/lausnum um fyrirfram skil- greint viðfangsefni/vandamál. Þátttakendur hugarflugs eru yfirleitt 4-15 manns sem fengnir eru til að koma með eins margar hugmyndir og mögulegt er um viðfangsefnið. Þessi aðferð virk- ar mjög vel með starfsmannakönnuninni. • Úttektir á vefum, kerfum og vinnuferlum eftir mismunandi forsendum Hægt er að framkvæma margs konar úttektir á tækni- og viðskiptaumhverfi fyrirtækisins. For- sendur úttektar geta verið: • Hagkvæmni • Öryggi • Tengsl vefsins við gagnagrunna og bakvinnslu- kerfi • Hraði og afkastageta grunna • Notagildi • Þrepaskilgreining á rafrænum viðskiptum Oft hefur verið talað um fjórar kynslóðir eða fjögur þrep sem fyrirtæki þurfa að fara í gegnum í átt að rafrænum viðskiptum. Þessi greining hefur aðstoðað stjórnendur fyrirtækja við að staðsetja sig í vefvæðingunni. 1. þrep - Fyrirtæki á fyrsta þrepi hefur vef sem eingöngu er notaður til að kynna fyrirtækið. Þessir vefir eru oft kallaðir nafnspjaldavefir. 2. þrep - Hér er fyrirtækið farið að nýta tölvu- póst mikið til að eiga samskipti út á við og einhver gagnvirkni er á síðunni. Á vef fyrir- tækisins er nú að finna meiri upplýsingar um fyrirtækið eins og nákvæmar vörulýsingar. Vefurinn er notaður til markaðssetningar. 3. þrep - Fyrirtækið býður upp á að panta vöru og greiða í gegnum Netið. Innri vefur er til staðar. Netið er orðið stjórntæki sem allir starfsmenn fyrirtækisins geta nýtt sér. 4. þrep - Fyrirtækið getur nýtt sér rafræn við- skipti með fullri samþættingu milli tölvukerfa fyrirtækisins og viðskiptavinarins. Þannig næst hámarks hagræðing innan fyrirtækisins. • Þekkingarstjórnun Kortlagning á stjórnun þekkingar er aðferð sem kennd er við þekkingarstjórnun (e. Knowledge Management). Upplýsingaflæði, skjalastjórnun, ferlar og tæknimál eru metin eftir ákveðnum skilgreiningum og síðan staðsett á ákveðnum þrepum líkt og hér að ofan. Útskýringar Þegar upplýsingaöflun og greiningu er lokið er hægt að einbeita sér að framsetningu á upplýsingunum. -> Markmiðssetning Meginmarkmið og undirmarkmið sett fram. Leitað er svara við spurningunni, hvers vegna er verið að end- urhanna vefinn eða búa til nýjan? Á þessi stigi er alls ekki verið að horfa á það hvernig ætlunin er að fram- kvæma breytingarnar á síðunni. Með því að rýna í starfsmannakönnunina er fundið út hver helstu markmið vefsins verða. Dæmi um meginmarkmið eru: • Auka heimsóknir á vefinn • Auka sölu BÓKASAFNIÐ 27. ÁRG. 2003 19
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.