Flug : tímarit um flugmál - 01.08.1949, Síða 37

Flug : tímarit um flugmál - 01.08.1949, Síða 37
flugferðir, þegar tilraunum og námskeiði er lokið, og þá eiga þeir, sem nú brjóta ísinn og leggja fram fé og krafta, að njóta forréttinda eða ágóða í réttu hlutfalli við þátttöku. , Ég geri nú ráð fyrir, að hér muni vera saman- komnir í kvöld ýmsir, sem áhuga hafa á málinu og fúslega vilja gerast félagar eða styrkja viðleitni vora á einhvem hátt. Stjórnendumir leyfa sér því að bjóða fram eyðu- blöð fyrir væntanlega þátttakendur, er óskast útfyllt nú í kvöld eða síðar og svo aflient eða send ritara félagsins, herra Halldóri Jónassyni. II. Háttvirtu tilheyrendur! Þið hafið komið hingað til þess að sjá fyrstu flug- vélina, sem til íslands hefir flutzt, og sjá hana í fyrsta sinn hefja sig til flugs. Ég vona að ykkur gefist svo vel á að líta, að þið munið þá sjón, og að þessi viðburður verði svo þýðingarmikill í fram- farasögu þessa lands, að dagsins í dag verði síðar minnst sem merkilegs í samgöngum þjóðarinnar. Landið okkar er stórt en strjálbyggt. Það er ógreitt yfirferðar, og ýmsra orsaka vegna hefir það farið á mis við aðal samgöngutæki flestra annarra landa: eim- reiðina. Flutningar og ferðalög á íslandi hafa því kostað margfalt meiri tíma og fyrirhöfn en annars staðar. Af því hefir aftur leitt dýrtíð og deyfð í fram- förum og þjóðin hefir í flestum efnum orðið langt á eftir tímanum. Hér sjáið þið í dag samgöngutæki, sem ekki er bundið við brýr eða vegi. Það fer yfir fjöll og dali, hraun og jökla, fljót og firði með margfalt meiri hraða en eimreiðin kemst um engi og akra í öðrum löndum.. Þessum samgöngutækjum eigum við því að taka með opnum örmum og nota okkur þau sem bezt, mun þá eigi ætíð á okkur sannast, að við séum eftir- bátar annarra. Ég ætla ekki að rekja sögu flugvélanna, því að flestir þekkja hana á yfirborðinu, eins og ég. En við þekkjum ekki hver ógrynni fjár og fyrirhafnar það hefir kostað ýmsa menn og þjóðir að gjöra flug- vélina þannig úr garði eins og við sjáum hana nú, og efast ég þó eigi um það, að enn eigi hún eftir að taka ýmsum breytingum til bóta. Flugvélamar unnu þýðingarmikið hlutverk í stríð- inu, og nú eru þær víða erlendis í friðsamlegum ferðum með farþega og flutning. Og þegar er fengin sönnun fyrir því, að þær em samgöngutæki framtiðar- iunar. En þær hafa kostað þjóðirnar rneira en fé og fyrirhöfn. Þær hafa kostað líf margra manna. Það er bezta sönnun þess, hve sterka trú menn hafa haft á nytsemd flugvélanna, að ávallt hafa marg- ir verið reiðubúnir að freista flugs í stað fallinna rnanna. Ég efast ekki um, að sú verði og raunin á hér, ef slys skyldi bera að höndum, að hvorki skorti á trú til flugvélanna né hug afkomenda söguhetjanna fornu, sem hvorki hræddust bál né brand, enda hafa íslendingar ekki látið hættu aftra sér frá að rækja skyldur og atvinnuvegi. Þeir sigldu um höfin á ófrið- arárunum, þótt sprengidufl og kafbátar lægju í leyni í öldunum. Sjómennirnir leggja ekki árar í bát, þótt Rán heimti dýrar fómir úr flokki þeirra. Og á landi hræðast menn ekki fjúk og fönn á ferðalagi, þótt margur hafi orðið úti. Ef um framför eða nauðsyn er að ræða, er hættan hvöt fyrir þann, sem hugprúður er, og ekkert yrði honum gert ógeðfelldara og óverðugra, ef óhapp bæri að höndum, en það, að ófarir hans slægi óhug á aðra og drægi úr bjargráða- eða framfara-viðleitni. Eigi er svo að skilja, að ég álíti flugferðir rnjög hættulegar. Reynsla síðustu tíma sýnir, að þær séu þvert á móti tiltölulega hættulitlar, þar sem vara- semi er við höfð og góð skilyrði eru fyrir höndum. Þakkað sé hugvits- og örlætismönnum þeim, sem lagt hafa fram krafta sína til þess að fullkomna svo þenn- an undra gand, að við getum nú óhrædd svifið á honum um loftið. Þó flugtækjaþörfin sé mikil hér á landi, kann svo að reynast, að skilyrðin fyrir hættulausum ferðum sé eigi fynr liöndum vegna veðráttufars, landslags, fá- kunnáttu og fjárskorts. En það er skylda allra, sem framförum unna, að bæta skilyrðin og draga úr hætt- unni. Stjóm þess félags, sem nokkrir framtakssamir menn mynduðu nýlega, til þess að brjóta ísinn í þessu efni og sýna flugvél og flug, hefir gjört allt, sem í henn- ar valdi hefir staðið, til þess að fara tryggilega af stað. Hún hefir útvegað þaulæfða og þrautreynda útlenda starfsmenn, og vandaða og viðurkennda flugvél, án tillits til kostnaðar. Jafnframt treystir hún því, að þjóðin sýni eigi tómlæti og skilningsleysi á því, hvað henni horfir til heilla, og að hún greiði að sínu leyti götu þess- arar nýjungar, dragi úr hættunni og bæti flugskil- yrðin, eins og frekast er unnt. Ég efast eigi um, að hið háttvirta Alþingi styrki ríflega með fjárframlögum nú og framvegis þessa framfaraviðleitni, svo að félag það, sem hér á hlut að máli geti aflað sér þeirra flugtækja, sem tryggust FLUG - 35

x

Flug : tímarit um flugmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Flug : tímarit um flugmál
https://timarit.is/publication/1869

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.