Bókasafnið - 01.01.2003, Qupperneq 70
Almennar hugleiðingar
Hér að framan verið fjallað um tæknileg atriði er
varða þetta verkefni en í lokin er rétt að ljúka þessu á
vangaveltum um kosti slíks blaða- og tímaritasafns.
1. „Eitthvað fyrir alla“ - Það er vitað mál að endurgerð
blaða og tímarita mun gagnast ekki aðeins fræði-
mönnum og nemendum heldur einnig almenn-
ingi. Þá er einnig vitað að þessi blöð og tímarit eru
aðeins til á mjög fáum bókasöfnum og þar er að-
gengi að þeim mjög takmarkað. Þá er einnig vitað
að þessar heimildir nýtast mjög mörgum fræða-
sviðum, svo sem í sagnfræði, íslensku (bæði bók-
menntum og málfræði) og ættfræði. Þá þekki ég
það einnig úr starfi mínu sem bókavörður að
almenningur sækir mikið í þessi blöð og tímarit.
2. „Því meira því betra“ - Það efni sem verður gert
aðgengilegt með þessum hætti eru öll íslensk blöð
og tímarit frá öndverðu og fram til 1920 - nálægt
185 titlar eða eitthvað í kringum 250 þúsund
blaðsíður.
3. „Forvarsla til framtíðar“- Þegar öll íslensk blöð og
tímarit hafa verið gerð aðgengileg á Netinu verður
mögulegt að taka frumritin úr umferð og ganga frá
þeim til varanlegrar geymslu við bestu aðstæður
en sum þeirra eru nú þegar í mjög illa farin. Ég vil
einnig geta þess að mikilvægt er að gera við frum-
ritin, bæði áður en þau verða mynduð og seinna
meir þegar þau fara í geymslu.
4. „Aðgengi fyrir alla“ - Hver og einn sem hefur að-
gang að tölvu mun hafa tækifæri til að skoða
blöðin og tímaritin hvar sem hann er staddur og
hvenær sem er: hann þarf aðeins að hafa aðgang
að nettengdri tölvu. Á sama hátt munu margir
geta skoðað sama eintakið í einu og í því felst
tímasparnaður, ekki aðeins fyrir starfsfólk bóka-
safna heldur munu gestir geta afgreitt sig sjálfir
hvenær sem er.
5. „Nýsköpun" - Myndir verða samkvæmt bestu gæð-
um, í lit eða svart-hvítu allt eftir óskum notand-
ans í hvert skipti. Þá verður hægt að blaða í gegn-
um efnið og leita eftir höfundum, titlum greina,
efnisorðum eða sökkva sér ofan í textann með
orðaleit.
6. „Lærdómsrík tilraun" - Að takast á við verkefni sem
þetta - og því má ekki gleyma að fleiri taka þátt í
því - er lærdómsríkt og út frá þeirri reynslu verður
hægt að meta hvort skynsamlegt verði að ráðast í
eitthvað sambærilegt, t.d. Stjórnartíðindi eða
Alþingistíðindi ogblöð frá síðustu áratugum elleg-
ar gamlar bækur frá síðustu öldum.
Samantekt
Tilgangurinn með stafrænni endurgerð á blöðum og
tímaritum er
a. að bjóða tvennskonar aðgang um Netið að blöðum
og tímaritum:
(1) aðgang að efninu sjálfu, þ.e. ritunum
(2) aðgang að innihaldi þeirri, þ.e. að leita að ákveðn-
um orðum eða orðasamböndum, titlum, höfund-
um eða efnisorðum.
b. að bjóða takmarkalaust aðgengi að bókfræði-
grunni og stafrænum endurgerðum sem uppfylla
strangar gæðakröfur.
c. að búa til heildrænt safn af íslenskum blöðum og
tímaritum.
Summary
VESTNORD - digital reproduction of newspapers
and magazines on the Internet
The three national libraries of the West-Nordic countries:
The National and University Library of Iceland, the National
Library of the Faeroe Islands and the National and Public
Library of Greenland are now creating a digital library -
VESTNORD - with historical newspapers and magazines
from the 18th, 19th and 20th centuries (see: www.timarit.is
<http://www. timarit.is/>.) When it is finished, in 2003, it will
incorporate around 300.000 pages. The VESTNORD project
can be divided into four phases or parts: (a) to make a
bibliographical database, (b) to make an image collection, (c)
to make a bulk or collection of text using the OCR-techni-
que, (d) to catalogue the newspaper and magazine articles
and organise them under headings. In the future, all these
phases or parts will work both independently and together
(a-d), forming a searchable, digitized collection of news-
papers and magazines. The idea is as follows: the biblio-
graphical material will form the centre of the database and
provide a framework for the image collection; the article-
database will then be added to this; lastly, the collection of
text which will be made searchable, both by word or by
phrase. In a way, access will be three-dimensional: it will be
possible to browse through the material (images); search by
author, article title or subject; or words and phrases. The
aim of the VESTNORD project is, therefore: (a) to provide
Internet access to historical newspapers and magazine:
access to the material itself; and access to specific parts of
its contents; (b) to allow users unlimited access to the data-
base, providing them with reproductions of the material of
the highest possible standard and (c) to make the digitally
reconstructed material as complete a collection as possible.
68
BÓKASAFNIÐ 27. ARG. 2003