Flug : tímarit um flugmál - 01.08.1949, Page 29

Flug : tímarit um flugmál - 01.08.1949, Page 29
Douglas ,,Dakota“, sem knúin er af túrbinuhreyflurn rneð skrúfum. lienni, þótt hún væri nokkuð aftarlega í röðinni, því að eins og nærri má geta, var hún höfð eins og nokkurs konar rúsína í pylsuendanum. Flug þessarar vélar tókst með ágætum, enda er Cunningham aðal- reynsluflugmaður De Haviland ekki sagður neinn skussi. Flugtækið virtist mjög einfalt, þótt vitanlega væri ekki fullt mark á því takandi, vegna þess hve létt vélin var, enda svo ráð fyrir gert, að hún hafi að minnsta kosti 2 til 4 rakettur, er aðstoði við flug- tak, þegar hún er hlaðin farþegum. Flug halastjöm- unnar var svo fallegt og línur hennar svo yndislegar, að maður varð bókstaflega bráðskotinn í flugvél í fyrsta skipti á ævinni. Halastjarnan flaug nokkrum sinnum yfir áhorfendasvæðið — svo hratt, að hún gaf lítið eftir þrýstilofts-knúnu orustuflugvélunum, en fegurð hennar var meiri en nokkurrar annarrar flug- vélar á sýningunni, þótt Canberra vélin kæmist mjög nærri henni. Auk þess hafði maður það á tilfinn- Comet-vélin. naumast tækifæri til að sýna yfirburði sína fram yfir gömlu hreyflana. Armstrong Siddeley sýndi þarna mjög merkilega flugvél, sem flestir lesendur FLUGS kannast við, Viscount, en því miður gafst rnanni ekki tækifæri til að fljúga í Viscount-vélinni, en það verður maður auðvitað að gera til þess að geta borið um eða fyllzt heilagri lirifningu af yfirburðum túrbínuhreyflanna. En þótt þarna væru rnargar og mjög merkilegar farþegaflugvélar á sýningunni, þá virtust þó allir aðal- lega bíða eftir einni farþegaflugvél, Comet-vélinni eða halastjörnunni frá De Haviland. Loksins kom að ,...........1 Viscount-flugvélin. ingunni, að þarna væri góð vél á ferðinni, sem væri ekki fyrst og fremst ætluð herguðinum Marz, heldur langtum frekar Júpíter. Það var mjög gaman að sjá, hve lítið fer fyrir þrýsti- loftshreyflunum og hve snoturlega var frá öllu geng- ið í sambandi við staðsetningu þeirra. Auk þess fór mann strax að dreyma um ferðalag í „Halastjömunni" á milli heimsálfa. Frá íslandi færum við til Kaup- mannahafnar á tæpum þrem tímum, á tæpum tveim tímum til Skotlands og rúmum fimm tímum til New York. Það mætti halda lengi áfram að láta sig dreyma um ferðalög til fagurra og fjarlægra staða í „Hala- stjömunni" og án efa eiga margir af lesendum FLUGS eftir að upplifa slík ferðalög í „vöku“ á næstu árum. Ég veit, að íslenzkir flugliðar og flug- áhugamenn óska Bretum til hamingju með sýning- una og sigurinn. Þeir em vel að honum komnir. FLUG - 27

x

Flug : tímarit um flugmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Flug : tímarit um flugmál
https://timarit.is/publication/1869

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.