Læknaneminn - 01.10.1971, Page 37
LÆKNANEMINN
33
að útskrifa sjúklinginn um það bil
6-7 dögum eftir aðgerð.
Fylgikvillar koma að sjálfsögðu
fyrir við þessa aðgerð eins og allar
aðrar aðgerðir. Þar, sem notuð er
brennsla við aðgerðina, skilur hún
óhjákvæmilega eftir sig nokkuð
af dauðum vef, og því er hætta á
sýkingum á eftir. Því þarf að
fylgjast vel með þessum sjúkling-
um, hvað það snertir, og hafa þá á
sýklalyfjum um nokkurt skeið.
Hætta á samgróningum og þreng-
ingum (stricturum) er alltaf nokk-
ur, en ef aðgát er höfð, er að
nokkru hægt að koma í veg fyrir
þær. Ef þrengingar myndast eftir
aðgerð, er oftast auðvelt að út-
víkka þær.
Önnur aðalnotkun rafskurðar er
greining og meðferð blöðruæxla.
Blöðruæxli eru mjög mis illkynja,
og er því undirstaða meðferðar á
þeim góð sýnitaka og greining á
eðli æxlisins, ennfremur glöggvun
á því, hversu djúpt æxlið er vaxið
inn í blöðruvegginn. Slíkum sýnum
er útilokað að ná nema með raf-
skurðsjá. Öll æxli, sem eru vel
greind (differentieruð) og yfir-
borðkennd, er hægt að meðhöndla
með rafskurði, þ.e.a. skera þau
burtu og blöðruvegginn undir
★
þeim. Þessi æxli eru 50-60% eða
meira af öllum blöðruæxlum. Tals-
verð endurnýjunarhætta er hins-
vegar hjá þessum æxlum, og því
er nauðsynlegt að fylgja sjúkling-
unum vel eftir með blöðruskoðun
(cystoscopi) á 3ja mán. fresti til
þess að byrja með. Árangur af raf-
skurði á velgreindum yfirborðsæxl-
um er mjög góður. Dauðsföll eru
lág, þannig að búast má við, að
dauðsföll af slíkum æxlum séu
lægri en 5% eftir 5 ár.
Illa greind (differentieruð) æxli
eru hinsvegar mjög illkynja, sér-
staklega ef þau hafa vaxið inn í
blöðruvegginn, og þarf þá að sjálf-
sögðu að beita öðrum aðferðum,
t.d. blöðrutöku, að hluta eða öllu
leyti, einnig cobolt geislum, allt
eftir því hvað við á. Til þess að
vita um ástand æxlisins þarf því
gott sýni, og eins og áður er sagt,
þá er útilokað að ná því nema með
rafskurðsjá.
Af framansögðu má vera ljóst,
að rafskurður er stór þáttur í
starfi þvagfærasérfræðings. Þetta
eru allvandasamar aðgerðir og
krefjast talsverðrar þjálfunar og
þekkingar á kostum þeirra og göll-
um.
★ ★
SPAKMÆLI.
Listin er langæ, lífið stutt, tækifærin hvikul, tilraunir áhættusamar
og dómur vandasamur. Nauðsyn krefur, að læknirinn gjöri allt sem í
hans valdi stendur til úrræða, en það er ekki nóg; sjúkling'urinn sjálfur
og aðstandendur verða og að vera honum hjálplegir, en þá er eigi heldur
hægt að sniðganga ytri áhrif.
Hippokrates.
★ ★ ★
Ætíð er meiri hætta á, að snöggt verði um mjög feita menn en þá,
sem holdgrannir eru.
Hippokrates. Spakmæli II, 44.