Flug : tímarit um flugmál - 01.08.1949, Blaðsíða 52
Sacramenlofljótið.
djúpur og þröngur dalur. Voru þar nokkur smábýli
og þorp, járnbraut lá með fram hlíðinni og Sacra-
mentoáin rann eftir dalbotninum og út í mjög kvísl-
ótt vatn. Voru þar margir sumarbústaðir og víða
fagrar brýr yfir kvíslarnar.
Komum við nú niður í Sacramentodalinn, og héld-
um til að byrja með að við værum villtir. Við höfð-
um heyrt, að þetta væri óvenjulega gróðursæll dalur.
en við sáum ekki stingandi strá. Þegar neðar kom
breyttist þetta, en það voru ekki meir en 1—2 km.
til hvorrar handar út frá ánni, sem rann eftir miðjum
dalnum, senr var ræktaður. Voru þar nær eingöngu
aldingarðar. Hitinn var óþolandi, 110—115° F, en
loftið var þurrt og bætti það úr. Þessir miklu hitar
gerðu, að ekki var hægt að rækta neitt nema á því
svæði, sem vatn til vökvunar var fyrir hendi.
Eftir 21/9 klst. flug lentum við í Redding og vor-
um nú komnir í hið sólríka Californíuríki. Við vor-
um búnir að fljúga 6 klst. 15 mín. þennan dag, en
Landar i San Francisco.
Islenzki konsúllinn i miðið.
TÍMARIT UM FLUGMÁL /
/ RITSTJÓRI: /
ÞORSTEINN JÓSEPSSON. /
l ÚTGEFANDI: FLUGÚTGÁFAN j
Í(Félag islenzkra einkaflugmanna, /
Félag islenzkra atvinnuflugmanna, /
Flugvirkjafélag íslands, /
( Svifflugfélag íslands.) (.
| Utanáskrift: FLUG, P. O. Box 56, Reykjavík. '(
) Umboðsmenn: )
( Gísli Ólafsson og Kristinn Hallson, Reykjavik. /
/ Áskriftargjald kr. 35.00 árg. Greiðist fyrirfram. /
( PRENTSMIÐJAN ODDI H.F., REYKJAVÍK (
forvitnin eftir að sjá San Francisco dreif okkur áfram
eftir litla hvíld. Ætluðum við að lenda á velli, sem
heitir Fairfield, 165 mílur frá Redding.
Ekkert bar fyrir augun á leiðinni niður eftir Sacra-
mentodalnum, nema aldingarðalínan við ána og eyði-
mörkin báðum megin við hana. Fairfield lá á auðu
svæði, hvergi var hús eða maður sjáanlegur, og völl-
urinn lokaður. Næsti völlur var Valeejo, en okkur
leizt ekki á að fara áfram út af benzíninu. Það var
samt ekki um annað að ræða. Við treystum benzín-
mælinum, sem sýndi að við höfðum tæplega 1/ eftir,
og héldum til Valeejo. En heldur voru þær óþægi-
legar síðustu tíu mínúturnar, eftir að fór að skína í
núllið. Við okkur blasti San Francisco-flóinn, og þar
sem farið var skyggja, voru tendruð ljósin í San
Francisco, Oakland og Berkeley. Var það stórkost-
legt á að líta. Og ekki ber að gleyma brúnum frægu,
Gullna hliðinu og Oaklandbrúnni.
Að lokum lentum við, vorum við þá búnir að vera
9 klst. og 35 mín. á lofti. Vorum við svo þreyttir,
að við letum mennina hugsa um dótið og vélina,
Og flýttum okkur beint í rúmið.
50 - FLUG