Bókasafnið


Bókasafnið - 01.01.2003, Side 29

Bókasafnið - 01.01.2003, Side 29
stefnumörkun. í ljós kemur að starfsfólk miðlar upp- lýsingum í auknum mæli og að staða stjórnenda hefur breytst þar sem þeir stjórna nú starfsfólki sem oft hefur miklu meiri sérþekkingu en þeir. Þekkingar- stjórnun virðist koma að bestum notum í umhverfi þar sem góður liðsandi er fyrir hendi og traust ríkir milli starfsmanna. Merkja má aukið samstarf við einkageirann, háskólasamfélagið, ráðgjafa og alþjóða- samtök m.a. til að nálgast upplýsingar.9 í slensku ráðuneytin standa sig vel og ef löndin eru borin saman er ísland í efsta flokki ásamt Frakklandi, Svíþjóð, Finnlandi og Kanada. Talið að innri menning (sambærileg við fyrirtækjamenningu) ráðuneyta þessara landa valdi því að þau lendi í efstu sætunum. Þau búa yfir þróuðum tölvukerfum, skipulag er fast- mótað en sveigjanlegt, stjórnvöld njóta trausts borg- aranna, öryggi og festa ríkir í stjórnkerfinu og ekki er mikið um grundvallarbreytingar. Niðurstöður könnunarinnar staðfesta að íslensku ráðuneytin standa sig vel á sviði upplýsingatækni og í skráningu og miðlun alls kyns upplýsinga rafrænt. Þá er ýmiskonar stefnumótunarvinna vel á veg kom- in. Þessa sér t.d. stað í sífellt viðameiri upplýsingagjöf á stjórnarráðsvefnum, sókn á sviði rafrænnar stjórn- sýslu og tilraunum með rafrænar undirskriftir, raf- rænum framtölum, veftolli, rafrænu markaðstorgi ríkisins o.fl. Framtíðarsýn Ef reynt er að skyggnast fram í tímann og skoða stjórnsýslu upplýsingaaldarinnar eru fræðimenn sammála um að borgarinn eða einstaklingurinn, og þjónusta við hann, verði í fyrirrúmi en þó innan hefðbundinna takmarkana um pólitíska yfirstjórn og þröngan fjárhagsramma. Aukin áhersla verður á betra notendaviðmót á þeirri þjónustu sem veitt er og samtengingu upplýsinga þannig að notandinn þurfi ekki að leita á marga staði til að fá úrlausn sinna mála og skilji þær upplýsingar sem honum eru veitt- ar. Stefnt verður að betra aðgengi borgaranna og þar leikur upplýsingatæknin stórt hlutverk. Þá er einnig talið að meiri samtenging og samnýt- ing verði á upplýsingum frá öllum stjórnsýslustigum, ríki, sveitarfélögum og stofnunum. Einnig má líta til lausna þar sem einstaklingurinn, frá vöggu til grafar, er í brennidepli eða ákveðnir hópar fólks eins og til dæmis ellilífeyrisþegar, nemendur, fatlaðir o.s.frv. Dæmi um slíka samtenginu, sem er að birtast okkur um þessar mundir, eru t.d. auknar upplýsingar á skattframtölum, vefir opinberra stofnana og jafnvel heildstæðir opinberir upplýsingavefir eins og verið er að þróa á Norðurlöndum og í Bretlandi. Prentaðar heimildir: Ásta Þorleifsdóttir: Mat á þekkingarverðmætum. Dropinn 9 (1) 2002. Bls. 1—6. Finansministeriet. Videnstyring og vedenregnskaber i staten. Kbh. 2000. Milner, Eileen M.: Managing lnformation and Knowldge in the Public Sector. London, Routledge, 2000. Óprentaðar heimildir: Fjármálaráðuneytið. Þekkingarstjórnun í fjármálaráðuneyt- inu : mannauður, skipulagsaður og samskiptaauður : skýrsla vinnuhóps um upplýsinga- og þekkingarstjórnun um stefnu, markmið og leiðir. Desember 2002. Menntamálaráðuneytið. Breytt starfsumhverfi : skýrsla vinnuhópa um breytt starfsumhverfi. Ágúst 2002. OECD. Public Governance and Territorial Development Directorate, Public Management Committee: Conclusions from the results of the survey of Knowledge Management practices for ministeries/departments/agencies of central government in OECD member countries : draft report for discussion. GOV/PUMA/HRM (2003)2. February 3-4 2003. Outcome: Könnun fyrir fjármálaráðuneytið. Rv. júní 2002. Rafrænar heimildir: ísland framarlega í þekkingarstjórnun. fjr.is : vefrit fjár- málaráðuneytisins. Febr. 2003. http://fjarmalaraduneyti.is /interpro/fjr/fjr.nsf/pages/fjris.html Menntagátt. http://www.menntagatt.is OECD. http://wwwoecd.org Stjórnarráðsvefurinn. http://www.stjr.is eða http://www. raduneyti.is ORÐ ORÐ í EYRA Hefur nú til sölu úrval hljóðbóka af ýmsu tagi, t'yrir börn og fullorðna. Á þessu ári koma út nýjar og spennandi bækur. Fylgist með tilkynningum frá ORÐI í EYRA, Hljóðbókaútgáfu Blindrabókasafns íslands. Upplýsingasími 564-4222 Nett'ang: ordieyra@bbi.is BÓKASAFNIÐ 27. ÁRG. 2003 27

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.