Bókasafnið - 01.01.2003, Síða 23
niðurstöðurnar byggjast bæði á tölfræðiupplýsingum
og skriflegri samantekt.
í tímaritinu Computers in Libraries, nóvember/des-
ember-hefti 2002, eru þrjár áhugaverðar greinar sem
fjalla um notendaprófanir og úttektir á vefjum bóka-
safna.
->• Upphafsfundur
Öll verkefni þurfa að hafa upphafsfund eða einhvers
konar samkomu þar sem verkinu er formlega ýtt úr
vör. Meginmarkmiðið með fundinum er að allir sem
koma að verkefninu hittist augliti til auglitis og verk-
efnastjóri kynnir síðan verkefnaáætlunina og
ábyrgðasvið hvers og eins.
Hér með líkur fyrsta áfanga í grunnferlinu.
Ráðgjafar
Við hugbúnaðargerð eru oftast tveir hópar í aðalhlut-
verkum en það eru viðskiptavinir og þróunaraðilar.
Viðskiptavini er síðan hægt að flokka niður í notend-
ur og eigendur kerfa. Hagsmunir notenda og eigenda
kerfa/vefja eiga það til að fara ekki alltaf saman.
Þróunaraðilar geta verið margir en meginhópar
eru greinendur, hönnuðir og forritarar. Talið er að
meginorsakir ,,slysa“ við kerfisgerð tengist oftast
samskiptum hagsmunaaðila en ekki kerfum eða
tækni.
Fyrirtæki eru oft í vandræðum með að velja ráð-
gjafa við þróun og skipulagningu á vefsíðum sínum.
Til að fá betri yfirsýn yfir þá ráðgjöf sem í boði er á
þessu sviði getum við greint þjónustuaðila niður í
nokkra flokka:
• Ráðgjafafýrirtæki
Áhersla á markmiðasetningar og stefnumótun
út frá viðskiptaferlum.
• Rannsókna- og greiningaraðilar
Símakannanir, notendaprófanir og óháðar
rannsóknir.
• Vef- og auglýsingastofur
Greining, þróun og hönnun á vefsíðum. Oft er
mikil áhersla lögð á útlitshönnun.
• Hugbúnaðarhús
Greining, þróun og hönnun á vefsíðum með
áherslu á gagnagrunnstengingar og vefverslan-
ir.
Dreamweaver MX
Starfsmönnum lítilla fyrirtækja vex það oft í augum
að þurfa leita til utanaðkomandi ráðgjafa- eða hug-
búnaðarfyrirtækja við vefsmíði. í dag er mjög auðvelt
fyrir smærri fyrirtæki að setja upp góða gagnvirka
vefsíðu með litlum tilkostnaði. Vefhönnunarforritið
Macromedia Dreamweaver MX er t.d. orðið mjög
fullkomið og aðgengilegt fyrir leikmenn eða fólk með
lágmarkskunnáttu í HTML. Hægt er að tengja forritið
við lítinn Access gagnagrunn t.d. fyrir umsýslu frétta
og notendanafna og þannig blásið lífi í vefi. Ekki er
alltaf nauðsynlegt að fjárfesta í dýrum vefumsjónar-
tólum. Ef við skoðum fyrirtækjavefi fyrir lítil og
meðalstór fyrirtæki sjáum við oft sömu uppbygging-
una og sömu virknina:
• Fréttatengt efni í miðdálki á forsíðu
• Logo efst í vinstra horni
• Upplýsingar um starfsemi fyrirtækisins
• Aðgangsstýringu fyrir notendur eða starfs-
menn
• Leit
• Skoðanakannanir
• Spurt og svarað
• Hjálp
• Veftré
• Tölvupóst
• Eyðublöð
Auðvitað eru vefsíður oft mjög mismunandi bæði í
útliti og virkni. Hvort sem um er að ræða lítil eða stór
fyrirtæki þá er nauðsynlegt að hafa gott ferli til að
fara eftir því vefsíða sem byggð er á einhverju sem
fólk telur sig hafa á tilfinningunni mun ekki auka
viðskipti fyrirtækisins.
Gott að hafa í huga ...
• Hugsaðu áður en þú framkvæmir
Ekki setja upp vefsíðu bara vegna þess að allir
aðrir eru með síðu.
• Hvað virkar á núverandi síðu og hvað virkar
ekki
Skoðaðu fyrirspurnir hjá þjónustuborðinu og í
tölvupósti. Gerðu notendaprófanir á vefnum
frekar en að draga ályktarnir byggðar á tilfinn-
ingalegu mati.
• Skoðaðu vefi samkeppnisfýrirtækja
Hvernig er þinn vefur frábrugðinn vefsíðum á
sama sviði?
• Hafðu núverandi notendur þína með í að hanna
síðuna
Ekki skella fram óvæntum breytingum á síðunni
án útskýringa. Segðu greinilega frá því hvers
vegna og hvenær breytingar verða gerðar á
síðunni.
• Hannaðu síðuna með notendur í huga, ekki
fjárfesta
Ekki láta hagsmuni auglýsenda og fjárfesta ná
yfirhöndinni á síðunni. Finndu út hvaða hópar
nota síðuna og hvernig þarfir þeirra samræmast
stefnu fyrirtækisins.
• Hafðu tækniráðgjafa með frá byrjun
Ráðfærðu þig við HTML-forritara og gagna-
grunnsérfræðinga strax í upphafi. Þannig færðu
strax á tilfinninguna hvað er mögulegt að gera
og hvað ekki. Einnig færðu yfirsýn yfir kostnað.
BÓKASAFNIÐ 27. ÁRG. 2003
21