Heimili og skóli - 01.08.1961, Blaðsíða 29
HEIMILI OG SKÓLI
73
mundsson guðfræðikandidat. Hann
hlaut stöðuna. Síðustu skólastjóraár
frk. Halldóru og fyrstu skólastjóraár
Steinþórs voru að mörgu leyti erfið
vegna heimsstyrjaldarinnar fyrri og af-
leiðinga hennar.
Um þessar mundir eru skóla-
börn orðin um 200 og fer nú að
sverfa að með húsnæði, og þá meðal
annars vegna þess, að nú er farið að
gefa óskólaskyldum börnum kost á að
sækja skólann með 40 kr. skólagjaldi.
Letta er að verða knýjandi nauðsyn
vegna hrakandi lestrarkunnáttu. Og
eru nú uppi umræður um byggingu
nýs skóla og skólabygging síðan hafin
uppi á Brekkunni, þar sem nú stendur
Barnaskóli Akureyrar. Var það mikil
bygging og vönduð, og hefur
Steinþór skólastjóri vafalaust unnið
ötullega að því að hrinda henni
af stað. En nú hverfur hann frá skól-
anum með skjótum hætti haustið
1929, og er Ingimar Eydal kennari
settur skólastjóri næsta vetur.
Enn var skólaskyldan aðeins frá 10
ára aldri, en nú samþykkir skólanefnd
og bæjarstjórn að færa skólaskylduna
niður í 8 ár og kom sú breyting til
framkvæmda næsta haust, 1930, og
fjölgar þá nemendum skólans veru-
lega.
Enn var skólastjórastaðan auglýst og
sækja nú þrír um hana. Þeir Jón Sig-
urðsson, kennari við skólann, Jónas
Guðmundsson, kennari á Norðfirði og
Snorri Sigfússon, skólastjóri á Flateyri.
Snorra var veitt staðan.
/ lestrarstofunni.