Bókasafnið - 01.01.2003, Qupperneq 82
Netfang: bokasafn@seltjarnarnes.is.
Veffang: www.seltjarnarnes.is/bokasafn
Mánud. kl. 12-22, þriðjud.-föstud. kl. 12-19, laugard. (okt,-
apríl) kl. 13-16.
Bókasafn Mosfellsbæjar
Þverholti 2, Mosfellsbæ.
Sími: 566 6822, fax: 566 8114.
Netfang: mhr@mos.is.
Veffang: www.mos.is/bokasafn
Mánud. kl. 12-21, þriðjud.-föstud. kl. 12-19, laugard. (1. sept.
-15. maí) kl. 12-15.
Upplýsingar í síma frá kl. 8.
VESTURLAND
Bókasafn Akraness
Heiðarbraut 40.
Sími: 433 1200, fax: 433 1201.
Netfang: bokasafn@akranes.is.
Veffang: www.akranes.is/bokasafn
Mánud.-fimmtud.. kl. 13-20, föstud. kl. 11-18, laugard. kl.
11-14 (okt.-apríl).
Lesstofa er opin yfir vetrarmánuði kl. 8-19.45 virka daga,
annars á afgreiðslutíma safnsins.
Héraðsbókasafn Borgarfjarðar
Bjamarbraut 4-6, Borgarnesi.
Sími: 430 7200, fax: 430 7209.
Netfang: bokasafn@safnahus.is.
Veffang: www.safnahus.is.
Mánud., miðvikud. og föstud. kl. 13-18, þriðjud. og
fimmtud. kl. 13-20.
Amtsbókasafnið í Stykkishólmi
Bókhlöðustíg 17.
Sími: 438 1281, fax: 438 1081.
Netfang: amtsty@stykkisholmur.is.
Sept.-maí: Mánud.-fimmtud. kl. 15-19, föstud. kl. 13-17.
Júní-ágúst: Mánud. og fimmtud. kl. 15-19.
Bókasafn Snæfellsbæjar
Hjarðartúni 6.
Sími: 436 1507.
Netfang: bokasafn@snb.is
Veffang: www.snb.is/bokasafn.
Mánud.-föstud. kl. 16-18, miðvikud. einnig kl. 20-22.
Sumaropnun auglýst sérstaklega
VESTFIRÐIR
Héraðsbókasafn V-Barðastrandarsýslu
Patreksskóla, sími: 456 1527.
Á BÓKASAFNINU
J.K. Rowling
Harry Potter og fanginn frá Azkaban
(Bjartur 2000)
Harry var brugðið þegar hann leit í glugga bókaverslunarinnar. í stað hinna gullskreyttu galdrabóka á stærð við
gangstéttarhellur sem venjulega voru hafðar til sýnis mátti nú sjá stórt járnbúr hinum megin við glerið. í því
voru um það bil hundrað eintök af bókinni Ógnuœnlega skrímslabókin. Bækurnar glefsuðu og bitu í svo æðis-
gengnum áflogum að rifnar blaðsíðurnar fuku í allar áttir.
Harry dró bókalistann upp úr vasanum og las hann vandlega í fyrsta skipti. Ógnvænlega skrímslabókin var
skráð sem skyldulesning í faginu um umönnun galdraskepna. Nú skildi Harry hvers vegna Hagrid hafði sagt
að bókin ætti eftir að koma að góðum notum. Harry létti; hann hafði nefnilega óttast að Hagrid þyrfti aðstoð
við eitthvað nýtt ógnvekjandi gæludýr.
Þegar Harry gekk inn í Flourish & Blotts hraðaði búðareigandinn sér á móti honum.
„Hogwartskóli?" spurði hann fyrirvaralaust. „Þarftu nýjar bækur?“
„Já,“ sagði Harry. „Mig vantar..."
„Færðu þig“ sagði eigandinnn óþolinmóður og ýtti Harry til hliðar. Hann setti á sig mjög þykka hanska, tók
sér stóran, kræklóttan staf í hönd og stefndi í átt að búrinu með skrímslabókunum.
„Bíddu aðeins," sagði Harry í flýti, „ég á svona bók.“
„Er það?“ Svipur eigandans lýsti gríðarlegum létti. „Guði sé lof. Ég varbitinn fimm sinnum bara núna í morgun...“
Hátt, skerandi hljóð kvað við; tvær skrímslabókanna höfðu náð taki á þeirri þriðju og rifið hana í sundur.
„Hættið þessu! Hættið þessu!" æpti eigandinn og potaði stafnum inn á milli rimlanna til að skilja þær að.
„Þetta er í síðasta skipti sem ég kaupi birgðir af þessum bókum! Þetta er algjör kleppur! Ég hélt að botninum
hefði verið náð þegar við keyptum tvö hundruð eintök af Ósýnilegu huliðsbókinni - þær kostuð heil ósköp og við
fundum þær aldrei... Jæja... var það eitthvað annað sem ég get aðstoðað þig með?“ (2000, s. 39-40)
80
BÓKASAFNIÐ 27. ÁRG. 2003