Heimili og skóli - 01.08.1961, Side 48

Heimili og skóli - 01.08.1961, Side 48
92 HEIMILI OG SKÓLI menntaskólum, sagði ég, eru það að- eins fáar stúlkur, sem hafa áhuga á háskólanámi. „Ykkar menning vekur snemma á- huga ungu stúlknanna fyrir kynferð- islífi og hjónaböndum," sagði hún. „Hér fara ungu stúlkurnar alls ekki að hugsa um pilta fyrr en um 16 ára aldur. En á þessum tíma liafa stúlk- urnar okkar náð verulegum vitsmuna- legum þroska. Ef stúlkurnar fara allt of snemma að hugsa um pilta, missa þær allan áhuga fyrir að afla sér há- skólamenntunar.“ Hún hafði við nokkuð að styðjast. í voru samfélagi alast börnin upp í kynferðislega mettuðu andrúmslofti. Við þurfum ekki annað en líta á aug- lýsingar, hvort sem um er að ræða sápu, tannkrem, öl, kæliskápa eða sígarettur. Þá hafa kvikmyndirnar þarna mikil áhrif. Fyrir skömmu gekk ég fram hjá kvikmyndahúsi einu, skömmu áður en síðdegissýning átti að hefjast. þarna var geysilöng biðröð framan við aðgöngumiðasöluna, og þegar ég leit yfir hópinn, sá ég að þarna var meirihlutinn börn. En hvaða mynd var það nú, sem dró að sér svo marga og unga áhorfendur? Það var áreiðanlega ekki Andrés önd. Auglýsingarnar úti fyrir kvikmynda- húsinu tilkynntu tvöfalda skemmti- skrá: Fyrst var ægileg hryllimynd, en á eftir kom svo mynd, þar sem höfuð- hlutverkið var leikið af frægri, franskri kynbombu. En hún var þá um þessar mundir mjög umtöluð í dagblöðun- um, einkum vegna hjónabandsflækju og tilraunar til sjá'lfsmorðs. Er nú að undra þótt börn vorra tíma séu í hugarheimi sínum mörg ár á undan hinum eðlilega þroska? Bréf eitt, sem ég fékk frá skólastúlku er táknrænt fyrir það sjúklega ástand, sem vor tíð er haldin af. Kæra Anna Landers! Ég er bráðum 13 ára. Ég á margar fallegar prjóna- treyjur og stuttjakka. En ég hef ekki mikið til að fylla þær út með, ef þér skiljið þetta. Getið þér ekki sagt mér hvort ekki muni vera til einhver smyrsl eða hvort ekki eru til einhverj- ar hentugar æfingar til að flýta þarna fyrir?“ Slík bréf koma mér til að spyrja: Hvernig eru foreldrar slíkra barna? Sumir hafa stungið upp á eftirliti. En sú leið er hættuleg. Það gæti ógnað frelsi voru. Ábyrgðin á ungmennunum, að þau sýkist ekki af óhollum áhrifum og fremji ekki heimskupör, hvílir sannar- lega á foreldrunum. Unglingar, sem aldir eru upp til að skilja hin sönnu verðmæti lífsins og viðurkenna á- kveðnar siðgæðiskröfur, fara ekki út af sporinu, þótt þeir sjái mjaðmalið- ugan rokksöngvara, sem kann þó ekki að syngja, eða brjóstamikla film- stjörnu, sem kann þó ekki að leika gamanhlutverk. Allir foreldrar hafa tekið eftir því, að börn þeirra vita snemma um mis- mun lítilla drengja og stúlkna. Ef þeir veita börnum sínum sanna fræðslu, þegar það spyr, um hvaðan litlu böm- in komi og hvers vegna það sé mis- munur á drengjum og telpum, eða hvað þeim dettur nú í hug að spyrja um, mun þeim alls ekki finnast það neitt merkilegt, þegar félagarnir eru að hvíslast á um kynferðismál. Hinir ungu, sem fengu snemma að vita að

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.