Bókasafnið


Bókasafnið - 01.01.2003, Page 60

Bókasafnið - 01.01.2003, Page 60
Auður Styrkársdóttir Kvennasögusafn íslands Kvennasögusafn íslands var stofnað á ný- ársdag árið 1975, á fyrsta degi alþjóðlegs kvennaárs Sameinuðu þjóðanna. á heimili Önnu Sigurðardóttur á Hjarðarhaga 26 í Reykjavík. Anna lagði safninu til húsnæði á eigin heimili og gaf því eigið heimilda- og bókasafn. Hún var forstöðumaður safnsins og lengst af eini starfs- maður þess, en hún lést í janúar 1996. Hér verður gerð nokkur grein fyrir Önnu Sigurðardóttur og því safni sem hún kom á fót, markmiðum þess og fram- tíðaráformum. Anna Sigurðardóttir Anna Sigurðardóttir fæddist að Hvítárbakka í Borgar- firði árið 1908, þriðja barnið í röð tíu barna Sigurðar Þórólfssonar og Ásdísar Margrétar Þorgrímsdóttur. Sigurður átti fyrir eina dóttur á lífi, Kristínu L. Sigurð- ardóttur, er var m.a. þingkona Sjálfstæðisflokksins 1949-1953. Sigurður hafði áður misst eiginkonu og unga dóttur. Sigurður var skólastjóri lýðháskólans á Hvítár- bakka og nutu því systkinin meiri ogbetri menntunar en þá var títt, ekki síst stúlkur. Árið 1920 flutti fjöl- skyldan til Reykjavíkur og gekk Anna í Mýrarhúsa- skóla á Seltjarnarnesi í tvö ár. Þar skipti Anna sér sennilega í fyrsta sinn af jafnréttismálum karla og kvenna. Þannig háttaði að drengir í Mýrarhúsaskóla fengu tvo leikfimitíma í viku en telpur engan. Þetta þótti Önnu og skólasystrum hennar hart og linntu ekki látum fyrr en þær fengu einn leikfimitíma í viku. Anna var síðar við nám í Kvennaskólanum í Reykja- vík árin 1924-1926, dvaldist í Berlín í Þýskalandi 1929- 1930 sem þátíðar „au-pair“ stúlka, og vann síðan ým- is störf fram til 1939. Anna giftist Skúla Þorsteinssyni árið 1938 og fluttu þau til Eskifjarðar árið 1939. Þar fékkst Anna við kennslu en vann einnig á hrepps- skrifstofunni. Anna og Skúli bjuggu á Eskifirði til ársins 1957 er þau fluttu aftur til Reykjavíkur og þá með þrjú börn. Anna segir sjálf að hún hafi fyrir alvöru farið að hugsa um kvenréttindamál við lestur blaðsins Mel- korku er hóf göngu sína árið 1944. Aðstandendur blaðsins vildu hvetja konur til að berjast fyrir réttind- um sínum. Árið 1947 gekk Anna í Kvenréttindafélag íslands. Veturinn 1950 beitti hún sér fyrir stofnun Kvenréttindafélags Eskifjarðar og gegndi formennsku frá stofnun félagsins þar til hún flutti til Reykjavíkur. Árið 1958 hóf hún störf á skrifstofu Kvenréttindafé- lagsins og vann þar til 1964. Anna sat í stjórn fé- lagsins 1959-1969 og sótti einnig fundi erlendis fyrir þess hönd. Þar kynntist hún erlendum kvenréttinda- konum og stóð í bréfaskriftum við margar þeirra. Kvennasögusafn íslands stofnað Anna fór að halda til haga öllu því er rak á fjörur hennar er tengdist sögu kvenna skömmu fyrir 1950. Hún skrifaði niður heimildir og hugdettur og safnaði úrklippum, bókum og tímaritum. Árið 1968 hélt Kvenréttindafélag íslands fund Samtaka norrænna kvenréttindafélaga á Þingvöllum. Þar hélt Karen Westmann Berg, dósent við Uppsalaháskóla, erindi um nýjar rannsóknir í sögu kvenna og sagði m.a. frá kvennasögusafninu í Gautaborg, sem stofnað var árið 1958, en er nú deild í bókasafni Gautaborgarháskóla. Segja má að þessi fyrirlestur hafi orðið Önnu hug- ljómun. Hún ræddi möguleika og fyrirkomulag kvennasögusafns á íslandi oft við bókasafnsfræð- ingana Elsu Miu Einarsdóttur og Svanlaugu Baldurs- dóttur, en þær voru tíðir gestir á heimili hennar. Á nýársdag 1975, fyrsta degi alþjóðlegs kvennaárs, var svo Kvennasögusafn íslands stofnað formlega á heimili Önnu Sigurðardóttur á Hjarðarhaga 26 í Reykjavík, og veitti hún því forstöðu. Anna lagði ekki einungis fram húsnæði til safnsins heldur gaf því einnig eigið heimilda- og bókasafn. Hún var jafn- framt eini starfsmaður safnsins og gegndi starfi for- stöðumanns þar til hún lést í ársbyrjun 1996. Síðar sama ár tókust samningar um flutning safnsins í Þjóðarbókhlöðu. Þar starfar safnið sem sérdeild undir sérstakri stjórn sem í eiga sæti fulltrúar frá Lands- bókasafni, Rannsóknastofu í kvennafræðum og Kvenfélagasambandi íslands, en forstöðumaður heyrir undir landsbókavörð. Markmið Kvennasögusafns Samkvæmt stofnskrá Kvennasögusafns íslands og samningi við Landsbókasafn eru markmið þess að safna og varðveita heimildir og gögn er varða sögu kvenna, svo sem útgefnar bækur, óprentuð handrit, bréf og fundargerðir. Safnið skal auk þess sjá til þess að gögn séu skráð og stuðla að því að skráðar séu heimildir og gögn er varða sögu kvenna og varðveitt 58 BÓKASAFNIÐ 27. ÁRG. 2003

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.