Flug : tímarit um flugmál - 01.08.1949, Qupperneq 8
- ■ : - ■ ' « • - ■
’ r íZ&iS&éÉf&’riá
Fdskrúðsfjörður.
hóf ég TF-LÓU til flugs upp af Sandskeiðinu hjá
Vífilsfelli í þessa ferð, sem hér verður sagt frá.
Það voru margar hugsanir, sem komu fram í huga
mínum, þegar þessi gamli draumur minn, að fljúga
yfir landið til að heimsækja foreldra mína, var að
byrja að rætast. Það lá við að ég efaðist um að þetta
væri veruleiki, en það var sannarlega ekki tími til
heimspekilegra hugleiðinga, því að útsýnið heillaði
mann. Eftir örfáar mínútur flugum við vfir Hval-
fjarðarbotni, en fjörðurinn er dásamlega fagur úr lofti
að sjá, ekki síður en af landi, og alltaf kom fram
nýtt og nýtt útsýni. Ok og Eiríksjökull blöstu við
framundan. Framhjá þeim flugurn við í ca. 1300 m.
hæð inn yfir Arnarvatnsheiði. í norðurátt var bjart
svo langt sem augað eygði, en yfir hálendinu austur
eftir hvíldi dimmur þokubakki, sem mér fannst ekki
lofa neinu góðu. Eg flaug nú með stefnu á mynni
Norðurárdals, síðan eftir dalnuin á móts við efstu
fjallatoppana og áfram vfir Öxnadalsheiði og Öxna-
dal.
Ég minnist þess enn, hversu fagurt það var að
svífa yfir þessum háu, uppmjóu fjallatoppum og horfa
ofan í þrönga dalina með bæjum, túnum og lækjum,
og ekki var síður gaman að sjá yfir Eyjafjörðinn. En
þegar þangað kom, fór ég strax að horfa eftir ein-
hverjum túnbletti til að lenda á, og eftir að hafa
skoðað þá staði, sem mér fannst helzt koma til greina,
ákvað ég að lenda á túni Jakobs Karlssonar að Lundi,
senr er rétt fyrir ofan Akureyrarkaupstað, og gekk
það ágætlega. Ferðin þangað hafði tekið 2 klst. og
20 mínútur. Við vorum ekki fyrr komin heim að
bænum, en húsráðandinn, Jakob Karlsson, bauð okk-
ur inn að fá hjá sér hressingu, en á því heimili virtist
mér fara saman rausn og myndarskapur.
Nú var samt ekki hugmyndin að tefja lengi, því
að við ætluðum að halda áfram austur að Arnhóls-
stöðum strax og ég hafði fengið benzín frá Akur-
eyri, en áhugasamir svifflugfélagar á Akureyri komu
innan skamms með benzínið, og kl. 8 um kvöldið
lögðum við aftur á stað, og nú flugum við yfir Eyja-
fjörðinn, yfir Vaðlaheiði, Ljósavatnsskarð, yfir sunn-
anvert Mývatn og þaðan beinustu leið að Möðrudal
á Fjöllum, en þegar ég flaug yfir Möðrudal, var þok-
an, sem legið hafði yfir hálendinu, farin að lækka
6 - FLUG