Bókasafnið


Bókasafnið - 01.01.2003, Page 75

Bókasafnið - 01.01.2003, Page 75
• Að efla lestur og koma heimildum og þjónustu skólasafna á framfæri við skólasamfélagið í heild sinni og ennfremur út fyrir það. Skólasafnið rækir ofangreinda starfsemi með því að marka og þróa stefnu og þjónustu, velja og afla heimilda, sjá fyrir efnislegu og vitsmunalegu aðgengi að viðeigandi heimildum upplýsinga, sjá fyrir aðstöðu til kennslu og ráða þjálfað starfsfólk. Starfsfólk Fagmenntaður skólasafnstjóri er sá starfsmaður sem ber ábyrgð á skipulagningu og stjórn skólasafnsins með aðstoð annarra starfsmanna safnsins og í samvinnu við aðra í skólasamfélaginu og í samstarfi við almenningsbókasöfn og aðrar stofnanir. Hlutverk skólasafnstjóra getur verið mismunandi í samræmi við fjárhagslegt bolmagn, námsskrá og kennsluaðferðir skóla. Það fer einnig eftir fjárhags- stöðu og löggjöf hvers lands. Tiltekin þekkingarsvið eru ómissandi ef skólasafnstjórar eiga að geta þróað og starfrækt skilvirka þjónustu á skólasafni, þ.e. fjár- mála-, bókasafns- og upplýsingastjórnun svo og kennslufræði. í samfélagi þar sem tölvusamskipti aukast stöð- ugt, verða skólasafnstjórar að vera færir um að skipu- leggja og kenna bæði kennurum og nemendum margs konar færni í meðferð upplýsinga. Þess vegna verður að gera skólasafnstjórum kleift að þróa stöðugt faglega færni. Starfsemi og stjórnun Til að tryggja skilvirka og gegnsæja starfsemi er nauðsynlegt: • Að stefna um þjónustu skólasafns sé sett fram og markmið, forgangsröðun og þjónusta í tengsl- um við námskrá skólans skilgreind. • Að skólasafnið sé skipulagt og rekið í samræmi við staðla á fagsviðinu. • Að þjónustan sé aðgengileg öllum í skólasam- félaginu og starfrækt í samræmi við yfirvöld og í nánum tengslum við samfélagið. • Að stuðla að því að safnið starfi í samvinnu við kennara, skólayfirvöld, stjórnendur, foreldra aðra bókasafns- og upplýsingafræðinga og aðra samfélagshópa. Útfærsla stefnuyfirlýsingarinnar Stjórnvöld, fyrir tilstilli þess fagráðuneytis sem fer með menntamál, eru hvött til að þróa stefnumörkun, áætlanir og reglugerðir til að útfæra meginatriði stefnuyfirlýsingarinnar. Stefnuyfirlýsingunni ætti að dreifa til stofnana sem halda uppi grunnnámi og endurmenntun fyrir bókasafns- og upplýsingafræðinga sem og kennara. Þeir sem taka ákvarðanir á landsmælikvarða og í sveitarstjórnum svo og bókasafnasamfélagið í heild sinni eru hér með hvött til að útfæra þá meginþætti sem settir eru fram í stefnuyfirlýsingunni. Stefnuyfirlýsingin um skólasöfn (The School Libr- ary Manifesto) var tekin saman af IFLA (International Federation of Library Associations and Institutions), Alþjóðlegum samtökum bókavarðafélaga og stofnana og staðfest af UNESCO (United Nations Educational, Scientific and Cultural Organization), Menningarmála- stofnun Sameinuðu þjóðanna á Aðalráðstefnu (General Conference) stofnunarinnar í nóvember 1999. Þórdís T. Þórarinsdóttir þýddi ©2002 Upplýsing - Félag bókasafns- og upplýsingafræöa - http:// luiuiu.bofeis.is Menntamálardðuneytið styrkti útgáfu stefnuyfirlýsingar- innar á íslensfeu. BÓKASAFNIÐ 27. ÁRG. 2003 73

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.