Heimili og skóli - 01.08.1961, Side 34
78
HEIMILI OG SKÓLI
Skólinn verður að kynna æskunni
störfin, sem fiennar bíða.
Norðmenn eru nú að breyta skóla-
kerfi sínu þannig, að níu ára skyldu-
nám tekur við af sjö ára skyldunámi.
Skólaganga hefst þegar börnin eru 7
ára. Barnaskólinn verður framvegis
annað hvort 6 plús 3 ár eða 7 plús 2 ár.
Einstök skólahverfi geta ráðið því sjálf
hvort þau velja heldur og jafnvel ein-
stakir skólar.
Eg bað Einar Jensen skrifstofustjóra
á fræðslumálaskrifstofunni í Björgvin
að segja mér eitthvað frá þessum
breytingum og fer frásögn hans hér á
eftir.
„Aðalástæðan til þess, að við höfum
iengt skólaskylduna er sú, að okkur er
Ijóst að sleppi skólinn hendinni af 14
ára unglingi er hann i'lla undir það
búinn að velja sér ævistarf og á bams-
aldri er tilgangslaust að hefja eigin-
lega starfsfræðslu. Síðustu skólaárin
hafa því tvenns konar hlutverki að
gegna. Veita almenna menntun og
búa unglingana undir val ævi-
starfs. Merkilegasta átakið, sem við
höfum gert í starfsfræðslumálunum er
að auk starfsfræðslustofnananna, sem
við höfum í öllum stærri bæjum og
fylkjum, verður nú sérstakur uppeldis-
málaráðunautur við hvem unglinga-
skóla og verður hlutverk hans að leið-
beina þeim ungu um náms- og starfs-
val í samráði við kennara, foreldra og
starfsfræðslustjóra. Þessir uppeldis-
málaráðunautar hafa enga kennslu-
skyldu en verða til viðtals í skólunum
og halda erindi í bekkjunum eftir því,
sem þurfa þykir. Gert er ráð fyrir, að
þessir menn hafi annaðhvort háskóla-
próf í sálfræði eða magisterpróf í upp-
eldisfræði- Launakjör þeirra verða hin
sömu og lektora og ætti það að tryggja
áhuga sálfræðinga á starfinu."
„Þér nefnduð lektorslaun. Við hvað
eru þau miðuð“?
„Norskir kennarar fá laun eftir því,
hvað þeir kenna margar kennslustund-
ir á viku og hvaða menntun þeir hafa.
Maður, sem hefur lektorsmenntun
hefur verið 7 ár í háskóla og hann
kennir 22 stundir á viku og fær sömu
laun við hvaða skóla, sem hann kennir,
jafnvel þótt hann kynni að kenna við
barnaskóla. Eins og stendur hefur
norskur lektor (launin eru tilfærð hér
í íslenzkum krónum) 91.292.50 kr. í
byrjunarlaun, en hámarkslaun hans
eru 144.352.50 kr.“
„Eru þaðekki talin góð laun í Nor-
egi?“
„Jú, kennarastéttin er allvel laun-
uð.
Næstir í launastiganum eru ad-
junktar. Það eru menn, sem hafa 4—5
ára háskólamenntun. Byrjunarlaun
þeirra eru 82.415.00 kr. en hámarks-
laun 130.645.00 kr.
Kennari, sem kennir í barnaskóla og
lokið hefur kennaraprófi frá venjuleg-
um kennaraskóla, kennir eins og