Bókasafnið


Bókasafnið - 01.01.2003, Page 22

Bókasafnið - 01.01.2003, Page 22
• Leggja áherslu á ákveðna framleiðslu eða þjón- ustu • Búa til gagnvirkan og innihaldsríkan vef • Minnka álag á þjónustuborð • Auka sýnileika vöru og þjónustu Markmiðin þarf að flokka eftir mikilvægi og skil- greina hvernig þau eru mælanleg. -> Verkefnayfirlit Verkefnayfirlit er stutt skýrsla alls ekki meira en 1-2 blaðsíður sem inniheldur samantekt á verkefninu, niðurstöður frá upplýsingaöflun, markmiðssetningar og undirskrift verkkaupa. Þetta er stutt og hnitmiðuð skýrsla sem gefur tóninn fyrir verkefnið án teikninga og nákvæmra útlistanna. Áætlanir Nú er komið að því að móta allar greiningar, skrá- setja/skjala þær og fá undirskrift verkkaupa. í þess- um áfanga er m.a. framkvæmdaáætlun með tíma- vörðum, verkaskipting, vinnusvæði verkefnisins, hvaða prófanir á að nota og hvernig skjölun verk- efnisins er háttað. -> Verkefnastjórnun Kostnaður, tímavörður, tímaskráning og vinnusvæði verkefnisins eru allt hlutir sem falla undir verkefna- stjórnun. Kostnaðaráætlanir í vefsíðugerð geta verið mjög vandasamar. Einnig er oft erfitt að áætla hve langan tíma hvert verk tekur. Reynslan hefur sýnt að flest verkefni í vefsíðugerð taka lengri tíma en áætlað er í byrjun. Með því að hafa góða og skýra afhendingar- og verkefnaáætlun, áhættugreiningu og undirskrift verkkaupa minnka líkur á að verktaki þurfi að taka á sig óþarfa kostnað. Gera má ráð fyrir að verkkaupi skipti um skoðun mörgum sinnum á hönnunartíma- bilinu. Því þarf stöðugt að vera endurskoða kostnað- aráætlanir. Til að fá skýra mynd af ábyrgðarsviði hvers þátt- takanda, tímavörðum og heildaryfirliti yfir tíma- skipulag hvers verkþáttar er hægt að nota hugbúnað eins og Microsoft Project eða sambærilegan hugbún- að. Fyrirtæki nota mjög mismunandi aðferðir við að skrá niður vinnutíma starfsmanna. Sum fyrirtæki hafa tímaskráningu í bókhaldskerfinu sínu og önnur tengja skráningu hópvinnukerfi fyrirtækisins. Sama má segja um úthlutun verkefna og verkefnastjórnun- arhugbúnað. Flestir stjórnendur eru þó sammála að einhvers konar vinnusvæði á vefnum eða svæði sem eingöngu meðlimir verkefnisins hafa aðgang að sé besti kosturinn við verkefnastjórnun í hugbúnaðar- gerð. í stærri verkefnum er oft beitt sérstakri verkefna- stjórnunaraðferð til að mynda ákveðna yfirbyggingu yfir verkefnið. Ráðinn er verkefnastjóri sem stjórnar vinnuhópum og samskiptum verkkaupa, verktaka og annarra hagsmunaaðila. -*■ Verkefnaáætlun Verkefnaáætlun er skýrsla sem er mun nákvæmari en verkefnayfirlitið. í henni er t.d. tekið á því að vef- urinn skal vera 25 síður og verkinu lokið eftir tvo mánuði. Undirflokkar í verkefnaáætluninni eru: • Verkefnalýsing • Verkefnayfirlit (úr kaflanum Útskýringar) • Yfirlit yfir kostnaðar- og framkvæmdaáætlun • Notendahópar • Prófanir • Forsendur og ábyrgð • Afhendingaráætlun • Undirskrift -> Hlutverkaskipan Helstu hlutverk eða störf sem hægt er að nefna við vefsíðugerð eru: • Verkefnastjóri (e. Project Manager) • Upplýsingahönnuður (e. Information Designer) • Gæðastjóri (e. QA Lead) • Notendasérfræðingur (e. Usability Lead) • Framleiðslustjóri (e. Production Lead) • Hönnuður (e. Visual Designer) • Efnisstjóri (e. Content Manager) • Forritari/tækniráðgjafi (e. Programmer) í sumum verkefnum getur getur t.d. sami aðilinn verið notendasérfræðingur og gæðastjóri. Þeir sem sjá um hönnun og forritun eiga alls ekki að vera í eftirlitsstörfum eða framkvæma prófanir. -> Notendaprófanir Aðalmarkmiðið fyrir endurhönnun á vefsíðum ætti fyrst og fremst að vera að gera hana notendavænni. Notendaprófanir eiga að vera byggðar inn í fram- kvæmdaáætlun verkefnisins. Reglulegar prófanir með notendum eru nauðsynlegar yfir allt hönnunar- ferlið til að sjá hvort verkefni sé á réttri braut og hvað má gera betur. Aðrar aðferðir sem hægt er að nota eru t.d. að senda könnun í tölvupósti til viðskiptavina og stofna rýnihópa (e. focus group). Nóg er að fram- kvæma notendaprófanir á litlum hópi manna, t.d. 1-5 manns. Nytsemismæling er aðferð sem miðar að því að bæta hönnun viðmóts með því að safna gögnum um notendur. Lögð er áhersla á að safna gögnum um not- andann með því að fylgjast með hvernig samskipti hans við kerfið ganga. Notendur eru hvattir til að „hugsa upphátt" en 20 BÓKASAFNIÐ 27. ÁRG. 2003

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.