Heima er bezt


Heima er bezt - 02.01.2007, Page 38

Heima er bezt - 02.01.2007, Page 38
Hjörtur taldi sig oft vera Húnvetning, en þar dvaldi hann um skeið. Hann man vel húnvetnska vorið og kveður: Þegar vorið vœngjablátt um ver og dali streymir, horfins tíma hófaslátt Húnvetninginn dreymir. Um Laxárdal í Húnaþingi yrkir Hjörtur nokkur erindi. Get ég ekki stillt mig um að tilfæra nokkur þeirra: Gróðurmáttur guðs og jarðar grasi prýða fornan val. Tíminn hefur gleymsku grafið gamla sögn úr Laxárdal. Hvert sinn, þegar leið mín liggur Laxárdals um forna slóð, harmi þrungin sorgarsaga seytlar gegnum merg og blóð. Hér var áður elskað, lifað, óskað, vonað, guði treyst, vakað yfir vorsins gróðri, von á dalsins gœði reist. Síðan víkur skáldið að grimmum örlögum, er afskekktur sveitabær í dalnum verður fyrir, þegar brestur á blindhríð. Konan er ein heima, en bóndinn í innkaupaferð fyrir jólin. Hún hyggst bjarga fénu í hús undan veðrinu, en verður sjálf úti. Heyrði ég sem bam sagt frá þessu. Skáldið segir þannig frá þessum þungu örlögum: Bóndi heiman býst til ferða, björg til vetrar sækja skal. Þorri dauðans köldu krumlur kreppti yfir Laxárdal. Meðan sauðir kjarrið krafsa, konan sýslar inni við. Hurðum skellir bóndans bölvan, brjáluð hríðin, óttans svið. Konan hleypur, hyggst að bjarga hjörð í öruggt stormahlé. Ofsahríðin augun blindar, óstætt veður, snjór í hné. Þegar bóndinn nálgast bæinn úr kaupstaðarferðinni, finn- ur hann konu sína helfrosna á hjaminu. Hún varð sem sagt úti. Elsta fólk í Húnaþingi man þetta vel. En ljóðinu lýkur á þessum erindum: Rétt við bæinn bóndi finnur bleikan, frosti krepptan ná. Örvæntingin œgiþunga yfir manninn lagðist þá. Tunga bregst, en hjartað hrópar harmi lostið, geims itmfrer: Hvernig, góði, grimmi Drottinn, gastu tekið allt frá mér? Bóndinn ungi byrði þunga bænum tóma flytur inn. Lífs síns yndi og vonir vefur vinarörmum - hinsta sinn. Eg hefí valið nokkur erindi í þennan vísnaþátt eftir Hjört Gíslason, skáld og rithöfund (1907- 1963). Bið ég fólk vel að njóta. Dægurljóð Eins og fyrr leita ég til Islenskrar söngbókar um texta því þar er óvenju fjölbreytt úrval ljóða um land og þjóð. Eg er hins vegar hræddur um að þessi ágæta bók sé að rykfalla á heimilum landsmanna. Mér finnst þess vegna þarft verk að leita til þessarar bókar, til að viðhalda fomri arfleifð, ef svo má segja. Athyglisvert er hversu mörg ljóð Steingrímur Thorsteinsson orti og þýddi þama, þetta frábæra skáld og söngvasvanur. Hann skildi eftir sig mikla arfleifð. Skáld- in eru að vísu jafn dauðleg og aðrir menn, en lifa í ljóðum sínum löngu eftir að lífsskeiðinu lýkur. I Skólaljóðunum birtust ljóð eftir Steingrím, sem ég las og lærði. Ég ætla að birta hér ljóð, sem Steingrímur þýddi og nefn- ist „Sænsk þjóðvísa,,. Lagið er sænskt þjóðlag. Þetta er ástarljóð, en um þessa innstu og dýpstu tilfínningu manns- ins hefur margt verið ort að vonum. Hér kemur þá þetta ágæta ljóð. Sænsk þjóðvísa Ein yngismeyjan gekk úti í skógi, þar ungan sjómann hún hitti á leið. ,, Og hví er hún alein úti' að ganga, fæst ástin hennar, efþess ég bið?„ „ Við þeirri bón er mér þungt að svara, tilþess er stétt mín svo yfrið lág. Sem ambátt má ég vístyður þjóna, en aldrei lofast, nei, það er frá. „ Eg átti' einn vininn, sem fór burt frá mér, í full sjö árin ég þráði hann. Og lifii hann, þá á hann mitt hjarta, En hafi' hann dáið, á guð hans sál.„ „Eg er sá vinur, sem fór burt frá þér, í full sjö árin þér gleymdi' ég víst. Kom, elskan fögur, í arma mína; ég er sá vinur, já, það er víst.„ Astarsaga, sem fór vel, ekki satt? Viljum við ekki öll, að svo fari? Hér fer á eftir skemmtilegt ljóð, sem ég þýddi úr dönsku fyrir rúmum þremur áratugum, og nefnist á frummálinu „ABC-visen,„ en „Stafrófs vísan,, í minni þýðingu. Þama er mannsævin í hnotskum, frá fæðingu til andláts. 38 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.