Bókasafnið - 01.01.2003, Qupperneq 29
stefnumörkun. í ljós kemur að starfsfólk miðlar upp-
lýsingum í auknum mæli og að staða stjórnenda
hefur breytst þar sem þeir stjórna nú starfsfólki sem
oft hefur miklu meiri sérþekkingu en þeir. Þekkingar-
stjórnun virðist koma að bestum notum í umhverfi
þar sem góður liðsandi er fyrir hendi og traust ríkir
milli starfsmanna. Merkja má aukið samstarf við
einkageirann, háskólasamfélagið, ráðgjafa og alþjóða-
samtök m.a. til að nálgast upplýsingar.9
í slensku ráðuneytin standa sig vel og ef löndin eru
borin saman er ísland í efsta flokki ásamt Frakklandi,
Svíþjóð, Finnlandi og Kanada. Talið að innri menning
(sambærileg við fyrirtækjamenningu) ráðuneyta
þessara landa valdi því að þau lendi í efstu sætunum.
Þau búa yfir þróuðum tölvukerfum, skipulag er fast-
mótað en sveigjanlegt, stjórnvöld njóta trausts borg-
aranna, öryggi og festa ríkir í stjórnkerfinu og ekki er
mikið um grundvallarbreytingar.
Niðurstöður könnunarinnar staðfesta að íslensku
ráðuneytin standa sig vel á sviði upplýsingatækni og
í skráningu og miðlun alls kyns upplýsinga rafrænt.
Þá er ýmiskonar stefnumótunarvinna vel á veg kom-
in. Þessa sér t.d. stað í sífellt viðameiri upplýsingagjöf
á stjórnarráðsvefnum, sókn á sviði rafrænnar stjórn-
sýslu og tilraunum með rafrænar undirskriftir, raf-
rænum framtölum, veftolli, rafrænu markaðstorgi
ríkisins o.fl.
Framtíðarsýn
Ef reynt er að skyggnast fram í tímann og skoða
stjórnsýslu upplýsingaaldarinnar eru fræðimenn
sammála um að borgarinn eða einstaklingurinn, og
þjónusta við hann, verði í fyrirrúmi en þó innan
hefðbundinna takmarkana um pólitíska yfirstjórn og
þröngan fjárhagsramma. Aukin áhersla verður á
betra notendaviðmót á þeirri þjónustu sem veitt er og
samtengingu upplýsinga þannig að notandinn þurfi
ekki að leita á marga staði til að fá úrlausn sinna
mála og skilji þær upplýsingar sem honum eru veitt-
ar. Stefnt verður að betra aðgengi borgaranna og þar
leikur upplýsingatæknin stórt hlutverk.
Þá er einnig talið að meiri samtenging og samnýt-
ing verði á upplýsingum frá öllum stjórnsýslustigum,
ríki, sveitarfélögum og stofnunum. Einnig má líta til
lausna þar sem einstaklingurinn, frá vöggu til grafar,
er í brennidepli eða ákveðnir hópar fólks eins og til
dæmis ellilífeyrisþegar, nemendur, fatlaðir o.s.frv.
Dæmi um slíka samtenginu, sem er að birtast okkur
um þessar mundir, eru t.d. auknar upplýsingar á
skattframtölum, vefir opinberra stofnana og jafnvel
heildstæðir opinberir upplýsingavefir eins og verið er
að þróa á Norðurlöndum og í Bretlandi.
Prentaðar heimildir:
Ásta Þorleifsdóttir: Mat á þekkingarverðmætum. Dropinn 9
(1) 2002. Bls. 1—6.
Finansministeriet. Videnstyring og vedenregnskaber i staten.
Kbh. 2000.
Milner, Eileen M.: Managing lnformation and Knowldge in the
Public Sector. London, Routledge, 2000.
Óprentaðar heimildir:
Fjármálaráðuneytið. Þekkingarstjórnun í fjármálaráðuneyt-
inu : mannauður, skipulagsaður og samskiptaauður :
skýrsla vinnuhóps um upplýsinga- og þekkingarstjórnun
um stefnu, markmið og leiðir. Desember 2002.
Menntamálaráðuneytið. Breytt starfsumhverfi : skýrsla
vinnuhópa um breytt starfsumhverfi. Ágúst 2002.
OECD. Public Governance and Territorial Development
Directorate, Public Management Committee: Conclusions
from the results of the survey of Knowledge Management
practices for ministeries/departments/agencies of central
government in OECD member countries : draft report for
discussion. GOV/PUMA/HRM (2003)2. February 3-4 2003.
Outcome: Könnun fyrir fjármálaráðuneytið. Rv. júní 2002.
Rafrænar heimildir:
ísland framarlega í þekkingarstjórnun. fjr.is : vefrit fjár-
málaráðuneytisins. Febr. 2003. http://fjarmalaraduneyti.is
/interpro/fjr/fjr.nsf/pages/fjris.html
Menntagátt. http://www.menntagatt.is
OECD. http://wwwoecd.org
Stjórnarráðsvefurinn. http://www.stjr.is eða http://www.
raduneyti.is
ORÐ
ORÐ í EYRA
Hefur nú til sölu úrval hljóðbóka af
ýmsu tagi, t'yrir börn og fullorðna.
Á þessu ári koma út
nýjar og spennandi bækur.
Fylgist með tilkynningum frá ORÐI í
EYRA, Hljóðbókaútgáfu
Blindrabókasafns íslands.
Upplýsingasími 564-4222
Nett'ang: ordieyra@bbi.is
BÓKASAFNIÐ 27. ÁRG. 2003
27