Flug : tímarit um flugmál - 01.08.1949, Side 15

Flug : tímarit um flugmál - 01.08.1949, Side 15
þótti geysilega gaman. Við flugum hér yfir bæinn og næsta nágrenni og það líktist meir ævintýri en veruleika. Á þeirri stundu varð flugið mér enn meira áhugamál, en mig hafði nokkru sinni dreymt um áður. Ég ákvað að læra að fljúga, hvað sem tautaði. Fvrsti kennari minn var Jón Guðmundsson, síðar starfsmaður hjá Loftleiðum h.f. — Hafið þér flogið óslitið eftir það? — Ekki var nú því að fagna, því að haustið 1946 fór ég í Gagnfræðaskóla Reykjavíkur og gat þá um veturinn lítið sem ekkert flogið, en vorið eftir bvrj- aði ég fyrir alvöru aftur. — Hvenær fluguð þér einn í fyrsta skipti? — Þann 3. júlí 1947. Ég flaug þá í Piper Cub TF-KAS. Fékk ég undanþágu aldurs vegna til þess. — Voruð þér ekkert smeykur? —r- Síður en svo. Ég var alveg öruggur og óhrædd- ur, enda var ég þá búinn að fá töluverða æfingu. — Hafið þér haft mikla flugæfingu síðan? — Töluverða. Ég keypti sjálfur flugvél við fjórða mann, til þess að geta flogið sem mest og æft mig. Það var Tiger Moth TF-KAV, sama vélin sem ég flaug í fyrsta skiptið. Við fjórmenningarnir flugurn henni til skiptis, eftir því sem við varð komið, en flugtímarnir urðu allmiklu færri en upphaflega var ætlast til, vegna þess að vélin var oft í lamasessi. Þess vegna seldi ég líka minn hlut í fyrra, en nokkuru seinna varð vélin fyrir alvarlegu áfalli í flugtaki uppi í Mosfellssveit og skemmdist mikið. — Eigið þér þá ekki neina flugvél núna? — Reyndar. Um sama leyti og ég seldi Tiger hdoth vélina, kevpti ég við sjötta rnann aðra vél. Það var Proctor TF-FOA, en heppnin með hana hefir ekki verið stórurn meiri. Hún hefir alltaf verið í lamasessi að heita má. Fyrst var það mótorinn, sem var í ólagi, en þegar við vorum loksins búnir að koma honum í lag, bilaði hjólastellið í lendingu. En það standa samt vonir til að hún komist ein- hvern tíma í lag aftur. — Hvenær tókuð þér einkaflugpróf? — Vorið 1948, en öðlaðist þó, aldurs vegna, ekki réttindi fyrr en á afmælisdaginn minn í fyrra. Þá varð ég 18 ára. —■ Og nú stundið þér flugstarfið af kappi? — Ég hefi helgað mig því að öllu leyti. í júlí 1947 fékk ég atvinnu hjá Flugfélagi íslands og hefi síðan unnið þar við hvers konar störf. Á flugskóla Flugmálastjómarinnar gekk ég veturinn 1947—48, en þá var kennt þar til einkaflugs. Síðastliðinn vetur gekk ég aftur á skólann og lauk bóklegu prófi til atvinnuflugs. Að minni hyggju er það góður skóli Hér fer á eftir skrá með nöfnuin allra handhafa íslenzkra Ioftferðaskírteina, ásamt fæðingardegi flug- mannanna og ári. Röð skíiteinanna er í þeirri röð, sém nöfn handhafanna eru talin. Nr. 1. 2. 3' 4- 5- 6. 7- 8. 9- 10. 11. 12. *3- x4- !5- 16. !7- 18. 19. 20. 21. 22. 23- Nafn: Sigurður Jónsson .... Björn Eiríksson ..... Agnar Kofoed-IIansen Örn O. Johnson .... Jóhannes Snorrason . . Sigurður Ólafsson .... Kristinn Olsen ...... Alfred Elíasson ..... Magnús Guðmundsson Smári Karlsson ...... Skúli Petersen ...... Georg Th. Óskarss. (f) Þorsteinn E. Jónsson . Kristján Kristinsson (f) Hörður Sigurjónsson .. Kristján N. Mikaelsson Hörður Jónsson....... Halldór Bech ........ Njáll Guðmundsson .. Gunnar V. Frederiksen Jóhannes Markússon .. Páll Magnússon ...... Kristján Steindórsson . Fd. og ár Útgefið 18/2 ’io 17/2 ’4° 12/8 ’oi 17/2 ’4° 3/8 ’*5 4/5 45 18/7 ’!5 M/3 ’4° 12/9 ’11 22/n 43 i5/9 ’m 23/2 44 24/6 ’27 23/2 44 16/3 ’20 23/2 44 9/8 T6 24/4 44 20/3 ’23 29/5 44 26/1 ’25 1/6 45 25/5 ’24 4/5 ’45 19/1° ’21 21/2 ’47 17/8 ’23 2/6 ’45 26/7 ’21 H/7 ’45 4/6 ’20 7/8 45 28/6 ’27 2/2 46 9/7 ’21 20/2 46 8/9 ’22 6/3 46 25/7 ’22 6/3 46 4/9 ’25 rr\ OO iH 46 27/9 ’24 22/3 46 26/1 T6 29/3 46 e og gerir miklar og strangar kröfur til nemenda sinna. Mér líkaði þar vel. — Og hafið þér þá orðið réttindi til atvinnuflugs? — Nei, ég hefi enn ekki nógu marga flugtíma að baki mér. Réttindi öðlast maður ekki til atvinnu- flugs fyrr en eftir 200 flugtíma, en mig vantar enn töluvert á það. — Hvað segið þér svo um flugið í heild? — Áhugi minn á því verður meiri þess oftar sem ég flýg, og ég geri ekki ráð fyrir að ég iðrist þeirrar ákvörðunar, að hafa lært flug. Meira hefi ég ekki ástæðu til að segja að þessu sinni. FLUG - 13

x

Flug : tímarit um flugmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Flug : tímarit um flugmál
https://timarit.is/publication/1869

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.