Flug : tímarit um flugmál - 01.08.1949, Qupperneq 10

Flug : tímarit um flugmál - 01.08.1949, Qupperneq 10
vel, að ég hafði lært töluvert í svifflugi, og út frá þeirri þekkingu, sem ég hafði öðlazt í sambandi við það, þóttist ég vita, að ef ég flýgi fast upp að kletta- belti öðru megin við dalinn, að þá myndi ég ná þar í uppstreymi. Þetta reyndist rétt, vélin rauk upp á nokkrum augnablikum í næga hæð til að fljúga yfir heiðina. Þegar yfir Þórdalsheiði kemur, tekur við Ár- eyjardalur, þröngur dalur með háum og snarbröttum fjöllum beggja vegna. í þessum dal var afar misvinda, svo ókyrrt, að ég hefi aldrei lent í öðrum eins látum. Vélin kastaðist til í loftinu, svo að rnjög erfitt var að stjórna henni, stundum báru þessir misvindar okk- ur langt niður í dal, en þess á milli upp undir skýin, sem lágu þarna aðeins niður fyrir fjallatoppana, og voru umskiptin svo snögg, að það var eins og vélin væri í stöðugum árekstrum. Þegar út úr Áreyjardaln- um kom, var ekki nærri eins misvinda, og leit ég þá á úrið rnitt og sá að ég hafði verið 7 mínútur á flugi frá Arnhólsstöðum, en það verð ég að segja, að mér finnst það vera þær lengstu 7 mínútur, sem ég hefi verið á flugi. Eftir 30 mínútna flug frá Amhólsstöð- um, lentum við í fjörunni meðfram kauptúninu á Fáskrúðsfirði, færði síðan vélina upp á grasbala, vegna þess að með flóðinu flæddi yfir allan þennan part fjörunnar. Við dvöldum á Fáskrúðsfirði í góðu yfirlæti þar til á sunnudaginn 13. ágúst, en þá urn morguninn kl. 10—11 lögðum við á stað til Reykjavíkur. Veður var gott, sunnanátt og alskýjað og fór skýjahæðin lækkandi eftir því, sem við komum lengra suður á bóginn, og þegar við komum fyrir Horn, skammt aust- an við Hornafjörð, skall yfir með blindþoku og aus- andi rigningu og neyddist ég þá til að lækka flugið og flaug það sem eftir var til Flornafjarðar með ströndinni í mjög lítilli hæð, og lenti á söndunum við Hornafjarðarós eftir 1 klst. og 15 mín. flug frá Fáskrúðsfirði. Vorum við nú veðurteppt á Hornafirði þann dag allan og næstu nótt, og héldum til hjá Sigurði Ólafssyni í Höfn. Næsta dag var veður svipað, skyggni mjög lítið og ausandi rigning. Þá um eftir- miðdaginn kom strandferðaskipið Esja til Hornafjarð- ar, á suðurleið, og var þar um borð fólk, sem við höfðum kvatt daginn áður austur á Fáskrúðsfirði. Gerði það nú gaman að ferðalagi mínu, sagði að við skyldum bara fá okkur far með Esjunni suður, við yrðum ábyggilega mikið fljótari með því móti, og um leið og við fórum frá borði, bauðst það til að taka á móti okkur í Reykjavík, þegar við kæmum suður. Ég bar mig hið bezta og hélt fram flugvélinni sem framtíðarfarartækinu, sömuleiðis sagði ég þessu góða fólki, að það gæti sparað sér að taka á móti okkur, Farartœkið. þegar við kæmum suður, því að á þeirri stundu, sem við kæmum til Reykjavíkur, yrði það að drepast úr sjóveiki úti á rúmsjó. Mér fannst þó, þegar ég kom úr þessari heimsókn um borð í Esjuna, að nú væri flugmannsheiður minn í hættu, einnig flugvélarinnar sem farartækis, ef ég léti þá skömm henda, að Esjan yrði á undan til Reykjavíkur. Ég gerðist því órólegur, þegar líða tók á daginn, og allt útlit fyrir að svona veður gæti hald- ist áfram, kannske vikuna út eða vel það, og klukkan að byrja að ganga sex um kvöldið héldu mér engin bönd lengur. Við fengum því Sig. Ólafsson til að flytja okkur yfir Hornafjarðarós, þangað sem vélin var, og nú var lagt af stað út í þokuna og rigning- una. En það var bót í máli, að ég hafði frétt gegn- um símann, að á Fagurhólsmýri í Öræfum væri sæmi- legt skyggni annað slagið, en gengi á með skúrum. Ég flaug nú suðvestur með ströndinni í mjög lítilli hæð, en þegar ég kom þar, sem Skeiðará fellur út Skeiðarársand, sá ég ekkert nema vatnselg fram und- an. Mér leizt ekki á að fljúga lengur með sjónum, því að ef ég af einhverjum ástæðum \ rði nevddur til að lenda á þeirri leið, yrði kannske erfitt að ná til bæja. Ég flaug því upp í Öræfin, enda betra skyggni þar; síðan yfir Skeiðarársand ofarlega, fram- hjá Lómagnúpi, fram hjá Kirkjubæjarklaustri, en nokkru eftir að ég fór fram hjá Klaustri, kom á móti mér kolsvört þoka og varð ég nú að taka það ráð að fljúga með fram símalínunum í staurahæðinni og hafa þær fyrir leiðarvísir. Þetta þokubelti lá að mestu leyti yfir Mýrdalssand, en þegar við komum á móts við Pétursey á sandinum, komum við allt í einu út úr þokunni og í glaða sólskin. Eftir þetta var veður ágætt, og bar fátt til tíðinda. Við lentum á Skógasandi og tókum þar 8 - FLUG

x

Flug : tímarit um flugmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Flug : tímarit um flugmál
https://timarit.is/publication/1869

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.