Heima er bezt - 02.01.2007, Síða 7
Elín Arnadóttir ogjjölskylda: Frá vinstri: EUn, Katrín
Rúnarsdóttir, Rúnar Jónsson, og Svana Osk Rúnarsdótt-
ir. Framan við er Stefán Fannar Rúnarsson.
Anna Sólveig og fjölskylda: Frá vinstri:Magnús Ivar
Steinarsson, Steinar Magnússon, Rósa Sólveig Steinars-
dóttir, Anna Sólveig með Aríönnu.
dóttir og faðir hennar Jón Stefánsson, Stefánssonar Jónssonar,
bónda í Garðshomi á Höfðaströnd, fæddur 1809.
Frá bernskuárum
Við vorum 7 systkinin er upp komust. Einn drengur dó koma-
bam. Elstur var Halldór, þá Kristín, Jónas, Egill, Gísli, Ami
og Helga yngst. Eg ólst því upp í stórum og glöðum systkin-
ahópi. Auk þess voru hér ömmur okkar, Anna og Helga og
oft böm í sveit.
Við bjuggum í torf-timburbæ. Bærinn
stóð nokkuð hátt í brekku, ca. 800 metra
frá veginum.
1950 var flutt í nýtt steinhús er stend-
ur snertispöl ofan þjóðvegar 1. Voru það
mikil umskipti að þurfa ekki að flytja allt
upp á brekkuna. Þá var gamli tíminn, orfíð
og hrífan. Þó var komin hestasláttuvél er
ég man fyrst eftir mér.
Foreldrar minir keyptu Uppsali 1925.
Þá var túnið að mestu kargaþýfi.
I kringum 1930 eignaðist búnaðarfélag
hreppsins dráttarvél er fór um og braut
land til ræktunar. Þá var einnig vinnu-
flokkur á vegum félagsins er fór á milli
bæja og gróf framræsluskurði, en hér var
land fremur blautt, mikið framsig undan
brekkunum.
Túnið stækkaði því jafnt og þétt svo að sláttuvélin naut
sín betur og betur.
Seinna kontu svo rakstrar- og snúningsvélar fýrir hesta.
Hestaflið var notað ffam að 1958 er fyrsta dráttarvélin kom.
Sumum eldri bændum fannst ekki skynsamlegt að slétta svona
úr þúfunum, yfirborðið minnkaði svo mikið.
Það má segja að allt væri í nokkuð föstum skorðum fram
yfir seinni heimsstyrjöld, en þá hélt vélaöldin innreið sína.
Tæknin kom með Kananum. Þá varð bylting í sveitunum sem
ekki sér fyrir endann á. Ég hefi náð í skottið á gamla tímanum
Sólveig Arnadóttir
á þeim árum
þegar þau Arni
kynntust í Lattga-
skóla.
Fjölskyldumynd tekin 1968: Frá vinstri: Árni,
Eyþór, Elín (aftan við), Anna Sólveig (framan
við), Drífa og Sólveig Arnadóttir.
Eyþór Arnason ogfjölskylda: Frá vinstri: Arni Gunnar
Eyþórsson, Ragnheiður Vala Eyþórsdóttir og Sigríður
Gunnarsdóttir. Framan við er Eyþór með Sólveigu Vöku
Eyþórsdóttur.
Heima er bezt 7