Læknaneminn - 01.10.1971, Qupperneq 21
LÆKNANEMINN
19
Meðferð:
Chloromycetin og gantrisin.
Verkanir penbritins voru ekki eins
öruggar.
Árangur:
Einn dó á 3ja degi. Einn, eins
mánaðar, fékk hydrocephalus og
var settur í hann Puns-ventill.
Ástand hans er sæmilegt 7 árum
seinna.
Yfirlit:
Hemophilus influenzae mening-
itis er lúmskur sjúkdómur, sem
auðvelt er að sjást yfir. Gangurinn
er hægur og batinn, og afleiðingar
eru oft slæmar.
III. Pneumococca meningitis:
1956 til 1971 voru 4 tilfelli.
Einkenni:
Sjúkdómurinn er venjulega fylgi-
kvilli lungnabólgu og einkennist af
hnakkastirðleika, krömpum og
sljóleika.
Pneumococcar ræktuðust úr
mænuvökva. Enginn dó. Engir
fylgikvillar, en vitað er, að af
þeirra völdum verða oft miklar
heilaskemmdir.
IV. Pyocyaneus meningitis:
Eitt tilfelli, 3ja daga drengur.
Einkenni:
Hár hiti, krampar, meðvitundar-
leysi.
Bacillus pyocyaneus ræktaðist
úr mjög púrúlent mænuvökva.
Sjúklingurinn dó á 8. degi.
Krufning var typisk fyrir pyocy-
aneus meningitis.
Meðferð:
Penicillin, chloromycetin og
sulfa.
Lokaorð:
Greining meningitis krefst oft
góðrar klínískrar dómgreindar,
sem oft ávinnst með langri
reynslu. En greiningin er aðalat-
riðið, sem hægt er að staðfesta
með mænuvökvarannsókn. Nær
aldrei er tími til þess að bíða eftir
næmisprófi eða ræktun. Undirrit-
aður vill benda á The Red Book,
sem gefin er út nær árlega, um
standard meðferð á smitandi sjúk-
dómum. (Report of the Committee
on Infectious Diseases, American
Academy of Pediatrics).
Björn Guðbrandsson
★—
SJÚKRATILFELLI.
„En sú aðferð, sem fólkið umkvartaði, var stundum með fiðringi, d'ofa,
hita og kulda viðbjóðsligum, stundum meir en stundum minna. Sumir
kvörtuðu um bríma um brjóstið, bakið og á ýmsum síðum, sumir um
nístingskulda, sumir um slög yfir höfuðið, sumir fyrir brjóstið, sumir
um böggul eða bita í kverkunum, sem færði sig stundum ofan að brjóst-
inu; sumar persónur voru slegnar í ómegin, sumar því nær. Hér að
auki: á næturnar hræðilegar fælur og að rúmin titruðu og hristust.
Svo og skriðu djöflarnir utanum fólkið, svo til að finna sem mýs væri.
Þó þetta allt saman lægi á mér sem allra þyngst, þá reyndu þetta þó
fleiri af fólkinu."
Úr Píslarsögu síra Jóns Magnússonar.