Heimili og skóli - 01.08.1961, Qupperneq 50
94
HEIMILI OG SKÓLI
Alið börn yðar upp með styrkri en
réttlátri hendi. Látið aldrei reiði yðar
koma yður úr jafnvægi. Ef barnið
finnur, að þér sýnið réttlæti, missið
þér hvorki virðingu þess né kærleika.
Munið að hvert barn þarf að eiga
tvo foreldra. Takið aldrei afstöðu með
barninu gegn maka yðar. Það getur
orðið til þess að barnið (og þér sjálfur)
verðið haldin lamandi sektartilfinn-
ingu.
Látið ekki litla eftirlætið yðar fá
allt, sem það óskar. Kennið því að
meta hversu það er eftirsóknarvert, að
vinna sjálfur eitthvað til þess að fá
þetta eða hitt. Látið það reyna gleðina,
sem því er samfara, að verðskulda
laun.
Notið ekki tilviljanakennd loforð
eða hótanir, því að böm taka orð for-
eldra sinna hátíðlega, og ef þeir hafa
á annað borð glatað trausti barna
sinna, eiga þau erfitt með að treysta
öðrum.
Reynið ekki að verja barn yðar fyrir
hvers konar árekstrum eða vonbrigð-
um. Mótblástur styrkir skapgerðina og
eykur skilning á öðrum, sem hafa sitt-
hvað við að stríða. Ekkert færir menn-
ina eins saman og sameiginlegir erfið-
leikar og mótgangur.
Gerið barni yðar það ljóst, að ströng
vinna felur í sér verðmæti, hvort sem
hún er unnin af börkuðum höndum,
sem halda urn rekuskaptið eða af fín-
gerðum höndum skurðlæknisins.
Kenn þeim að starfsamt líf er ham-
ingjusamt líf. En líf, sem er í eilífum
eltingaleik við skemmtanir og lysti-
semdir — Líf, sem er á flótta undan
öllum skyldum — endar í bitrum tóm-
leika. Þýtt. H. J. M.
Bækur og rit
Blik, ásrrit Gagnfrœðaskólans
i Vestmannaeyjum.
Heimili og skóla hefur verið sent þetta
myndarlega rit, og er það hvorki meira né
minna en 238 blaðsíður með miklum fjölda
greina og mynda.
Blaðsíðutalið segir þó ekki mikið, þegar
um gildi bóka er að ræða, hitt er meira um
vert, að ritið flytur fjölda fróðlegra greina,
svo sem persónusögur, marga þætti um menn-
ingarlíf í Vestmannaeyjum, bæði fyrr og síðar,
þróun atvinnumála og margt fleira, og þegar
þess er gætt, að þetta er 22. árgangur ritsins,
má nærri geta, að hvergi mun vera að finna
annan eins fróðleik um sögu Vestmannaeyja
og hér, og mun ekki nokkurt byggðarlag á ís-
landi eiga slíkar heimildir um sögu sína síð-
astliðna hálfa öld og jafnvel lengur. Þegar á
þetta er litið, hygg eg að ókomnar kynslóðir
standi í mikilli þakkarskuld við Þorstein
skólastjóra Víglundsson, sem hefur alltaf
verið ritstjóri Bliks. Hann hefur með þessari
útgáfu haldið mörgu til haga úr sögu Eyja,
sem annars hefði glatazt.
Þetta rit hefst á hugvekju eftir ritstjórann,
sem hann flutti við skólasetningu haustið
1960. Það er fyrir margra hluta sakir langat-
hyglisverðasta greinin, og ég trúi ekki öðru
en að hún róti við hugum manna, einkum í
Vestmannaeyjum, og það hlýtur að vera ósk
allra, einnig utan Eyja, að hinum harðdug-
legu Eyjabúum takist að ráða bót á því vanda-
máli, sem þar er rætt.
Blik er Gagnfræðaskólanum í Vestmanna-
eyjum til sóma.
Umferðabókin.
Svo nefnist lítil bók, sem Ríkisútgáfa náms-
bóka hefur gefið út og flytur, eins og nafnið
bendir til, leiðbeiningar um umferðamál.
Þetta er hin þarfasta og girnilegasta bók og
ætti að geta orðið mikil hjálp við kennslu í
umferðareglum. I bókinni er fjöldi litmynda
til skýringar lesefninu, og hér er umferðaregl-
unum gerð rækilegri skil og betri en áður
hefur sézt á prenti. Bókin er í smáköflum, og