Heima er bezt


Heima er bezt - 02.01.2007, Síða 24

Heima er bezt - 02.01.2007, Síða 24
Freyja Jónsdóttir: Gömul hús Aðalstræti 10 í Reykjavík Á þessum stað er talið að Innréttingarn- ar hafi reist hús undir dúkavefnaðarstofu í kringum 1752 en húsið hafi brunnið 1764. Eftir það hafi núverandi hús verið byggt. Seinni rannsóknir benda til þess að byggt hafi verið hús í Reykjavík árið 1762, fyrir bókhaldara Innréttinganna og mun einnig hafa verið í húsinu klæða- geymsla og lóskurður. Telja sumir að það sé húsið Aðalstræti 10, eins getur verið að það hafi verið húsið Aðalstræti 16 en ekki er vissa fyrir því. Telja margir fræðimenn að bæði þessi hús hafi verið byggð á tímabilinu 1759 til l774ogséu því elstu húsin í Miöbæ Reykjavíkur. I lögsagnarumdæmi Reykjavíkur er Við- eyjarstofa elst, fullbyggð 1755. Vestan við húsið Aðalstræti 10 var lítið torfliús sem í var geymsla og kamar. Garður eða sund aðskildi húsin. Talið var að húsið hafi seinna verið lengt til suðurs með því aó byggja ofan á skúr sem var við suðurgaflinn, jafn hátt og húsinu. Við endurbyggingu á húsinu á síðasta ári kom í ljós að þaö hafði ekki verið lengt. Húsið er gert úr bindings- verki, nrúrað í grind með holtagrjóti. Aðalstræti 10 var nefnt „Kontor- og Magazinhus“. Þar var íbúð undir forstjóra Innréttinganna. I risi voru geymslur. Um 1800, þegar farið var að selja eign- ir Innréttinganna, keypti umsvifamikill kaupmaður húsið, Westy Petræus. Á meðan húsið var í eigu hans var það nefnt Petræushús. Næsta nafn hússins var Biskupsstofa. Árið 1801 varð Geir Vídalín biskup íslands. Ekki var neinn embættisbú- staður til fyrir biskup svo að í nokkur ár bjó hann á Lambastöðum á Seltjarn- amesi, eins og hann hafði gert á meðan hann var dómkirkjuprestur. Árið 1807 fékk hann húsið til íbúðar. Árið 1801 var biskupsstóll og skóli lagðir niður á Hólum. Með konungsbréfi var mælt svo fyrir að allar eignir Hólastóls skyldu seldar og Island allt verða eitt biskups- dæmi og sæti biskup í Reykjavík. Geir var fyrsti biskup sem bjó í Reykja- vík. Kona hans var Sigríður Haralds- dóttir Vídalín. Hann var sóknarprestur í Seltjarnarnesþingum til 31. júlí 1797 en þá var hann vígður biskup að Skálholts- umdæmi að Hólum í Hjaltadal. Sigurður Stefánsson biskup vígði Geir Vídalín. Mikill mannjöldi var viðstaddur vígsl- una enda mikill viðburður. Eftir athöfn- ina var mikil veisla á Hólum sem lengi var í minnum höfð. Geir Vídalín var fræðimaöur en fjár- mál voru honum frekar torskilin. Það kom einnig til að hann var bóngóður og mikið af þurfalingum söfnuðust að heimili hans. Oft voru urn 30 manns á heimilinu. Af þessum sökum varð biskup gjaldþrota og var nefnd sett á 24 Heima er bezt húsið árið 1873 og bjó þar með fjöl- skyldu sína. Árið 1874 varhúsið tekið til virðingar. Þá er það borðaklætt að utan, með hellum á þaki. í kringum 1889 byggir Matthías íbúðarhús á lóð- inni fyrir sunnan húsið og flutti með fjölskyldu sína þangað. Árið 1889 var Aðalstræti 10 breytt í verslunarhúsnæði og gluggar á götuhlið stækkaðir. Árið 1894 kaupir Helgi Zoega kaup- rnaður húsið og fer að versla þar. Silli og Valdi kaupa það árið 1926 og versluðu þar í nokkra áratugi. Þetta merkilega hús var tekið undir veitingarekstur árið 1984 og gekk þá um tíma undir heitinu Fógetinn, samnefnt rekstrinum. Glugg- um götumegin var breytt árið 1931 en þá létu Silli og Valdi setja heilar rúður í þá til útstillingar á vörum. Ári síðar var reist viðbygging úr steini vestan við húsið og var viðbygging þessi stækkuð nokkrum árum seinna, sem eru mikil lýti á þessu fallega húsi. Síðan vom settir sex skiptir gluggar á framhliðina. Um leið og gluggamir vom settir var framhliðin klædd með listaklæðningu í staðinn fyrir járnið sem þar var. Ekki er vitað með vissu hvemig her- bergjaskipan var fyrst í húsinu en líklegt að hún hafi ekki tekió miklum breyting- um fyrr en þar hófst veitingarekstur. Á undanförnum árum hefur Minja- vernd látið vinna við að gera húsið upp sem næst uppmna sínum. Þegar gólfín voru tekin upp var gerður fomleifa- gröftur undir húsinu. Þá kom í ljós að á þessum stað hefúr ekki bmnnið hús | svo að um annað hús er að ræða, sem sögur herma að Innréttingamar hafí átt og bmnnið og nýtt hús verið byggt á gmnni þess. Margt fleira merkilegt kom í ljós við endurbyggingu hússins, eins og að það hefur ekki verið lengt, sem hafði verið talið fullvíst. Þegar verkinu verður lokið fyrir vorið verður Aðalstræti 10 til sýnis og er það mikið tilhlökkunarefni og sér- staklega fýrir þá sem unna sögu gam- alla húsa. Minjavemd hefur alfarið séð um endurbyggingu hússins og tjármagn- að verkið. I laggirnar til að fjalla urn Ijármál hans. Honum var síðan skammtað naumlega fyrir nauðsynjum en biskup kunni því illa sem vonlegt var. Sunnudaginn 25. júní 1809 gengu Bret- ar á land í Reykjavík á meðan bæjarbúar sátu í kirkju. Jörgen Jörgensen var fyrir þeim. Herskip hans hafði legið fyrir utan höfnina frá 20 júní. Jörgen lýsti því yfír að nú væru Islendingar lausir undan Dönum. Á ýmsu gekk þann stutta tíma sem Jörgen Jörgensen stjómaði landinu. Eitt var það að Geir Vídalín biskup afstýrði einvígi á milli Savignac kaupmanns, sem var misjafnlega þokk- aður, og Gísla Símonarsonar faktors. Gísli og Savignac urðu ósammála og skoraði Savignac Gisla á hólm. Sá fyrr- nefndi sá Gísla fara inn í hús biskups og strunsaði alla leið inn á inn á skrif- stofu biskups óboðinn, þar sem Gísli var fyrir. Segir sagan að Savignac hafí verið með tvær skammbyssur og rétt Gísla aðra þeirra. Ekki varð af einvíginu því að Geir biskup gekk í milli. Sagt er að byssan sem Savignac rétti Gísla faktor hafí verið tóm, hin hlaðin. Eins og fyrr segir var alltaf margt í heimili hjá biskupshjónunum. Fyrir utan biskup sjálfan bjór þar eitt elsta leikritaskáld okkar, Sigurður Pétursson, fyrrverandi sýslumaður. Geir Vídalín lést úr lungnabóigu 20. september 1823, aðeins 62 ára. Jarð- arfor hans var gerð 6. október af miklum myndarbrag, að viðstöddum miklum manntjölda. Menn komu hvaðanæva úr nágrannasveitum og borgarbúar létu sig ekki vanta. Allir sem áttu, voru búnir skartklæðum. Séra Guðmundur Bjama- son flutti húskveðju áður en kistan var borin í Dómkirkjuna. Kistuna báru emb- ættismenn og stúdentar. Kistan, sem var gerð úr völdum viði, heilum plönkum, var afar þung og með skrúfnöglum. Bisk- up var þrekvaxinn og þurftu líkmenn að skipta oft um á leiðinni. Árni Helgason stiftprófastur hélt tölu í Dómkirkjunni við kistu biskups og tveir söngfíokkar sungu, annar á latínu en hinn á íslensku. Geirs Vídalíns biskups var mjög saknað, bæði af klerkum og almúganum. Hann var maður gæsku- fullur og vildi öllum hjálpa. Hann var allra manna pennafærastur og mikill lærdómsmaður. Ári eftir lát biskups keypti konung- ur húsið en ekkja biskups bjó þar til dauðadags 1846. M. Smithkonsúll átti heinra í húsinu um 1850. Jens Sigurðsson adjunkt, síðar rektor Lærða skólans, bjó í Aðalstræti 10 á ámnum 1855 til 1868. Jens og Jón Sig- urðsson forseti vom bræður. Þegar Jón var á landinu á sumrin vegna þingsetu, bjuggu hann og kona hans, Ingibjörg, í húsinu. Á eftir Jens Sigurðssyni bjó í þessu húsi Jón Hjaltalín læknir og fjölskylda hans. Matthías Johannessen faktor keypti Heima er bezt 25

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.