Bókasafnið


Bókasafnið - 01.01.2003, Síða 54

Bókasafnið - 01.01.2003, Síða 54
Samvinna, sem hófst árið 1997 meðal þjóðbóka- safna í þýskumcelandi Iöndum Európu, leiddi til þess að öll löndin nota nú sama efnisorðakerfið (SWD)54 sem upphaflega var þróað í þjóðbókasafni Vestur Þýskalands og styðjast jafnframt við sömu reglurnar um notkun þess (RSWK) sem fyrst komu út árið 1986 eftir fimm ára undirbúningsvinnu hóps sérfræð- inga.55 i athugun er að taka sérefnisorðalykla upp í al- menna efnisorðalykilinn (SWD) sem styðst við rit- hjarl og efnisorðum er bætt við eftir því sem þörf krefur.56 Þá má geta þess að mikill áhugi er á því í Þýskalandi að þýða óstyttu útgáfu Dewey-kerfisins og taka upp notkun þess í landinu sem væri mikil breyt- ing til samræmingar í flokkun því þar í landi hefur nánast hvert bókasafn um sig þróað eigið flokkun- arkerfi. Hjá þeim löndum sem skoðuð voru er þróun efnisorðalykla í höndum þjóðbókasafnanna með full- tingi fagnefnda sem skipuð eru fulltrúum allra safna- tegunda. Áhersla er lögð á að ný efnisorð séu aðeins tekin upp ef þau byggjast á efnisgreiningu tiltekinna rita, þ.e. styðjast við rithjarl. Önnur lönd sem til dæmis er vert að gefa gaum að lyklun hjá eru Frakkland og Pólland en hér verður látið staðar numið að sinni. Af framansögðu má glögglega sjá að á sviði lykl- unar er þróunin hér á landi langt á eftir þeim löndum sem kynnt hafa verið til sögunnar og mikið verkefni bíður bókasafna landsins í samræmingu efnisorða- gjafar, þróun heildarefnisorðalykils sem og sérefnis- lykla og stefnumörkun í lyklun almennt. Þróun íslensks efnisorðalykils og stefnumótun um lyklun hér á landi Eins og áður var drepið á hefur enn því miður hvorki verið mótuð heildstæð stefna um lyklunaraðferðir á bókasöfnum og upplýsingasmiðstöðvum hér á landi né verið samstaða um að öll söfn byggðu á Kerfis- bundna efnisorðalyklinum, tækju þátt í þróun hans og notkun sem og mótun heildarstefnu í lyklun gagna á söfnunum. Leiða má að því nokkur rök að Lands- bókasafn íslands - Háskólabókasafn hefði átt að hafa forgöngu um málið. í 15. lið 7. gr. laga um safnið frá árinu 1994 segir að hlutverk bókasafnsins sé m.a. „Að stuðla að samræmingu starfshátta í íslenskum bókasöfnum, veita þeim faglega ráðgjöf og eiga við þau sem víðtækast samstarf."57 í lögum um al- menningsbókasöfn frá árinu 1997 er enn frekar hnykkt á þessari hugsun en þar segir í 11. grein: „Landsbókasafn íslands - Háskólabókasafn stuðlar A EIJNUM STAÐ! Offset ehf. býður hraðþjónustu í stafrænni prentun, sem hentar mjög vel í nútímafyrirtækjum. Helstu kostirnir eru að ákveðið upplag er prentað í upphafi, t.d. 50-2000 stk. og síðan er hægt að panta viðbótarupplag í þeim fjölda sem þörf er á hverju sinni. Þannig er komist hjá þvi að sitja uppi með óþarfa birgðir prentefnis. Nokkur dæmi um þjónustu okkar eru: Allskyns skýrslur, t.d. ársskýrslur - Almenn fjölritun/ljósritun - Skönnun og litgreining myndefnis - Nafnspjöld Hönnun og uppsetning efnis - Teikningaprentun - Teikningaljósritun - Teikningaskönnun Plaköt allt upp í 4m x l,8m Komdu við eða hringdu í síma 545 0000 og fáðu nánari upplýsingar. Sjá einnig á heimasíðu okkar www.offset.is Faxafeni 8 / 108 Reykjavík / Sími: 545 0000 / www.offset.is / e-mail: joi@offset.is NÝ LEIÐ TIL AÐ að samræmingu starfshátta í íslenskum bókasöfn- um, veitir þeim faglega ráðgjöf og á við þau samstarf, svo sem nánar er kveðið á um í lögum um stofnunina og reglugerð á grundvelli þeirra.“58 í 14. gr. reglugerðar um safnið frá árinu 1998 er tekið enn dýpra í árinni en þar segir meðal annars: „Landsbókasafn stuðlar að samvinnu bókasafna í landinu og að samræmingu starfshátta, sbr. 11 gr. laga um almenningsbókasöfn nr. 36/1997. Meðal annars er um að ræða ráðgjafar- starf og útgáfu handbóka, þróun og útgáfu bókfræði- legra staðla, viðhald samskrár í tölvukerfi safnsins og starfrækslu millisafnalána."59 Því miður hefur safnið ekki haft bolmagn til að sinna þeim verkefnum sem tilgreind eru hér að ofan nema að litlu leyti en vert er að geta þess að nú í byrjun árs fór í dreifingu hjá safninu langþráð ný íslensk útgáfa af Dewey-kerfinu sem mikill fengur er að fyrir íslensk bókasöfn, sér- staklega við samræmingu í flokkun þegar valkostir kerfisins eru notaðir fýrir íslenskt efni.60 Eins og áður er getið mælti Vinnuhópar um efnis- orðagjöf með stofnun efnisorðaráðs sem hefði það hlutverk að móta stefnu um efnisorðagjöf í nýja Gegni. Uppbygging sameiginlegs gagnagrunns ís- lenskra bókasafns gerir samræmingu í lyklun heim- ilda nær óhjákvæmilega. Stöðlun efnisorða og sam- kvæmni í notkun þeirra auðveldar notendum mark- visst aðgengi að upplýsingum. Fyrsta skrefið í stefnumótun er að ákveða hvaða aðferðum eigi að beita við að þróa Kerfisbundna efnis- orðalykilinn og eftir hvaða aðferðum eigi að taka upp efnisorð í hann. Meðal annars þarf að marka stefnu um eftirfar- andi atriði varðandi efnisorðalykilinn. 1. Hvort hann styðjist við rithjarl (e. literary warrant) eða hvort um fræðilega uppbyggingu verði að ræða. Við uppbyggingu þeirra efnis- orðalykla, sem drepið var á hér að framan, er stuðst við lyklun á útgefnu efni og þeir þróaðir eftir því sem þörf krefur. 2. Fyrir eitt og sama hugtak ætti að setja fram eitt heiti. Forðast ætti samheitalyklun, þ.e. að dreifa heimildum um sama eða mjög svipað efni á mismunandi samheiti eða heiti sem hafa svo líka merkingu að við lyklun er til- hneiging til að nota bæði/öll heitin sem valorð ef þau eru bæði/öll í boði. Ef tiltekin valorð eru ávallt notuð saman við lyklun heimilda er ástæða til að skoða hvort ekki megi velja á milli þeirra þannig að annað verði vikorð en hitt valorð. Samræma þarf núverandi lyklun út frá þessu sjónarmiði. 3. Framsetning og mótun valorðs, til dæmis þarf að ákvarða eftir hvaða reglum á að nota eintölu- og fleirtölumynd efnisorða, einkum valorða. 4. Móta stefnu um eftir hvaða reglum skal leysa samsett heiti upp í frumþætti. Samkvæmt ÍST 9061 er litið þannig á að hvert valorð sé sjálf- stæður leitarlykill sem geti tengst öðru valorði við heimildaleitir en af hagkvæmnisástæðum við heimildaleitir getur þurft að nota samsett valorð. Æskilegt er að skráin skiptist a.m.k. í stafrófsrað- aða framsetningu þar sem færslur (valorð og vikorð) eru í einni stafrófsröð og stigveldisskipta framsetn- ingu þar sem yfirheiti (þ.e. víðasta heiti hvers efnis- sviðs) eru í stafrófsröð og undir því yfirlit yfir valorð hvers stigveldis. Skrá sem þessi þarf að vera í stöð- ugri endurskoðun því stöðugt skapast þörf á heitum fyrir ný hugtök og endurskoðun á eldri heitum verður nauðsynleg vegna viðhorfsbreytinga og þróunar í málnotkun.62 Þá er nauðsynlegt að þær breytingar sem gerðar eru á lyklunarmálinu komi fram í skránni. Aðildarsöfn nýja Gegnis þurfa að eiga þess kost að koma með tillögur um hugtök sem sett yrðu fram á lyklunarmálinu. Ákveða þarf eftir hvaða reglum á að taka ný orð, sem ekki eru í útgefnum efnisorðalykli, upp í efnisorðakerfið. Jafnframt þarf að móta reglur um hvernig beita eigi lyklinum við efnisgreiningu safnkosts og gefa út leiðbeiningar þar að lútandi í handbók. Móta þarf stefnu á sem skýrastan hátt til að tryggja sam- kvæmni hjá þeim sem lykla en hún er mikilvæg til að tryggja áreiðanleika leitarheimta. Samkvæmni þarf að tryggja hjá sama lyklara og hjá öllum lyklurum sem efnisgreina heimildir fyrir gagnagrunninn. Reglurnar þurfa meðal annars að taka til þeirra atriða sem fjallað er um hér að neðan: 1) ítarleiki lyklunar. Ákvarða þarf hámarksfjölda efnisorða sem heimild fær en vissulega fer eftir efnisumfangi hve þörf er á mörgum efnis- Listdansskóli Islands Engjateigi 1-105 Reykjavík BÓKASAFNIÐ 27. ÁRG. 2003 53
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.