Heima er bezt - 02.01.2007, Page 17
Kaupfélag Héraðsbúa, Borgarfirði eystra, kjörbúð.
Mœðgur í Argarði, Borgarfirði eystra. Svandís Geirsdótt-
ir og Brynja Sverrisdóttir, nemandi í skólanum.
húsglugganum, í verstu veðuráttinni. Þennan hlera, sem var
þungur og mikill fyrirferðar, hugðumst við Emil sonur minn,
flytja meðfram vesturhlið hússins og norður fyrir það, til
vamar eldhúsglugganum. Þetta tókst okkur því miður ekki.
Veðrið var svo ofsalegt. Flekann tók úr höndum okkar, og
sáum við hann svífa langt út í hafsauga. Máttum við hrósa
happi, að hann stórslasaði okkur ekki, eða jafnvel drap.
Með hjálp Emils sonar og nágranna, tókst að negla spækj-
ur fyrir eldhúsgluggann. Glerið, sem var tvöfalt, var sem
óðast að springa. Ytra glerið var farið sina leið, og hið innra
tekið að bresta illilega. Hefði þetta ekki tekist, er eins víst,
að vindurinn hefði haft frítt spil og
sundrað íbúðarhúsinu. Hér var mikið í húfi. Sem betur
fer tókst þama að forða miklu tjóni, með raunar frumstæð-
um hætti.
En nú skal vikið að tjóninu mikla á félagsheimilinu, sem
Frá Borgarfirði eystra, bátar við höfnina.
Ulla Sveinsson, fœdd Jacobsen, á unga aldri, eiginkona
Auðuns Braga.
fyrr er getið. Við fylgdumst vel með því, sem þar gerðist,
því að Félagsheimilið Fjarðarborg er beint á móti skólastjó-
rabústaðnum Þórshamri, þar sem við bjuggum.
Við heyrðum, er gluggamir á austurhlið byggingarinnar
brotnuðu hver af öðmm. Lausagrjót og hjam skóf eins og
hráviði og sundraði hverri rúðunni á fætur annarri. Var óhugn-
anlegt að horfa og hlusta á slíkt, og geta ekki aðhafst vegna
veðurofsans. En okkur varð ekki svefnsamt þessa nótt að
vonum. Sú nótt gleymist aldrei.
Þegar komið var inn í félagsheimilið, sem jafnframt var
skóli, var ömurlegt um að litast. Hver einasta rúða að austan
var kurlmölvuð. Eftir hádegi voru settir hlerar fyrir brotnu
gluggana. Miklar skemmdir urðu á geymsluherbergi skól-
ans. Stór hluti eðlisfræðiáhalda var brotinn eða horfinn út í
buskann. Pappír og ijölritunarvömr voru horfnar með öllu.
Ég var daginn eftir með Emil syni mínum að taka til draslið
Heima er bezt 17