Læknaneminn - 01.10.1971, Page 58
I
50
LÆKNANEMINN
fylgir mikil fyrirgreiðsla. Alþjóðaheil-
brigðisstofnunin útvegaði eins og áður
er sagt skólavist og sá um öll sam-
skipti gagnvart stjórnvöldum í landinu
og háskólanum, og British Council var
umboðsmaður alþjóðaheilbrigðisstofn-
unarinnar á staðnum við útgreiðslu
styrksins.
Styrkurinn var 90£ á mánuði fyrstu
6 mánuði en hækkaði síðan vegna verð-
lagsbreytinga í Evrópu um 20£ á mán-
uði. Auk þess greiddi alþjóðaheilbrigð-
isstofnunin nokkurn styrk til bókakaupa
og ferðastyrki.
Bristol
Borgin Bristol I Englandi liggur úr al-
faraleið fyrir þá, sem fara til Englands,
og því er það, að fáir Islendingar þekkja
þar til. Borgin er staðsett á Suðvestur-
Englandi og er stærsta borg og aðal-
borg þar. Hún stendur við Bristol-flóa
og nokkuð frá árósum árinnar Avon, en
hún er þverá, sem rennur í ána Severn,
sem rennur í botn Bristolflóa.
Bristol er mjög gömul borg, 'og hennar
er getið í sögum fyrir byggð Islands.
Hún hét áður Bridgetow (The place of
the bridge) og var þekkt siglingaborg
mjög snemma á öldum.
Sem siglingaborg var hún þó fyrst
og fremst fræg á 14. og 15. öld, og
þaðan sigldi John Cabot 1497 og varð
fyrstur manna til þess að stíga fæti á
meginland Norður-Ameríku á eftir Leifi
Eiríkssyni, sem Islendingar þekkja
betur.
Síðar varð borgin fræg sem miðstöð
þrælasölu og þrælaflutninga frá Afríku
til Ameriku. Borgin var umskipunarhöfn
og geymslustaður svartra þræla, sem
fluttir voru frá Afríku, og á þeim ár-
um auðgaðist borgin mjög, og þar
bjuggu auðugustu og voldugustu kaup-
menn þeirra tíma.
1 dag er Bristol fyrst og fremst iðn-
aðarborg, en verzlun og siglingar eru
einnig stór þáttur í atvinnulífi borgar-
innar. Áður fyrr var höfnin inni í miðri
borginni, því eins og áður segir, stend-
ur borgin við ána Avon, sem er skip-
geng. En Bristolbúar hafa verið for-
sjálir, og nú hefur höfnin verið flutt úr
borginni í sérstaka hafnarborg, Avon-
mouth, þar sem mætast árnar Avon og
Sevem. Þar í kring hefur hið nýja iðn-
aðarsvæði Bristol risið upp um það bil
10 km frá miðbörginni. Því er borgin
ekki á að líta í dag eins og margar
iðnaðarborgir Bretlands, þar er engin
loftmengun að talizt geti og hreinlæti
i góðu lagi.
Af sérstökum iðnaði þá er flugvéla-
iðnaðurinn í Bristol frægastur. Á stríðs-
árunum fluttu Englendingar flugvéla-
verksmiðjur sínar til Bristol, og þar er
nú verið að smíða hinar frægu Concord-
þotur, og þar eru tilraunastöðvar brezks
flugvélaiðnaðar og brezka flughersins.
Af öðrum iðnaði má nefna geysi-
vaxandi efnaiðnað, stál- og zink-
bræðslu, tóbaks- og súkkulaðiiðnað og
fleira.
Háskólinn í Bristol
(University of Bristol)
Háskólinn í Bristol er ekki gamall,
tæplega 100 ára, en hefur eflst sérstak-
lega síðustu tvo til þrjá áratugi. 1
stríðslokin síðustu voru nemendur há-
skólans um 1000, en eru nú 7000.
Læknaskóli hefur verið þar frá byrjun
háskólans, en sérstakt nám i heilbrigð-
isfræði hófst 1891. Þess má geta, að
fyrsta D. P. H. skírteinið var gefið
út í Englandi frá háskóla 1870.
Department of Public Iíealth er sér-
stök deild við háskólann innan lækna-
háskólans. Þessi deild annast annars
vegar kennslu læknastúdenta í þessum
fræðum hins vegar kennslu til D.P.H.
prófs. Læknastúdentar fá tvö námskeið
á námstímabilinu, annars vegar stutt
kynningarnámskeið snemma á náms-
tíma hins vegar lengra námskeið nokkru
fyrir lok námstíma.
Aðalhlutverk deildarinnar er fram-
haldsnám lækna til D. P. H. prófs, og
verður um það nám sérstaklega rætt
hér.
Þess má geta, að í tengslum við
stofnunina er skóli fyrir hjúkrunarkon-
ur, sem eru að læra heilbrigðisfræði
(Health Visitors), og auk þess er þar
hluti af skýrsluvélabúnaði háskólans,
því að faraldsfræðilegar rannsóknir eru
fyrst og fremst unnar í eða í tengslum
við deildina.
1 Bretlandi er nám til D.P.H. gráðu
sérnám þeirra lækna, sem ætla sér að
starfa sem embættislæknar (Medical
Officer of Health), þ.e. þeirra lækna,
sem ætla sér að vera við opinbera
stjómsýslu og embættislæknisstörf.
Samkvæmt brezkum lögum má ekki
ráða lækna til ábyrgðarstarfa á þessu
sviði, nema þeir hafi lokið þessu námi.
Nám í heilbrigðisfræðum og'
félagslegri læknisfræði
Til þess að mega ganga undir próf
i