Flug : tímarit um flugmál - 01.08.1949, Blaðsíða 26
AGNAR KOFOED-HANSEN:
Flugsýnin
a
pITSTJÓRI tímaritsins FLUG hefir beðið mig að
v segja lesendum blaðsins frá flugsýningu þeirri,
er samband brezkra flugvélaframleiðenda hélt á Fam-
borough-flugvelli dagana 7.-9. september s.l. Sýning
þessi var 10. sýning sambandsins og án nokkurs vafa
sú allra áhrifaríkasta og glæsilegasta, sem það hefir
nokkru sinni haldið. Get ég að vísu ekki dæmt um
hinar sýningarnar af eigin reynd, þar eð þetta er fyrsta
brezka flugvélasýningin, er ég sæki; hins vegar hefi
ég fylgzt vel með dómum um undanfarnar sýningar
og spádómum um þær áður en þær voru haldnar,
og nú sögðu spádómarnir, að hér væri á ferðinni ein-
hver merkilegasta flugsýning í sögu flugsins fram að
þessu, og því var það, að ég stóðst ekki freistinguna
og sótti sýninguna.
Við fórum héðan félagarnir Bergur G. Gíslason
og Örn Johnson daginn fyrir sýninguna, og er óhætt
að fullyrða, að enginn okkar sá eftir þeim tíma, er
fór í að heimsækja Farnborough-flugvöllinn. Á sýn-
ingunni hittum við einnig íslenzkan flugáhugamann
og einkaflugmann, Lárus Óskarsson.
Flugsýningunni var einkum ætlað að sýna yfirburði
Breta á sviði þrýstiloftsflugvéla, og missti hún ekki
marks. Sýninguna sóttu mörg hundruð erlendra
sem áður tókst okkur að afla okkur benzíns og olíu,
og þar sem ekki var um aðra leið að ræða, flugum
við til Los Angeles í flugu okkar.
Við vorum orðnir svo örvæntingarfullir, að við
buðumst til að gera hvað sem vera vildi. Við vorum
fúsir til að fljúga til Ástralíu, eða hvert sem væri,
gesta frá flestum þeim þjóðum, sem á annað borð
fljúga, og mér sýndist á svip gestanna sýningin hafa
borgað sig fyrir brezka flugvélaiðnaðinn.
Undrun og hrifning var það, sem maður sá al-
mennast í svip sýningargesta. Á bak við sýningu þessa
lá að minnsta kosti 7 ára þrotlaust starf, sem trvggja
átti yfirburði Stóra-Bretlands í lofti um ókomin ár.
Þeir Bandaríkjamenn, sem ég hitti á sýningunni, virt-
ust einnig sammála um, að Bandaríkin væru búin að
tapa forustu sinni á sviði flugmálanna, að minnsta
kosti fyrst um sinn, og allar líkur bentu til þess, að
amerísk flugfélög rnyndu nota brezkar þrvstilofts-
knúnar farþegaflugvélar á næstu árum.
Ég mun í þessu stutta yfirliti fyrst reyna að gera
nokkra grein fyrir einkaflugvélum þeim, sem voru til
sýnis, þá hernaðarflugvélunum og loks farþegaflug-
vélunum.
EINKAFLUGVÉLAR.
Allmargar einhreyfils einkaflugvélar tóku þátt r
sýningunni, flestar sæmilega þekktar, og ekki fannst
mér nein þeirra sérstaklega eftirtektarverð. Yfirleitt
sem starfsmenn fyrirtækisins. En þó að embættis-
menn félagsins hlustuðu á okkur með samúð, varð
ekkert samið.
Þetta var alger myrkvun, því að við vorum nú
búnir að glata allri von, og það virtist sem allt okkar
strit hefði verið til einskis. (Frh. í næsta tbl.)
24 - FLUG