Heimili og skóli - 01.08.1961, Blaðsíða 5

Heimili og skóli - 01.08.1961, Blaðsíða 5
Heimili og skóli TÍMARIT UM UPPELDISMÁL 20. árg. Maí—Ágúst 1961 3.-4. hefti Forvitni Einu sinni, og það er ekki langt síðan, var forvitni talin deiðinleg ódygð, og foreldrar töldu það skyldu sína að halda henni sem mest í skefj- um hjá börnum sínum. Það er satt, að sú tegund forvitni hjá fullorðnu fólki, sem birtist í hnýsni um annarra hagi og annarra líf, er heldur leiðinleg, en forvitni hjá börnum er allt annars eðlis. Og foreldrar, sem reyndu, eða reyna kannski enn, að bæla hana nið- ur, vita ekki, að þeir eru að kæfa heilaga glóð, sem hverjum manni er í brjóst lagin: — sjálfa þekkingarþrána, sem knúið hefur mannkynið áfram til meiri og meiri menningar og þroska um óteljandi aldaraðir. Þessi þrá verð- ur að vísu aldrei kæfð eða slökkt, en það má bæla hana og lama með óskynsamlegum viðbrögðum. En for- vitnin og þekkingarþráin eru eitt og hið sama. Þessi meðfædda, djúpa þrá fellur ekki í neinum farvegi hjá börnunum, þar er ekki um neina skipulagða leit að þekkingu að ræða, heldur tilviljanakennt fálm í hálf- gerðu myrkri. En það er okkar að skipuleggja hana og beina inn á vissar brautir. Spurningar barna eru því að vonum oft fávíslegar, en af þeim stafar þó oftast einhver yndislegur sætleiki og sakleysi, og stundum er erfitt að svara þeim rökrétt. En spurul börn eru oft- ast efnileg börn, það er því höfuðsynd að bregðast illa við spurningum þeirra, eða leiða hjá sér að svara. Hvort tveggja er bæði ómaklegt og óskynsamlegt. „Vertu ekki alltaf með þessar spurningar, barn.“ — „Þú færð að vita þetta seinna, þegar þú stækkar." — „Æ, þegiðu nú strákur, þú truflar mig!“ Skyldu ekki einhverjir kannast við þetta úr sínu eigin lífi? Hér eiga þó ekki allir óskilið mál. Til er fjöldi foreldra, sem hefur unun af að tala við börn sín og svara spurn- ingum þeirra, og þar held ég að mæð- urnar standi fremstar í flokki. Með því að svara ekki spurningum barnanna er verið að leggja stein í götu þeirra til meiri þekkingar og þroska. Hitt er svo annað mál, að það er ekki alltaf vandalaust að svara þess- um spurningum, en það verður alltaf að afgreiða þær á einhvern hátt, svo að börnin megi vel við una, hvekkist ekki og hætti að spyrja. En sé barni ekki svarað að staðaidri af ásettu ráði, eða leti og trassaskap, get-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.