Heimili og skóli - 01.08.1961, Page 36
80
HEIMILI OG SKÓLI
WINDELL JOHNSSON, prófessor við Iovaháskólann:
EF BARNIÐ PITT STAMAR
Johnny Blake var aðeins þriggja
ára, þegar faðir hans, sem var að fara
til vinnu sinnar, mætti fjölskyldu-
lækninum og skýrði honum frá, að
drengurinn væri farinn að stama.
Hann var farinn að endurtaka hljóð
og orð, og faðir hans lét í ljós þann
grun, að drengurinn væri haldinn af
alvarlegum málgalla, og bað nú lækn-
inn ásjár. JÞegar læknirinn hafði ekki
eftir öðru að fara en þessu eina orði
„stama“, ráðlagaði hann, að láta
drenginn anda djúpt áður en hann
segði nokkuð. Johnny reyndi eftir getu
Vísindamenn telja sig nú hafa
fundið ástæðuna til þess að böm
fara að stama, og hvernig hægt er
að Iækna menn af þessum leiða
málgalla.
að fara eftir þessu, en eftir tvo daga
var þessi djúpi andardráttur orðinn
að eins konar hjálparvana andvörp-
um, 02: drengurinn átti erfitt með að
koma nokkru orði út úr sér.
Til allrar hamingju var hann send-
ur til talkennara við Iovaháskólann,
og þar fengum við tækifæri til að
hjálpa honum. Það gerðum við í fyrsta
lagi með því að róa foreldra hans og
gera þeim 'ljóst í stórum dráttum,
hvernig venjuleg börn tala. Og þegar
foreldrar Johnnys höfðu gert sér grein
fyrir, hvað hér var um að vera, fór
Sé mjög erfitt að koma unglingum
á vinnustaði, vegna þess að atvinnulíf
er fábreytt á staðnum, er gert ráð fyrir
þeim möguleika að koma á fót skóla-
verkstæðum.
„Verða ekki starfsfræðslustofnanir
atvinnumálaráðuneytisins óþarfar,
þegar skólinn hefur tekið eins mynd-
arlega á starfsfræðslumálum og raun
ber vitni?“
„Nei, langt frá því. Starfsfræðslu-
miðstöðin í Oslo þarf m. a. að útbúa
alls konar fræðsluefni handa nemend-
um og kennurum, sjá um að atvinnu-
spjaldskráin sé í lagi o. m. fl.
Starfsfræðslustjórar hinna einstöku
bæja og fylkja þurfa m. a. að sjá um
fræðsluhefti handa unglingum þess
fylkis, sem þeir starfa í, vera uppeldis-
málaráðgjöfunum til aðstoðar, hæfi-
prófa þá, sem þess óska o. fl.
Við gerum okkur vonir um mikið
og gott samstarf við starfsfræðslustjór-
ana og ekki mun af veita ef takast á að
koma sem flestum ungum mönnum
og konum á sem réttasta hillu í því
margbrotna völundarhúsi, sem kallast
norskt atvinnulíf."
Ólafur Gunnarsson.