Heimili og skóli - 01.08.1961, Blaðsíða 26
70
HEIMILI OG SKÓLI
Matreiðslupróf i skólaeldhúsinu.
— við honum og veitir honum forstöðu
um langt skeið, eða til ársins 1901.
Hann var þó aldrei nefndur skóla-
stjóri, heldur 1. kennari. Þegar hann
lætur svo af störfum, sem forstöðumað-
ur skólans af einhverjum ástæðum,
sem eru óljósar, verður hann enn
kennari við skólann til ársins 1926, og
hefur enginn kennari, hvorki fyrr né
síðar, starfað lengur við skólann nema
Magnús Pétursson, sem lét af störfum
haustið 1960.
Á þessum árum var allt smátt í snið-
um, og allt þurfti að spara. Það er í
frásögur fært, að það þurfti meira að
segja bæjarstjórnarsamþykkt til að fá
handa skólanum gólfsóp og gólfmottu.
Þeim, sem ekki áttu börn í skólanum,
þótti eyðslan til hans of mikil, en hin-
ir gerðu aftur kröfu um mannsæm-
andi aðbúð fyrir börn sín, svo að bæj-
arstjórn var eins og milli steins og
sleggju. Skólinn var mjög illa sóttur,
kannski vegna skólagjaldanna, og
kveður svo rammt að þessu, að árið
1882 er látinn ganga listi um bæinn,
þar sem foreldrar eru hvattir til að
láta innrita börn sín í skólann, en það
upplýstist, að enginn hafði skrifað á
listann.
í þessum skóla, eins og öllum öðrum
skólum á þessum árum, var alger