Flug : tímarit um flugmál - 01.08.1949, Side 45
í byrjun júnímánaðar konru hingað þeir Capt. A. B.
Youell og hr. M. Finch vélaverkfræðingur, er falið
hafði verið að kenna tveinrur flugmönnunr að fljúga,
svo og að kenna tveimur íslenzkum vélvirkjum með-
ferð vélarinnar. Þann 10. júní rná telja mikinn merkis-
dag í íslenzkum flugmálum, vegna þess að þann dag
hefur fyrsta Helicoptervélin sig til flugs á íslandi.
Skýrði Halldór Kjartansson frá því, að lánstíminn,
sem hefði verið miðaður við sex mánuði og 75 klukku-
stundir samtals í lofti, væri nú útrunninn. Að öðru
leyti vísaði Ilalldór til Slvsavamafélags íslands, Land-
helgisgæzlunnar og annarra aðila, er mest höfðu með
tilraunir þessar að gera.
Forseti Slysavarnafélags íslands, hr. Guðbjartur
Ólafsson, tjáði blaðinu, að margs konar tilraunir til
björgunar, sjúkraflutninga og leita að týndum nrönn-
um á heiðum uppi hefðu verið gerðar. Árangurinn
af tilraunum þessunr hefði verið svo góður, að Slysa-
varnafélag íslands hefði tilkynnt ríkisstjórninni, að
það hefði ákveðið að festa kaup á Helicoptervélinni
með vissum skilyrðum, einkanlega að ríkissjóður, með
tilliti til notkunar á vélinni til landhelgisgæzht, tæki
á sínar herðar allan kostnað af rekstri vélarinnar. Hr.
Jón Oddgeir Jónsson fulltrúi Slysavarnafélags íslands,
sem falið hafði verið að taka þátt í tilraunum þess-
um bf’xir hönd félagsins, kveðst vera rnjög ánægður
með árangurinn, og telur æskilegt að hægt verði að
taka Helicopterinn til raunhæfrar notkunar sem allra
fyrst.
Hr. Pálmi Loftsson forstjóri Skipaútgerðar ríkisins
hefir gefið blaðinu þær upplýsingar, að tilraunir þær,
sem Skipaútgerðin lét gera í sambandi við landhelgis-
gæzlu undir forustu hr. Þórarins Björnssonar skip-
herra og hr. Lárusar Eggertssonar björgunarfræðings,
hafi tekizt með þeim ágætum, að Skipaútgerðin hafi
með bréfi tilkynnt flugmálaráðuneytinu, að Skipa-
útgerðin mæli með kaupum á vélinni til landhelgis-
gæzlu, í samvinnu við Slysavarnafélagið, sem mvndi
nota hana til björgunar og sjúkraflutninga.
Blaðið hefir einnig snúið sér til þeirra tveggja ís-
lenzku flugmanna, sem lærðu að fljúga Helicopter-
vélinni, og fara hér á eftir stutt samtöl við hvom
þeirra. Karl Eiríksson minntist á það, að það, sem
upphaflega hefði vakið athygli sína á Helicopter-
flugvélum, hefði verið sú staðreynd, að hann hefði
verið vitni að því, er kalla mátti yfirnáttúrlega björg-
un tveggja barna, sem flutu á ísjaka niður eftir
Niagarafljótinu og bjargað var úr Helicopter-flugvél
á síðustu stundu, eftir að allar aðrar tilraunir til
björgunar höfðu mistekizt. Karl telur tvímælalaust að
koma rnegi við björgun úr Flelicoptervél í mörgum
tilfellum, þar sem að enginn kostur sé að beita öðr-
Helicopterinn yfir Reykjnvik.
FLUG - 43