Heima er bezt - 02.01.2007, Síða 23
V
V V
*
viö. Spilinu fyrir ofan laufás er síðan
flett upp og lauftvistur er tekinn úr vara-
sjóðnum og lagður ofan á ásinn. Spað-
anía í neðstu röð er lögð á tígultíu og
laufþristur á hjartaQarka, og spilunum
fyrir ofan flett upp.
Kapallinn er genginn upp þegar búið
er að rekja alla litina ofan á ásana.
Auðmaður
Þessi ágæti kapall var eftirlæti J. P.
Morgans eldra, sumir segja að hann
hafi lítið gert allan seinni hluta ævinnar
annað en leggja þennan kapal.
Tvenn spil eru notuð, alls 96, ásamir
em teknir úr. Spilin skyldi stokka mjög
ve! áður en byrjað er.
I borð em lagðar þrjár raðir af spil-
um, átta í hverri röð.
Bestu spilin, sem hægt er að fá þegar
lagt er í borð, að viðbættum þeim, sem
þar eiga að koma ofan á, em þessi:
í tvistaröð: 2, (5,8, G).
í þristaröð: 3, (6,9, D).
í íjarkaröð: 4, (7, 10, K).
Fyrir neðan þær þrjár raðir, sem lagð-
ar em í borð, em lögð átta spil í röð;
þau eru varasjóðurinn. Hin 64 eru höfð
í stokknum.
Ofan á hvem tvist í tvistaröðinni má
láta fimm, áttu og síðast gosa í sama
lit og taka spil úr hinum röðunum eða
varaspilunum.
Á sama hátt má taka spil og leggja á
þrist í þristaröðinni, sex, níu og drottn-
ingu. I fjarkaröðinni, sjö, tíu og kóng,
ætíð í sama lit, og gæta þess að spilið,
sem lagt er ofan á, sé þremur hærra en
það næsta fyrir neðan. Aldrei má skilja
eftir autt sæti í neinni röð í borði, þau
verður strax að fylla með spilum úr
annarri röð eða varaspilunum. Það má
aðeins láta tvist í autt sæti í tvistaröð-
inni, þrist í þristaröðinni og fjarka í
fjarkaröðinni.
Markmið spilarans er að rekja alla
litina ofan á 8 tvista í tvistaröðinni,
8 þrista í þristaröðinni og 8 fjarka í
fjarkaröðinni. Spilið er unnið þegar
öll spilin hafa verið rakin niður, eins
og áður er sagt, með því að taka ætíð
þriðja spil fyrir ofan í sama lit. Efst-
ir í tvistaröðinni verða þá 8 gosar, 8
drottningar í þristaröðinni og 8 kóngar
í fjarkaröðinni.
Ef tvistur, þristur eða íjarki er í vara-
spilunum þegar þau eru lögð, má taka
spil úr röðunum í borði og leggja þau
ofan á viðeigandi spil í sömu eða annarri
röð, til þess að fá autt sæti til að flytja
tvista, þrista og fjarka í. Sérhvert spil
má taka úr varaspilunum og leggja þau
á viðeigandi staði í raðimar í borðinu,
þ. e. ofan á tvista, þrista og fjarka, eða
fleiri spil í einu ef þau eru í réttri röð.
Þegar ekki er hægt að færa fleiri spil
til, svo að gagni komi, em 8 spil af
stokknum lögð upp, ofan á hin 8 upp-
haflegu varaspil, eða í bil, sem myndast
hafa á milli þeirra. Spil má ekki færa
til í varaspilaröðinni, ekki einu sinni
til að fylla auð sæti þar.
Þegar búið er að vinna úr þessum 8
spilum, em lögð önnur 8 o. s. frv., þar
til stokkurinn er búinn.
Spilið er þá unnið, ef öll spilin eru
komin rétt röðuð í þessa 24 hlaða í
borðið.
Það er hættulegt að leggja hærra spil
ofan á þriðja lægra spil í sama lit í vara-
spilunum, því ef bæði sömu spilin eru
þannig sett, er spilið tapað, því aldrei
verður hægt að koma hærri spilunum
burt til þess að ná þeim neðri.
Ragnar Jóhannesson tók saman.
Kaupmenn í dreifbýli á íslandi
reyndu löngum að hafa sem flest
á boðstólum sem viðskiptavinina
vanhagaði um en úrvalið var
að vonum takmarkað. Einhverju
sinni kotn gildur bóndi inn í búð
og bað um hatt.
„En það verður að vera Batt-
ersbyhattur.“
Kaupmaðurinn átti engan slík-
an og raunar aðeins eina gerð
af höttum, og hétu þeir Moore.
Hann dó samt ekki ráðalaus:
„Veistu ekki að Batterby er
dauður og Moore sonur hans
tekinn við?“
Bóndinn fór sáttur út með
nýjan hatt.
Annar kaupmaður (eða sá
sami) fékk fyrir mistök frá heild-
sala jafnmörg búnt af eldspýt-
um og hann ætlaði að fá stokka.
Á þessum árum voru eldspýtur
með nútímasniði, sem þurfti að
strjúka við sérstakan flöt til þess
að á þeim kviknaði, nýjung, og
jafnan auðkenndar „öryggiseld-
spýtur“, Safety matches. Bændur
fóru vel með eldspýtur eins og
annað, eldur var jafnan falinn
og sóttur síðar í glæðumar. Var
því að sjá sem kaupmaðurinn
sæti uppi með margra ára birgðir
af eldspýtum. En viðskiptavin-
ir veittu athygli einkennilegum
sorgarsvip á honum. Þegar þeir
spurðu svaraði kaupmaður, að nú
væri illt í efni: Safetí væri dauður
og yrði því erfitt um eldspýtur
þegar fram liðu stundir.
Birgðimar seldust brátt upp.
Heima er bezt 23