Flug : tímarit um flugmál - 01.08.1949, Qupperneq 38
eru og gagnlegust. geti lagað lendingastaði, byggt
skýli, og síðast en ekki sízt, kostað hæfa menn til
fiugnáms og starfrækslu, til þess að hættulitlar og
hagkvæmar flugferðir komist á hér á íslandi í ná-
inni framtíð. En jafnframt skora ég á alla — unga
sem gamla, konur og karla — að styrkja og tryggja
fyrirtækið.
Þegar um framfarir er að ræða, verða allir að leggj-
ast á eitt með hug og hönd. Með því einu móti
getur landið veitt þessari fámennu þjóð þau lífs-
skilyrði, sem nútíðar andinn krefst. Ef þjóðin er í
flestum efnum eftirbátur annarra, má búast við að
kjami hennar flýi land og leiti gæfunnar, þar sem
menningin er meiri og skilvrðin betri.
\hð eigum afl í landinu, sem legið hefir ónotað
frá ómunatíð, vegna vankunnáttu, framtaksleysis og
fátæktar. Ef við náum eigi því afli og getum eigi
hagnýtt það af eigin ramleik, er eigi aðeins vansa
laust heldur skylt að fá þekkingu og fé frá öðrum
þjóðum til þess að velta því hlassi með okkur. En
í smærri greinum eigum við að treysta á okkar eig-
inn mátt, sem miklu getur til leiðar komið, ef menn
eru samtaka og hafa vilja á að vinna.
Ég nota tækifærið að þakka þeim mönnum, sem
begar hafa lagt hundruð og þúsundir króna til þess
að hrinda þessu fyrirtæki á stað, og ég óska að engan
þeirra þurfi að iðra þess, heldur njóti þeir — bein-
línis eða óbeinlínis — vaxta þess fjár.
Hlutdeildabréf félagsins verða gefin út innan
skamms með mynd af þessari fyrstu flugvél, sem til
landsins hefir flutzt. Herra Halldór Jónasson, Vonar-
stræti 12, veitir áskriftum og hlutafé móttöku.
Nelson sagði forðum, þegar mikið lá við, að ætlast
væri til þess, að hver gerði skyldu sína. Nú efast ég
ekki um, að margir finni sér ljúft og skylt að veita
lið góðu málefni.
Ég hlakka til að líða um loftið og njóta útsjónar-
innar, og ég veit, að víðsýnið úr flugvélinni muni
örva menn bezt til eflingar þessa fyrirtækis og ann-
arra dáðríkra starfa. Þess vegna og til ágóða fyrir
félagið mun mönnum verða gefinn kostur á að
skreppa í loft upp, næstu daga, ef veður leyfir.
Munu menn þá sannfærast um ágæti þessara nýju
samgöngutækja.
*
Að endingu bið ég „hann, sem stýrir stjama her,“
að bægja slysum og dauða frá þeim, sem ferðast á
þessum nýju farartækjum, og að þau verði landi og
lýð til blessunar.
G. G.
í rá Flu.éiélagi íslands.
Fyrstu níu mánuði ársins 1949 hafa flugvélar Flugfélags ís-
lands flutt samtals 27.932 farþega, þar af 23.560 innanlands
og 4.372 á milli landa. Á sama tímabili í fyrra flutti félagið
alls 23.077 farþega, og hefir þannig aukningin í ár numið
um 20%.
Vöruflutningar innanlands hafa aukizt rnikið í ár. en á níu
fyrstu mánuðum ársins fluttu flugvélar F.í. 106.534 kg. af
ýmiskonar vörum, aðallega landbúnaðarafurðum, svo sem kjöti,
ull, rófum 0. fl. Þá var flutt allniikið af fóðurbæti og bygg-
ingarefni til Fagurhólsmýrar í Öræfum, en þaðan var svo aftur
flutt til Reykjavíkur kjöt 0. fl. í haust var dráttarvél (traktor)
flutt loftleiðis með einni af Douglas flugvélum félagsins. Er
þetta í fyrsta skipti, sem slíkur gripur er fluttur með flugvél
hér á landi í heilu lagi. Dráttarvélin vóg uni 1100 kg., og var
lienni ekið af palli vörubifreiðar inn í flugvélina, eftir að öll
sæti og ýmislegt annað hafði verið tekið í burtu.
Póstflutningar með flugvélum F.í. frá áramótum til sept-
emberloka námu um 67 smálestum, og er það svipað magn
og á sama tíma í fyrra.
Þann 20. september s.l. flaug roo þúsundasti farþeginn með
F.f. Farþeginn var Jófriður Halldórsdóttir hjúkrunarkona úr
Reykjavík, og flaug hún til Akureyrar með Douglas flugvél-
inni „Glitfaxa". Er Jófríður sté upp í flugvélina, var henni
tilkynnt, að hún fengi ferðina norður og til baka ókeypis og
sömuleiðis ferð til útlanda.
Þann 26. október lenti Douglas flugvél frá F.í. í fyrsta skipti
á hinum nýja flugvelli við Sauðárkrók. Voru reglubundnar flug-
ferðir hafnar þangað 29. sama mánaðar, og er nú flogið á
miðvikudögum og laugardögum. Umboðsmaður F.í. á Sauðár-
króki er Valgarð Blöndal, kaupmaður. Eru ferðir þessar mikil
samgöngubót fyrir íbúa Sauðárkróks og nærliggjandi sveita,
einkum þó á vetrum, þegar snjóar tálma samgöngur á landi
og erfiða mjög alla aðflutninga. Reglubundnum flugferðum
er nú haldið uppi til 16 staða innanlands með flugvélum F.f.
eftir að ferðir til Sauðárkróks voru teknar upp.
í októbermánuði voru fluttir alls 1923 farþegar með flug-
vélum F.Í., þar af 1623 í innanlandsflugi og 300 á milli
landa. Vöruflutningar innanlands hafa aldrei verið jafn miklir
og í októbermánuði.
Flutt voru samtals 80.299 kílógrömm af vörum, en það
er um helmingi meira magn en flutt hefir verið áður á einum
mánuði. Póstflutningar með flugvélum F.f. í október námu
5.207 kg.
FLUG
Ffug keniur að þessu sinni út tvöfaft og er óvenju
(jölbreytt að efni. Hins biður Fíug lesendur sína vel-
virðingar á, hversu mjng hefur dregizt að koma þessu
blaði 1it, cn til þess Jigg/a ýmsar ástæður, sem ekki
verða raktar hér. Ef aJJt gengur að óskum, er í ráði að
koma 5. tbl. út um eða fyrir áramót, en ef það tekst
ekki, koma 5. og 6. tb]. út eins (Ijótt og auðið er
eftir áiamótin, og er þar með loforðum útgáfunefndar
blaðsins við Jesendur fullnægt
FJug vill vek/a athygli lesenda á því, að það tekur til
birtingar hvers konar aðsent efni, sem nýtilegt má telj-
ast og varðar flug eða flugmál. Væri æskiíegast að slíkar
greinar berist ritst/óranum hið allra fyrsta.
36 - FLUG