Bókatíðindi - 01.12.2013, Side 144
142
Fræði og bækur almenns efnis B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 3
Íslensk bragfræði
Ragnar Ingi Aðalsteinsson
í bókinni er fjallað um
regluverkið sem fylgt hefur
íslenskum kveðskap frá önd-
verðu. Þar má nefna hrynj-
andina eða taktinn í brag-
línum, bragliði eða kveður,
rímið sem skreytir braginn og
síðast en ekki síst stuðlasetn-
inguna þar sem nákvæmni
regluverksins nær hámarki
og framstöðuhljóð orðanna
leika aðalhlutverkið. Víða um
Norður-Evrópu var forðum
kveðið eftir þessum brag-
reglum en nú er það helst
í íslenskum kveðskap sem
þær lifa enn góðu lífi. Hinum
bragfræðilegu útskýringum
fylgir mikill fjöldi dæma eftir
ljóðasmiði frá öllum tímum,
rösklega eitt hundrað skáld
og hagyrðinga, konur og
karla, ung skáld og aldin,
þekkt og óþekkt. Þau eru
sálin í bókinni. Án þeirra væri
hún ekki til.
173 bls.
Háskólaútgáfan
ISBN 978-9935-23-015-7
Leiðb.verð: 4.500 kr. Kilja
Íslensk knattspyrna
2013
Víðir Sigurðsson
Allt um íslenska knattspyrnu
2013 í máli og myndum.
Ómissandi í safnið. Nú er
bókin öll í lit.
256 bls.
Bókaútgáfan Tindur
ISBN 9789979653981
Íslensk sönglög með
undirleik
Samant.: Einar Scheving
Nótnabók með nýjum út-
setningum 17 íslenskra söng-
laga fyrir öll laglínuhljóðfæri
en getur einnig nýst söngv-
urum og þeim sem leika á
hljómahljóðfæri eða vilja æfa
spuna. Hvert lag er prentað
í fjórum útgáfum fyrir ólík
hljóðfæri og bókinni fylgir
geisladiskur þar sem lögin
eru leikin með og án laglínu.
Einnig fást viðaukar fyrir ein-
stök hljóðfæri.
74 bls.
Forlagið
ISMN 979-0-9020300-0-7
Óbundin
Íslenska teiknibókin
Guðbjörg Kristjánsdóttir
Formáli: Guðrún Nordal
Einn af höfuðgripum ís-
lenskrar myndlistarsögu
kemur nú loksins út í vand-
aðri útgáfu fyrir almenning.
Byltingakenndar rannsóknir
Guðbjargar Kristjánsdóttur
varpa nýju ljósi á uppruna
Íslensku teiknibókarinnar og
höfunda hennar og bæta við
nýjum kafla í sögu íslenskrar
myndlistar.
184 bls.
Crymogea
ISBN 978-9935-420-32-9
Íslenskur menningar-
arfur
Átta steinhús 18. aldar
Hús skáldanna
Stóru torfbæirnir
Torfkirkjur á Íslandi
Björn G. Björnsson
Þýð.: Anna Yates
Myndir: Björn G. Björnsson
og fleiri
Einstakar bækur um íslenskar
byggingar, koma út á íslensku
og ensku: Fjallað er um hús
þekktra skálda, torfkirkjur,
hin glæsilegu steinhús 18.
aldar og stærstu torfbæina. Í
hverri bók er ríkulegt mynd-
efni, stuttir skýringartextar
og kort sem sýna staðsetn-
ingar bygginganna.
72-78 bls.
Salka
ISBN 978-9935-17-080-4/-078-
1/-082-8/-084-2
Íslenzk silfursmíð
Þór Magnússon
Þór Magnússon, fyrrverandi
þjóðminjavörður, hefur rann-
sakað íslenska silfursmíð um
áratuga skeið. Í tilefni af 150
ára afmæli Þjóðminjasafns
Íslands var ákveðið að gefa
rannsókn hans út á bók. Er
hér að ræða mikinn fróðleik
um íslenska silfursmiði allt frá
miðöldum og fram til tuttug-
ustu aldar og verk þeirra.
Bókinni fylgir gullsmiðatal,
þar sem taldir eru gull- og
silfursmiðir, fæddir fram til
ársins 1950, sem starfað hafa
á Íslandi og smiðir sem fóru
til náms í Danmörku fyrr á
tímum og ílentust þar.
687 bls.
Þjóðminjasafn Íslands
ISBN 978-9979-790-37-2
Leiðb.verð: 18.900 kr.
Við bjóðum
góða þjónustu
Fleiri punktar, sértilboð og öflugar ferðatryggingar
Með nýja American Express kortinu safna viðskiptavinir í Vildarþjónustu Íslandsbanka
punktum að lágmarki tvöfalt hraðar en á öðrum kortum bankans.
Kortinu fylgja líka víðtækar ferðatryggingar og sértilboð
til korthafa American Express.
Kynntu þér Íslandsbankapunktana og nýja
American Express kortið á islandsbanki.is
Nýtt Íslandsbanka
American Express® kort
með tvöfalt fleiri punktum
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Kortið er gefið út af Íslandsbanka í samræmi við veitta heimild frá American Express. American Express er skrásett vörumerki American Express.