Heimili og skóli - 01.08.1961, Side 37

Heimili og skóli - 01.08.1961, Side 37
HEIMILI OG SKÓLI 81 drengurinn að tala á eðlilegan hátt. Starf mitt við að lækna þá málgalla, sem kallað er stam, hófst með næstum örvæntingarfullri tilraun til að finna orsakir til þess að ég fór að stama og aðferð til að lækna þetta fyrirbrigði. Þegar við hófum rannsóknir við Iovaháskólann 1934, var ekki enn fundin nein vísindaleg skýring á því, af hverju þetta fyrirbrigði stafar. Þótt milljónir manna út um allan heim þjáist af þessu sjúklega fyrirbæri. Við þykjumst þó geta sagt það, að stamið muni eiga sín fyrstu upptök í eins konar mistökum eða óhappi, og einn- ig, að þetta sé óhapp, sem hægt er að koma í veg fyrir. Þessi málgalli fer fyrst >að verða að alvarlegu viðfangs- efni fyrir barnið, þegar foreldrarnir hafa skipað því þar á bekk. Þetta ier mikilvæg uppgötvun, ekki aðeins vegna foreldranna og kennaranna, heldur einnig vegna margra annarra fullorðinna- sem hafa stamað síðan þeir voru börn. Stundum getur það litið svo út sem stam gangi að erfðum. En rannsóknir okkar benda til, að þessi „arfur" stafi einungis frá umhverfinu. Árið 1939 stjórnuðu tveir nemendur mínir nám- skeiði fyrir fullorðið, stamandi fólk. I einni deild þessa námsskeiðs voru sex stamandi einstaklingar úr sömu fjöl- skyldunni. Þeir sögðu frá því, að í fjóra ættliði hafi alltaf verið meira og minna af stamandi fólki í ættinni og, að í fimmta ættlið stömuðu átta af 24 meðlimum fjölskyldunnar, eða hefðu gert það. í þessari fjölskyldu voru menn auðvitað sannfærðir um, að hér væri um arfgengi að ræða. Flestir þessara fjölskyldumeðlima notuðu sér einnig þá upplýsingaþjón- ustu sem Háskólinn veitti í þessurn efnum og það, sem þeir lærðu þar, hlýtur að hafa haft veruleg áhrif á uppeldi hinnar fi. kynslóðar, því að af börnum þessa ættliðar stamar ekki eitt einasta. — Hvers vegna? Móðir, sem sjálf stamaði, en átti börn, sem voru heilbrigð á þessu sviði, svaraði: „Vegna þess að við tölum ekki eins við okkar börn, þegar þau voru að læra að tala og foreldrar okkar töluðu við sín börn, þegar við vorum lítil.“ Til þess að komast að raun um, hvernig þessi málgalli þróast og til að finna leiðir til að lækna hann, höfum við undanfarin ár komið af stað þrenn- um rannsóknum, sem náðu til um það bil 300 barna, sem öll voru nýbyrjuð að stama og um það bil 1000 foreldra. Börnin og foreldrarnir voru þaulspurð um allar aðstæður og um óteljandi at- riði, sem hugsanlega gátu haft ein- hverja þýðingu í þessum efnum. Til samanburðar við þessar rannsóknir höfum við svo 500 börn, sem höfðu heilbrigt málfar. Þau voru þannig val- in, að þessir tveir flokkar svöruðu hvor til annars, barn fyrir barn, með tilliti til aldurs, kyns, gáfnafars o. fl. Við fundum engan mun á líkamleg- um þroska þessara flokka eða heil- brigðisástandi þeirra. Ekkert þessara barna höfðu orðið fyrir nokkru óhappi við fæðingu. í stórum dráttum voru þau öll farin að skríða, standa eða ganga, klæða sig sjálf og segja fyrstu orðin á sama ald- ursskeiði. Ekki var heldur hægt að finna neinn mun á börnunum varð- andi hreyfingar varanna, tungunnar, kjálkanna eða á andardrættinum.

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.