Heima er bezt - 01.12.2004, Side 7
Ólafur Þ. Hallgrímsson,
Mælifelli:
Stefán frá Hvítadal
oojólamessujerðin aó ÓJ'elíi
^ ^r><^-^umarið 1995 átti ég
r ^ J leið um Strandasýslu
ásamt fjölskyldu minni.
Leið okkar lá fyrst að Felli í Kolla-
firði, fornu höfuðbóli og kirkjustað.
Kirkjustaðurinn Fell stóð fyrir botni
Kollaijarðar, nokkuð frá sjó, vestan
undir háu og tígulegu fjalli með
klettabeltum, sem bera við himin.
Fjallið nefnist Klakkur.
Núverandi bær á Felli stendur
nokkru neðar, niðri á sléttu túni er
teygir sig nær óslitið niður undir
botn fjarðarins, mikið og fagurt slétt-
lendi.
Skammt framan við Fell, í dálitlu
dalverpi, er svonefndur Svartifoss,
sem sést langt að. Sagnir eru um að
sjófarendur hafi notað hann fyrir mið
áður fyrr.
Nokkru vestar sér inn í mynni
Steinadals, en um Steinadalsheiði
liggur vegur yfir til Gilsljarðar við
Breiðafjörð.
Að Felli skoðuðum við minjar um
kirkju og kirkjugarð, en vel má
greina hvar kirkjan hefur staðið og
mótar fyrir grunni hennar. Virðist
mér að hún hafi snúið dyrum í
vestur, gegnt bænum, sem staðið
hefur þar litlu ofar.
Flinn gamli Fellskirkjugarður er
nokkuð stór, þakinn háum leiðum og
umgirtur torfgarði, sem mér virtist
ótrúlega heillegur. Mikið gras var í
garðinum og því erfitt að átta sig á
legsteinum og krossum, en nokkrir
slíkir sáust þó. í miðjum garðinum
vakti athygli mína legsteinn mikill og
nýlegur. Reyndist það vera legsteinn
Úr Fellskirkjugarði. Legsteinn Stefaníu
yfir Stefaníu Sigríði Stefánsdóttur,
prestsfrú, fyrri konu sr. Arnórs
Arnasonar, er prestur var að Felli
1886-1904, síðar prestur í Flvammi í
Laxárdal.
Stefania Sigríður, sem lést árið
1893, er amma þeirra prestanna sr.
Gunnars Gíslasonar og sr. Arna
Sigurðssonar, og er legsteinninn
reistur af þeim fyrir fáum árum.
Um Fell í Kollafirði segir svo í
bókinni Landið þitt ísland, 1. bindi,
bls. 192:
„Fornt höfuðból og sýslumanns-
setur um skeið. Á Felli var kirkja til
1906, er hún var flutt að Kolla-
ijarðarnesi, útkirkja frá Tröllatungu.
Þar var kirkja helguð með Guði,
Maríu guðsmóður, Maríu Magda-
lenu, Jóhannesi postula og Ólafi
Sigríðar Stefánsdóttur.
Helga Noregskonungi, í kaþólskum
sið.
Prestssetur var á Felli á árunum
1886-1909.
Einna kunnastur ábúenda á Felli
var Halldór Jakobsson (1735-1810),
sýslumaður í Strandasýslu. Hann var
ofstopamaður mikill og drykkfelldur,
enda þráfaldlega vikið úr embætti
fyrir ýmis konar afglöp og
vanrækslu.
Eftir Halldór sýslumann liggja
ýmis merk rit, sum prentuð en önnur
í handriti.”
Eins og hér kernur fram var kirkja
á Felli allt til ársins 1906, er
kirkjurnar að Felli og Tröllatungu í
Steingrímsfirði voru lagðar niður og
sóknir sameinaðar, en kirkja ein
byggð að Kollafjarðarnesi við
Heimaerbezt 535