Bókasafnið


Bókasafnið - 01.01.2003, Síða 61

Bókasafnið - 01.01.2003, Síða 61
Auður Styrfeársdóttir, /orstöðumaður Kvennasögusafns íslands, á sferi/sto/u sinni í Þjóðarbófe- hlöðunni. eru annars staðar. Safnið skal einnig greiða fyrir áhugafólki um sögu íslenskra kvenna og veita aðstoð við að afla heimilda og miðla þekkingu um sögu kvenna. í því felst m.a. að gefa út fræðslu- og heimildaskrár. Kvennasögusafni íslands er einnig ætlað að hafa samvinnu við önnur kvennasögusöfn. Samvinnan hefur verið mest við sambærileg söfn á Norðurlönd- unum, KVINFO í Kaupmanna- höfn, Kvinnohistoriska samling- arna í Gautaborg og Kilden í Osló. Forstöðumaður sótti sameigin- legan fund safnanna árið 2001 og voru þar lögð drög að sameigin- legu verkefni um nýju kvenna- hreyfinguna á Norðurlöndum sem birt verður á heimasíðum safnanna. Vinnan hér á landi er hafin og væntanlega mun al- menningur geta séð fyrsta áfangann vorið 2003. Kvennasögusöfn á Norðurlöndunum skiptast á marg- víslegum upplýsingum og er þessi samvinna ómet- anleg fyrir Kvennasögusafn íslands. Starfsemi safnsins Starfsemi safnsins hlýtur ávallt að velta á þeim fjár- munum sem það hefur til ráðstöfunar. Það hefur aðeins einn starfsmann og er hann kostaður af sér- stakri fjárveitingu til safnsins. Forstöðumaður sinnir flokkun og skráningu efnis auk þess að svara fyrir- spurnum sem berast símleiðis, um tölvupóst og frá gestum sem leita til safnsins, en þeir eru fjölmargir, aðallega þó fræðimenn og nemendur á framhalds- skólastigi. Safninu berst töluverður fjöldi bóka og skjala á ári hverju og mörg kvenfélög og kvenfélaga- sambönd hafa komið skjalasöfnum sínum til varan- legrar geymslu hjá Kvennasögusafni. Þetta eykur gildi safnsins fyrir þá fræðimenn sem áhuga hafa á sögu kvenfélaga og samtaka og hreyfinga kvenna. Þrátt fyrir lítið ráðstöfunarfé hefur safninu tekist að gangast fyrir útgáfu á nokkrum ritum síðustu árin. Má þar nefna ritið Ártöl og áfangar í sögu íslenskra kvenna sem kom út árið 1998 í ritstjórn Erlu Huldu Halldórsdóttur og Guðrúnar Dísar Jónatansdóttur. Ritið Kvennaslóðir kom út árið 2001, mikið rit og veg- legt til heiðurs SigríðiTh. Erlendsdóttur sagnfræðingi. Þá gaf safnið út bæklinginn Kvennasöguslóðir í Kvos- inni sumarið 2002, lítið rit um áfangastaði í gamla miðbæ Reykjavíkur þar sem konur hafa komið eða koma við sögu. Það rit er væntanlegt á ensku vorið 2003. Veraldarvefurinn er að mörgu leyti upplýsinga- veita nútímans og sú leið sem yngri kynslóðin fetar fyrst. Því er öllum söfnum nauðsynlegt að koma upp góðum heimasíðum. Kvennasögusafn íslands hefur síðustu misserin lagt aukna áherslu á þennan þátt í starfi safnsins. Á heimasíðuna hafa til að mynda ver- ið settar upplýsingar um íslenskar konur sem lokið hafa doktorsprófi, nöfn þeirra, heiti ritgerðar, dag- setning varnar og háskóla þar sem vörnin fór fram. Þessi skrá er unnin í samvinnu við Önnu Höllu Björg- vinsdóttur á þjóðdeild Landsbókasafns, en þar er sennilega að finna heildstæðustu skrá landsins um íslendinga sem lokið hafa doktorsprófi. Þá er að finna á heimsíðunni nokkra leslista, m.a. um Bríeti Bjarn- héðinsdóttur. Kvennasögusafn fékk Hólmfríði Önnu Baldursdóttur til að safna saman heimildum um sögu íslenskra kvenna og mun afrakstur þeirrar vinnu berast á heimasíðu safnsins á næstu mánuð- um. Skrár og listar af þessu tagi geta létt notendum safnsins leit að ýmsu efni og þá jafnframt dregið úr álagi á starfsfólk Kvennasögusafns og Landsbóka- safns við að hjálpa fólki í heimildaleit. Komið hefur í ljós bæði hér heima og erlendis að þegar skrár hafa verið gerðar aðgengilegar í rafrænu formi hefur eftir- spurnin vaxið mjög eftir viðkomandi heimildum. Verðmæti heimildanna hefur því aukist til muna. Kvennasögusafn íslands hefur staðið fyrir nokkr- um sýningum sem ætlað er að miðla þekkingu um sögu kvenna. Má þar nefna sýningu til minningar um skáld- og listakonuna Ástu Sigurðardóttur árið 2000, og sýningu um ævi og störf Bjargar C. Þorláksson árið 2002. Sýningar safnsins hafa almennt vakið athygli og verið fjölsóttar. Þá hefur safnið gengist fyrir kvöld- vöku í byrjun desembermánaðar ár hvert þar sem BÓKASAFNIÐ 27. ÁRG. 2003 59
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.