Bókasafnið - 01.01.2003, Qupperneq 72
Stefnuyfirlýsing IFLA
um Netið
Óhindraður aðgangur að upplýsingum er grund-
vallaratriði fyrir frelsi, jafnrétti, aiþjóðlegan
skilning og frið. Þess vegna fullyrðir IFLA -
Alþjóðleg samtök bókavarðafélaga og stofnana
eftirfarandi:
• Vitsmunalegt frelsi er réttur sérhvers einstaklings,
bœði til að hafa og tjá skoðanir og til að leita að og
taka á móti upplýsingum. Þetta er undirstaða lýðrœðis
og jafnframt þungamiðjan í þjónustu bókasafna.
• Frjálst aðgengi að upplýsingum á hvaða formi sem
er og án tillits til landamœra er þungamiðja ábyrgð-
ar starfsstétta bókasafna og upplýsingamiðstöðva.
• Áfeuœði um óhindraðan aðgang að Netinu á bókasöfn-
um og upplýsingamiðstöðvum styður samfélög og
einstaklinga við að öðlastfrelsi, velmegun og þroska.
• Hindranir upplýsingaflœðis œtti aðfjarlœgja, sérstak-
lega þœr sem stuðla að misrétti,fátækt og uonleysi.
Frjálst aðgengi að upplýsingum, Netinu og
bókasöfnum og upplýsingaþjónustu
Bókasöfn og upplýsingamiöstöövar eru öflugar stofn-
anir sem tengja fólk saman með upplýsingaforða frá
víðri veröld og með þeim hugmyndum og skapandi
verkum sem það leitar eftir. Bókasöfn og upplýsinga-
miðstöðvar hafa á boðstólum auðlegð mannlegrar
tjáningar og menningarlega fjölbreytni á hvaða formi
sem er.
Netið gerir einstaklingum og samfélögum um
heim allan kleift, hvort sem um er að ræða í hinum
minnstu og afskekktustu byggðum eða í stærstu
borgum, að hafa jafnan aðgang að upplýsingum fyrir
persónulegan þroska, menntun, hvatningu, eflingu
menningarmála, fjármálastarfsemi og upplýsta þátt-
töku í lýðræðisríki. Allir geta komið á framfæri
áhugamálum sínum, þekkingu og menningu sem
allur heimurinn getur síðan sótt heim.
Bókasöfn og upplýsingamiðstöðvar láta í té
ómissandi aðgang að Netinu. Fyrir suma bjóða þau
fram þægindi, leiðsögn og aðstoð en fyrir aðra eru
þau eini tiltæki aðgangurinn. Þau láta í té búnað til að
vinna bug á hindrunum sem skapast af mismun hvað
varðar fjármagn, tækni og menntun.
Grundvallaratriöi varðandi frjálsan
aðgang að upplýsingum á Netinu
Aðgangur að Netinu og öllum heimildum sem þar er
að finna ætti að vera í samræmi við Mannréttinda-
yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna, einkum 19. grein:
Huer maður skalfrjáls skoðana sinna og að því að láta
þær í Ijós. Felur slíkt frjálsrœði í sér réttindi til þess að
leita, taka við og dreifa upplýsingum og hugmyndum með
hverjum þeim hœtti sem vera skal og án tillits til landa-
mæra.
Hnattræn tenging um Netið býður upp á miðil
sem gerir það kleift að allir geti notið ofangreindra
réttinda. Þar af leiðandi ætti aðgangurinn hvorki að
vera háður neins konar hugmyndafræðilegri, stjórn-
málalegri eða trúarlegri ritskoðun né efnahagslegum
hindrunum.
Bókasöfn og upplýsingamiðstöðvar hafa ennfrem-
ur þá skyldu að þjónusta alla þegna viðkomandi sam-
félags, án tillits til aldurs, kynþáttar, þjóðernis, trúar-
bragða, menningar, stjórnmálaskoðana, líkamlegrar
eða annarrar fötlunar, kyns eða kynhneigðar eða
annarra aðstæðna.
Bókasöfn og upplýsingamiðstöðvar ættu að styðja
þann rétt notenda að leita upplýsinga að eigin vali.
Bókasöfn og upplýsingamiðstöðvar ættu að virða
einkalíf notenda sinna og viðurkenna að heimildir
sem þeir nota eiga að vera trúnaðarmál.
Bókasöfn og upplýsingamiðstöðvar bera ábyrgð á
að auðvelda og stuðla að almennum aðgangi að há-
gæða upplýsingum og fjarskiptum. Notendur ætti að
aðstoða við að ná nauðsynlegri færni og skapa
hentugt umhverfi til þess að nota þær upplýsinga-
veitur og þjónustu, sem þeir hafa valið, á frjálsan og
öruggan hátt.
Til viðbótar við þær fjölmörgu gagnlegu heimildir
sem fáanlegar eru á Netinu, eru sumar rangar, vill-
andi og geta verið móðgandi. Starfsfólk bókasafna
ætti að hafa til reiðu upplýsingar og heimildir fyrir
bókasafnsnotendur til að læra að nota Netið og
rafrænar upplýsingar á skilvirkan og markvissan
hátt. Það ætti á framsækinn hátt að efla og greiða
fyrir áreiðanlegum aðgangi að hágæða netupplýsing-
um fyrir alla notendur sína, þar með talin börn og
ungt fólk.
Sem og önnur grundvallarþjónusta ætti aðgangur
að Netinu á bókasöfnum og upplýsingamiðstöðvum
að vera án endurgjalds.
Útfærsla stefnuyfirlýsingarinnar
IFLA hvetur alþjóðasamfélagið til að styðja þróun að-
gangs að Netinu um heim allan, og sérstaklega í þró-
70
BÓKASAFNIÐ 27. ÁRG. 2003