Heimili og skóli - 01.08.1961, Blaðsíða 35

Heimili og skóli - 01.08.1961, Blaðsíða 35
HEIMILI OG SKÓLI 79 stendur 36 stundir á viku, en verið er að semja um að lækka kennsluskyldu hans í 30 stundir á viku. Byrjunarlaun hans eru 79.500.00, en hámarkslaun 108.120.00 kr. ef hann kennir í barna- skóla. Kenni sami maður í uruflinoa- skóla er kennslustundafjöldinn að- eins 24 stundir á viku og launin 78.440.00 byrjunarlaun, en 105.702.50 hámarkslaun. í reynd verður útkom- an önnur vegna þess, að þessir menn fá alltaf aukatíma við skólann. Loks eru kennarar, sem hafa auk venjulegrar kennaramenntunar 2 ára framhaldsmenntun. Byrjunarlaun þeirra eru hin sömu og hinna, sem enga aukamenntun hafa, eða 78.440.00 kr., en hámarkslaun eru 122.695.00 kr..“ „Og hvernig verður svo fyrirkomu- lag hins nýja unglingaskóla?" „í 7. bekk verður lögð mikil áherzla á náms- og starfsfræðslu, þannig að unglingarnir verða ekki aðeins frædd- ir um helztu atvinnuvegi okkar Norð- manna, en einnig um hinar ýmsu deildir, sem um er hægt að velja í 8. bekk.“ „Og þær deildir ieru?“ „Tæknideild, sjómannadeild, heim- ilisfræðsludeild (aðallega ætluð stúlk- um), verzlunardeild, félagsmáladeild, deild listrænna starfsgreina, og loks tvær almennar deildir, sem búa nem- endur undir framhaldsnám í mennta- skóla eða gagnfræðabekk. Lögð verð- ur rík áherzla á að beina unglingum inn í þær deildir, þar sem hæfileikar þeirra geta notið sín bezt. Mikilvægur liður í starfs- og náms- fræðslu skólanna eru kvikmyndasýn- ingar, en við eigum nú orðið allfjöl- breytt kvikmyndasafn, sem sýnir ung- lingunum flestar starfsgreinar, er við Norðmenn leggjum stund á. Kennara- stéttin liefur lengi gert sér grein fyrir því að gera þyrfti meira að því að búa unglingana undir atvinnulífið þann- ig, að fjöldi kennara er nú þegar all- vel fær um að veita þá náms- og starfs- fræðslu, sem þeim ber skylda til að veita, og sem aðallega er veitt í norsku, landafræði og félagsfræðitímum. iÞað fer svo nokkuð eftir landshlutum og atvinnulífi hvers héraðs á hvaða starfs- greinar er lögð mest áherzla. Starfsfræðslan verður nefnilega að miklu leyti byggð upp í sambandi við atvinnulífið. í 8. bekk er starfsfræðsla skyldunám í 30 kennslustundir og í 9. bekk 20, en þar er aðeins um fræðilega starfsfræðslu að ræða. í 8. bekk er gert ráð fyrir, að nemendurnir verði a. m. k. tvær vikur í vinnustöðum, annað hvort tvær vikur að hausti eða vori eftir því um hvaða starfsgrein er að ræða, eða eina viku að haustinu og aðra að vorinu. Takmarkið er þó að dreifa þessari fræðslu atvinnulífsins sjálfs yfir miklu lengri tíma t. d. 1—2 tíma á dag yfir mestallt skólaárið. Hlutverk uppeldismálaráðgjafanna verður m. a. að hafa forgöngu um að útvega nemendum pláss á vinnustöð- um og jafnvel koma þeim í atvinnu að sumarlagi. í níunda bekk beinist fræðslan í hagnýtu bekkjunum mest að sérstök- um starfsgreinum, þar getur t. d. verið um að ræða átta mánaða sjómennsku- fræðslu bæði á sjó og landi. Er þá vor- ið notað til sjóferða, en veturinn til fræðslu á landi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.