Bókasafnið - 01.01.2003, Síða 49
Þórdís T. Þórarinsdóttir
Stefnumörkun í lyklun á bóka-
söfnum og upplýsinga-
miðstöðvum á íslandi
Inngangur
í lok níunda áratugar 20. aldar hófst tölvuvæðing
bókasafna hér á landi fyrir alvöru.1 Þar sem tölvu-
vædd skráning safnkosts bauð upp á miklu meiri leit-
armöguleika en voru fyrir hendi í spjaldskránum var
með hliðsjón af breyttum aðstæðum farið að huga að
lyklun gagna á íslenskum bókasöfnum með mögu-
leika tölvutækninnar í huga. í september 1990 hélt
undirrituð fyrirlestur sem nefndist /slensk efnisorða-
skrá2 á ráðstefnu um íslenska bókfræði sem haldin
var á Akureyri. Þar var meðal annars fjallað um staðal
um heimildaskráningu, þ.e. leiðbeiningar um qerð og
þróun kerfisbundinna efnisorðaskráa á einu tungumáli,
sem flokkunarnefnd bókasafna vann þá að þýðingu á
og gefinn var út árið eftir sem ÍST 90.3 í fyrirlestrinum
var gert ráð fyrir að gefnar yrðu út leiðbeiningar um
vinnuaðferðir við gerð íslenskrar efnisorðaskrár og
ennfremur að flokkunarnefnd stýrði samantekt ís-
lenskrar efnisorðaskrár sem stuðlaði að samræm-
ingu í lyklun milli safna, auðveldaði samvinnu þeirra
og dreifingu upplýsinga í framtíðinni. Mælt var með
að gefin yrði út íslensk efnisorðskrá hið fýrsta og
þannig skapaður traustur grundvöllur „til að hægt
verði að vinna markvisst að íslenskri efnisorðaskrá
þannig að bókaverðir og bókasafnsnotendur megi
njóta hennar svo fljótt sem auðið er.“4 Er skemmst frá
því að segja að ekki varð af því að flokkunarnefnd
stæði fyrir samantekt og útgáfu íslenskrar efnisorða-
skrár. Nefndin þýddi hins vegar annan staðal um
heimildaskráningu, þ.e. um aðferðir við athugun heim-
ilda, greiningu á efni þeirra og val efnisorða, sem gefinn
var út árið 19945 en eftir það hefur flokkunarnefnd
bókasafna ekki verið kölluð saman.
Fyrstu aðgerðirnar til samræmingar á sviði lykl-
unar hér á landi voru að sumarið 1992 var gefin út
Kerfisbundin efnisorðaskrá (e. thesaurusj sem greinar-
höfundur tók saman ásamt Margréti Loftsdóttur.
Vinnan við skrána hófst árið 1990 með því markmiði
að bæta úr brýnni þörf fyrir staðlaða kerfisbundna
efnisorðaskrá sem einkum skapaðist við tölvuvæð-
ingu safna. Efnisorðaskráin hefur alls verið gefm út
þrisvar, 2. útgáfa kom árið 1996 og sú þriðja 2001 und-
ir titlinum Kerfisbundinn efnisorðalykillfyrir bókasöfn og
upplýsingamiðstöðvar.6 Eftir fyrstu útgáfuna gengu
fulltrúar, skráningarráð, notendafélags Fengs
(DOBIS/LIBIS) til liðs við höfunda um þróun skrár-
innar7 sem skapaði breiðari grundvöll og skipti
sköpum við þróun hennar. Markmið skráningarráðs
var að tryggja samræmi í lyklun í gagnagrunninum
Feng. Mörg bókasöfn landsins styðjast nú við Kerfis-
bundna efnisorðalykilinn við lyklun safnkosts. Ennþá er
skráin sú eina sinnar tegundar sem gefin hefur verið
út og aðgengileg er hér á landi. Lykillinn er almenn
kerfisbundin efnisorðaskrá sem sérefnisorðaskrár
gætu tengst. í inngangi8 er uppbyggingu hennar og
notkun lýst og hvaða aðferðum skuli beita við að
byggja upp ný efnisorð sem falla að skránni og verður
henni ekki lýst nánar hér. Við uppbyggingu efnisorða-
lykilsins er stuðst við staðalinn ÍST 90.
Nokkur söfn, sem notað hafa Gegni (LIBERTAS-
kerfið), sóttu árið 2000 um styrk til að hefja gerð
efnisorðaskrár. Veittur hefur verið 6,5 milljón króna
styrkur til verkefnisins „að samræma efnisorð í Gegni
og efnisorð í Kerfisbundnum efnisorðalykli"9 sem nefnd-
ur var hér að framan. Verkefnið er farið af stað en
ekkert hefur enn þá verið gefið út eða gert aðgengi-
legt á annan hátt en stefnt er að því að efnisorða-
lykillinn verði aðgengilegur á Netinu í framtíðinni.
Nú fyrri hluta ársins 2003 verður nýi Gegnir (Aleph
500 kerfið) opnaður en það er landskerfi íslenskra
bókasafna sem leysir meðal annars gamla Gegni og
Feng af hólmi. Þar verða sameinaðar skráningarupp-
lýsingar safnanna og íslensk söfn eignast sína fyrstu
heildrænu samskrá. Fengur var bókasafnskerfi um 70
almennings- skóla- og rannsóknarbókasafna en í
gamla Gegni var, auk þess að vera heimaskrá 11
aðildarsafna,10 vísir að samskrá sem lokað var í októ-
ber 2001 þegar hætt var að taka við bókfræðilegum
upplýsingum í skrána.11 Gegnir var aðgengilegur í
gegnum Netið án gjalds og hægt var um tíma að
kaupa áskrift að Feng.
Áríðandi er að tryggja markvissar heimildaleitir í
nýja bókasafnskerfinu og samræma lyklunaraðferðir
allra aðildarsafnanna. Stefnt er að því að 3. útg. Kerfis-
BÓKASAFNIÐ 27. ÁRG. 2003
47