Læknaneminn - 01.10.1971, Qupperneq 34
30
LÆKNANEMINN
ÓLAFUR ÖRN ARNARSON, læknir:
Skurðaðgerðir á þvagfœrum
með háiíðnirafstraumi
Urologia er ung sem sjálfstæð
sérgrein. Áður fyrr bættu almenn-
ir skurðlæknar við sig nokkurri
aukaþekkingu í urologiu, og þessi
grein var álitin angi af almennum
skurðlækningum, þar sem sömu
undirstöðuatriðum var beitt með
nokkurri aðlögun að eiginleikum
þvagveganna. Síðustu áratugi hef-
ur þróunin hins vegar orðið sú, að
urologia er orðin sjálfstæð sér-
grein, þar sem beitt er sérhæfðum
aðferðum, sem krefjast sérhæfðr-
ar þjálfunar. Enn sem fyrr er uro-
logia fyrst og fremst kirurgisk
sérgrein, sem stendur þó talsvert
nær medicin en margar aðrar
kirurgiskar sérgreinar. Það, sem
að hafa farið út og haldið áfram
náminu, öllum líkar vel þarna, en
við erum auðvitað ekki ánægð með
það, sem er á undan gengið, þetta
var nokkuð dýrkeypt.
FS: Ef mér hefði verið kynnt
hvoru tveggja strax eftir stúdents-
próf og gefinn kostur á hvoru
tveggju, þá held ég, að ég hefði
valið Svíþjóð, þrátt fyrir kostn-
aðinn erlendis, og ég vona, að það
skiljist af því, sem ég hef sagt.
Námið þarna tekur flesta um 5 og
% ár, síðan kemur kandidats-
vinna, sem ég held, að sé 18 mán-
uðir, en ég veit ekki, hvort við
verðum að taka hana þar eða get-
um gert það hér heima.
ágúst ’71.
einkum skilur urolog frá almenn-
um kirurg, er þjálfun hins fyrr-
nefnda í endoscopiskum aðgerðum,
þ.e. aðgerðum á blöðru, blöðru-
hálskirtli og þvagrás með þar til
gerðum verkfærum.
Ætlunin er að kynna fyrir les-
endum Læknanemans eina tegund
aðgerða, það eru skurðaðgerðir
með rafstraumi af hárri tíðni (elec-
troresection). Þessar skurðaðgerð-
ir byggjast á hátíðniriðstraumi,
sem hleypt er í gegnum vef og sker
hann í sundur. Ef lágtíðnirið-
straumi er hleypt í gegnum líkam-
ann, veldur hann óæskilegum
tauga- og vöðvaviðbrögðum svo
sem krömpum. Sé tíðnin aukin yf-
ir 15 þúsund rið á sekúndu, hverfa
þessi viðbrögð. Tíðnin, sem notuð
er við rafskurð, er venjulega yfir
1 milljón rið á sekúndu. Tvenns
konar straumur er notaður, sker-
andi og brennandi, og er hægt að
blanda þessum straumum saman í
mismunandi magni.
Tækin, sem eru notuð til þess
að skera vefinn, eru kölluð resecto-
scope (rafskurðsjár), og voru ein
þeirra fyrstu kennd við Stern og
McCarthy. Fyrstu rafskurðsjárn-
ar voru búnar til á árunum 1925-
26, en ýmsar endurbætur hafa síð-
an verið gerðar. Verkfærið, sem
sýnt er á mynd 1 er kennt við
Iglesias. Talsvert er notað af skol-
vökva til þess að sjá betur við að-
gerð með þessum tækjum, því
nokkrar blæðingar eru óhjákvæmi-